• SKOTHELDUR SKATTUR!

    18. mars 2010

    Þjónustufulltrúar Tollstjóraembættisins eru til fyrirmyndar.

    Minna helst á þjónustufulltrúa bankanna 2007.

    Allir að vilja gerðir til að greiða út skattaskuldum með bros á vör.

    Öðruvísi mér áður brá.

    Skrifa athugasemd

  • ER BUBBI AÐ KAUPA DV?

    18. mars 2010

    Sá Bubba Morthens og Reyni Traustason saman áðan.

    Ætli Bubbi sé í DV-kaupendahópnum?

    Skrifa athugasemd

  • STÓRIR SIGRAR!

    18. mars 2010

    Stærstu sigrar hvers manns vinnast í
    kyrrþey. Þar sem hann er einn með sjálfum sér og hittir hávaðalaust beint í
    mark. Þannig eru stóru stundir lífsins.

     

    Um daginn tókst mér að hækka hitastigið í
    gufubaðinu í Sundhöll Reykjavíkur við Barónsstíg um þrjár gráður. Sem er afrek
    þar sem byggingin er friðuð. Skrifaði smáathugasemd á Veraldarvefinn og
    kvartaði yfir því að gufubaðið væri of kalt. Í kjölfarið kvörtuðu fleiri
    fastagestir og svo fór að sundhallarstjórinn skrúfaði hitann upp um nokkrar
    gráður. Nú er gufubaðið allt annað og betra og Sundhöllin betri staður til að
    vera á.

     

    Ótvíræður sigur en þó alls ekki sá stærsti:

     

    Sex ára sat ég á útidyratröppunum á
    Rauðalæk og þá gerðist undrið. Var að reyna að reima skóna mína eins og mamma
    gerði og allt í einu small slaufan svo létt og lipurt. En merkilegra var það að
    á sama sekúndubroti tókst mér að blístra í fyrsta sinn; reyndar á innsoginu en
    blístur var það samt.

     

    Hvorki fyrr né síðar hef ég verið
    hamingjusamari en þetta augnablik.

     

    Nú eru börn hætt að reima skóna sína og
    blístra. Öll með franska rennilása sem allir ráða umhugsunarlaust við. Og í
    eyrunum er iPod með nýjasta flautinu þannig að ekki þurfa þau að blístra sjálf.
    Þessi börn þurfa að vinna sína stóru sigra á öðru sviði en ég. Og gera líklega.

     

    Menn geta svo hrópað á torgum og slegið
    sig til riddara með hávaðann að vopni í fjölmenni. Við þekkjum það úr íslenskum
    stjórnmálum en sá hávaði hefur skilað okkur gjaldrota lýðveldi sem liggur á
    hliðinni í andarslitrunum.

     

    Sjálfur kann ég enn að binda slaufur og
    flauta um leið fagra söngva að eigin vali.

     

    Það gerir lífið skemmtilegra.

    ---

    Leiðari Séð og Heyrt 18. mars - Nýtt blað - Fréttir fyrir fólk!

    Skrifa athugasemd

  • TVEGGJA DAGA LÍF!

    18. mars 2010

    Fimmtudagur og mér finnst eins og það hafi verið föstudagur í gær.

    Tíminn líður svo hratt að mamma segir að það taki því varla að ganga frá jólaskrautinu.

    Skrifa athugasemd

  • FYRIR SVEFNINN!

    17. mars 2010

    Uppáhaldsljósmyndarinn sendir okkur kveðju rétt fyrir svefninn:

    ---

    Hæ gamli -:)

    Sjávarútvegsráðherra reynir nú sem aldrei fyrr að skora keilur.

    Heldur fundi um allt land með hagsmunaaðilum í sjávarútvegi.

    Kemur best út að kvótaaukningin líti út sem náðargjöf.


    ---

    steini pípari


    Skrifa athugasemd