ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.1° 0m/s Calm
Eiríkur Bergmann

Eiríkur Bergmann

Eiríkur Bergmann er háskólakennari og rithöfundur. Hann er doktor í stjórnmálafræði og dósent við Háskólann á Bifröst. Eftir hann liggur fjöldi bóka og greina um þjóðfélagsmál, sér í lagi um tengsl Íslands við umheiminn. Eiríkur hefur um árabil ritað reglulega dálka í dagblöð, til að mynda í Helgarpóstinn, DV, Blaðið/24 stundir, Fréttablaðið, Pressuna og breska dagblaðið The Guardian. Sjá nánar á www.eirikur.bifrost.is

Þjófstart

14:09 › 16. janúar 2012

Undanfarin tvö ár hefur stór nefnd skipuð öllum helstu Evrópusérfræðingum Noregs (Europautredningen) unnið að allsherjarútekt fyrir norska stórþingið á öllum hliðum EES-samningsins. 

Skýslan verður birt á morgun en Aftenposten þjófstarar málinu á forsíðu blaðsins í dag undir fyrirsögninni: „Demokratisk fiasko for Norge.“

Rétt er að  taka fram að fyrirsögnin er vitaskuld blaðsins en ekki sérfræðingahópsins. 

Sýnt verður frá því í beinni útsendingu þegar skýrslan verður kynnt í Osló á morgun.

Þetta er fyrsta allsherjarúttektin á Evróputengslum Noregs – og þar með Íslands líka – sem fjölmiðlar og stjórnmálamenn í Noregi hafa lengi beðið eftir. 

Ég vann fyrir nefndina og gerði meðal annars úttekt á stöðu og áhrifum EES-samningsins á Íslandi sem finna má hér.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?