ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E
Eiríkur Jónsson

Eiríkur Jónsson

Eiríkur er blaðamaður án hliðstæðu og hefur á löngum ferli komið víða við í fjölmiðlum þannig að eftir hefur verið tekið.

LEYFIÐ HOMMUNUM AÐ KOMA TIL MÍN!

23:05 › 25. nóvember 2009

„Leyfið
börnunum að koma til mín ...“ sagði frelsarinn og meinti hvert orð. Hið
sama gilti um sjúka og aldna og reyndar allt það sem lífsanda dregur. Í
því ljósi verður framferði kristilegra stofnana hér á landi hjákátlegt
þegar þær flestar afneita samkynhneigðum með öllu. Þjóðkirkjan reynir
að klóra í samtímabakkann en eyðir þó meiri tíma og ómældu fé í að
sættast við sóknarprest á Selfossi sem kyssir börn og káfar á þeim.
Fríkirkjuprestar eru kannski fríastir af sér í þessum málum.


 


Því
er þetta sagt vegna þess að Séð og Heyrt upplýsir í dag að hommar fái
ekki að syngja með Fíladelfíukórnum ef upp um kynhneigð þeirra kemst.
Gera má ráð fyrir að hið sama gildi um lesbíur. Er þetta miður þar sem
margir af fremstu söngvurum þjóðarinnar eru samkynhneigðir og
jólatónleikum Fíladelfíusafnaðarins er sjónvarpað um land allt í
kristilegum anda.


 


Þar má rödd hins samkynhneigða ekki hljóma þótt góð sé.


 


Hvað
hefði Jesús sagt við þessum ósköpum ef mild augu hans gætu litið það
svið sem hér við blasir? Örugglega og án alls efa: „Leyfið hommunum að
koma til mín ...“


 


Kristilegar
samkundur, hvaða nafni sem þær nefnast, geta ekki skákað í skjóli
gamalla og úreltra kennisetninga Biblíunnar ætli þær að eiga samleið
með þjóðinni. Kynvillutal Gunnars í Krossinum er hlægilegt og steininn
tekur úr þegar Vörður Leví, forstöðumaður í Fíladelfíu, vill ekki
samkynhneigðar raddir í kór sínum.


 


Í
ljósi þessa skal hér gerð sú krafa til Ríkissjónvarpsins að það hætti
við að sýna frá jólatónleikum Fíladelfíu á aðfangadagskvöld eins og
gert hefur verið undanfarin ár. Það er ekki í anda jólanna að hlýða á
Fíladelfíukór sem mismunar félögum sínum á svo afdráttarlausan hátt
vegna kynhneigðarinnar einnar. Og þaggar niður í annars fallegum röddum.


 


Stöndum öll saman og gerum lífið skemmtilegra!


---


(Leiðari Séð og Heyrt í dag - fréttir fyrir fólk)



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.