Skýrslan viðamikla um EES-samninginn sem ég sagði frá gær er nú komin út í Noregi: Utenfor og Innenfor.
Tugir fræðimanna hafa yfir ríflega tveggja ára skeið unnið sleitulaust að allsherjarúttekt á EES-samningnum sem nú er aðgengilegur í þessari 911 blaðsíðna skýrslu auk 21 sérstakra úttekta á ýmsum álitaefnum.
Ég starfaði fyrir rannsóknarhópinn um skeið og skrifaði meðal annars úttekt á Evróputengslum Íslands sem finna má hér. Í meginskýrslunni sjálfri er framlag mitt um Ísland helst að finna á bls. 304 – 307 og svo hér og þar í skýrslunni.
Annars eru tengsl Noregs við Evrópusamrunann í gegnum EES og Schengen sem hérna eru í fyrsta sinn rannsökuð heildstætt nokkurn vegin yfirfæranleg á Ísland. Svo skýrslan á eiginlega jafn mikið við um okkur og Norðmenn.
Blogg
Úti og inni – er hvort tveggja hægt samtímis?
12:50 › 17. janúar 2012
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
