Lauk við Mannorð Bjarna Bjarnasonar í gær. Ærulaus útrásarvíkingur kaupir sér mannorð æruverðs rithöfundar.
.
Sem er að mörgu leyti frábær fantasía.
.
Þetta er sérdeilis áhugavert verk. Og sagan sem Bjarni spinnur er yfirleitt bráðskemmtileg.
.
Bjarni virðist einkum hafa áhuga á fantasíunni sjálfri svo passíurnar um hrunið rísa aldrei í sömu hæðir, eru að mínu mati sístu kaflar bókarinnar.
.
En að samanlögðu er Mannorð afbragðsgóð bók. Og bráðskemmtileg.
.
Er nú kominn fjórðung inn í Lygara Óttars Norfjörðs og orðinn ansi áhugasamur um að sjá hvert sagan stefnir.
.
Verð þó að viðurkenna að ég er að verða viðþolslaus að klófesta Konuna við þúsund gráður eftir Hallgrím Helgason.
.
Þykir hugmyndin um hina keðjureykjandi kerlingu í bílskúrnum svo heillandi að ég get tæpast beðið eftir að sökkva í hana augunum.
.
Skil ekki af hverju enginn hefur sent mér hana í pósti ;-)
Blogg
Frábær fantasía
11:13 › 3. desember 2011
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
