Teitur

Teitur

Teitur býr í Skien sem er lítill bær í Noregi. Hann er hefur BA prófi í trúarbragðafræðum og hefur lokið framhaldsnámi í sölutækni og alþjóðaviðskiptum. Hann er óragur samfélagsgagnrýnandi og áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, náttúrvernd, bifreiðar, málefni flóttafólks á Íslandi og metaltónlist og KISS. Teitur er í 5. Sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður fyrir Alþingiskosningarnar 2013.

  • Sígarettumyndir

    8. febrúar 2011

    Í vinnunni minni er forláta skanner sem ég er að eins að fikta mig áfram með.  Ég hef skannað inn frímkerki og annað nördastöff og nú var komið að sígarettumyndunum sem ég erfði eftir Svein afa.

    Sígarettumyndir voru ljósmyndir sem settar voru inn í sígarettupakka sem stífing því annars var hætta á að sígaretturnar krumpuðust.  Þessar myndir eru allskonar, allt frá kvikmyndastjörnum og yfir í landslagsmyndir frá Íslandi.  Mér þykja þær skemmtilegastar og svo bátamyndirnar en ég á myndir af öllum íslenska flotanum einhverntíman frá fyrstu áratugum síðustu aldar.

    Mér þykja þessar myndir fallegar og mun alveg örugglega birta fleiri myndir á blogginu eftir því sem ég skanna þetta inn.


    Stór útgáfa hér


    Stór útgáfa hér.


    Stór útgáfa hér


    Stór útgáfa hér


    Stór útgáfa hér.


    Stór útgáfa hér.


    Stór útgáfa hér.


    Stór útgáfa hér.


    Skrifa athugasemd

  • Gísli Marteinn og bláa tunnan -taka tvö.

    8. febrúar 2011

    Þetta blogg birtist þann 23. janúar 2010.   Mér hefur alltaf þótt þetta blogg útskýra vel út á hvað FLokkurinn gengur.  Gísli Marteinn drap nefnilega einu sinn alveg prýðileg einkaframtak bara vegna þess að hann gat það og vegna  Parkinssonslögmálsins. Þetta lögmál sem kennt er við Parkinson gengur út á að allar stofnanir hafa knýjandi þörf á að stækka.

    Hérna er greinin.


    Ég reit fyrir nokkru litla greiningu á Sjálfstæðisflokknum. Hana er að finna hér.
    Þar er m.a sagt frá þversögninni sem alltaf kemur betur og betur fram í
    stefnu Sjálfstæðisflokksins. það er annarsvegar þar sem eintaklingunum
    er stillt upp á móti hinu tortímandi "kerfi" og svo hinsvegar þar sem
    "kerfinu" er stillt upp á móti einstaklingnum.

    Þessi tvö
    sjónarmið eru svo notuð eftir því hvernig vindarnir blása hverju sinni.
    Prýðisdæmi um þetta er t.d að haldið er uppi vörn fyrir hið óréttláta
    kvótakerfi. En þar er hið eðlilega svar hægri stefnunnar hundsað (að
    ríkið eigi kvótann og leigi hann út hæstbjóðanda) og liðsinni veitt í
    óskiljanlegu og óréttlátu kerfi sem sett hefur landið á hausinn ten times over.

    Svo er það dæmið um Bláu tunnuna hans Gísla Marteins. Það er eftirfarandi:

    [Á]gætis dæmi um þetta er þegar Reykjavíkurborg (undir stjórn Sjálfstæðisflokksins) ákvað að bjóða upp á "bláu (rusla)tunnuna"
    fyrir reykvísk heimili. Þar fór Reykjavíkurborg með öllu sínu apparati
    og innfrastrúktúr í beina samkeppni við fyrirtæki sem þegar bauð upp á "grænu tunnuna"
    sem var svipað konsept. Ég var þá einmitt í áskrift að svona grænni
    tunnu og þegar bláa tunnan kom, var hún þúsundkalli ódýrari en græn
    tunna einkafyritækisins Gáms. Ég hringdi í Gám og spurði hvort þeir gætu
    jafnað verð Reykjavíkurborgar. Nei því miður var svarið. Við getum það
    ekki (reyndar hefur þetta greinilega breysts því græna tunnan er nú á 950 kr).
    Ég sagði því upp grænu tunnunni og fékk mér (Sjálfstæðis)bláa tunnu.
    Enda var hún mun ódýrari. Sem sagt. Þarna var Sjálfstæðisflokkurinn að
    eyðileggja markaðinn fyrir einkafyrirtæki.

    Gísli Marteinn, einn
    af skósveinum Hannesar Hólmsteins var heilinn á bakvið þetta inngrip í
    markaðinn og aðspurður hverju þetta sætti var svarið eitthvað á þessa
    leið:
    "Við
    erum lögbundin því að veita Reykvíkingum ákveðna þjónustu og við verðum
    að fara eftir lögum. Þessvegna bjóðum við upp á þessa nýjung".

    Gísli
    faldi sig þarna bakvið einhver lög sem hann hefið alveg getað horft
    framhjá eða túlkað öðruvísi. Það sem gerðist þarna var míní útgáfa af
    stækkunaráráttu kerfisins sem Sjalfstæðisflokkurinn mælir sjálfur svo
    hart í mót.

    það er gaman að geta þess að Sjónvarpsstjóri RÚV
    hefur alltaf notað sömu afsökun fyrir því að ríkissjónvarpið sé í
    samkeppni við Stöð2 og Skjá1 um kaup og sýningar á amerískri
    afþreyingarefni.

    Sjálfstæðisflokkurinn er tæknilega
    ekki stjórnmálaflokkur. Hann er eitthvað annað. Það er enginn stefna
    sem heitið getur því orð og æði fara ekki saman þegar
    Sjálfstæðisflokkurinn er annarsvegar. Muniði eftir slagorðinu um
    "báknið burt". Eftir 18 ára valdatíma Sjálfstæðisflokksins þandist
    "báknið" út með ókunnum þrótti og hefur aldrei verið stærra.

    Ég
    hvet alla lesendur að sneiða hjá pótentánum Sjálfsstæðisflokksins og
    skrumslælingu þeirra á veruleikanum. Þeim gengur ekkert gott til og
    dæmin hafa sýnt og sannað að annarleg sjónarmið ráða för frekar en
    hagsmunir fjöldans.

    Skrifa athugasemd

  • Líndal - Laxdal og óefni hlutanna

    8. febrúar 2011

    Mig rak í rogastans þegar ég las í gær blogg eftir mann að nafni Johannes Laxdal.  Þar skammar Laxdal DV fyrir að fjalla um þegar Líndal bakkaði á bíl og reyndi að ljúga sig út úr tjóninu   Líndal vissi ekki að upptökur voru til af atburðinum og var gripin glóðvolgur ef svo má að orði komast

    DV gerði þá reginvillu að fjalla um málið og fékk á baukinn hjá Laxdal

    Svo heldur Laxdal áfram og segir:   "Mikil tíðindi hefðu hins vegar þótt ef lögmaðurinn hefði ekki beitt klækjum"

    Það var þarna sem rogastansinn rakst í  mig.  Laxdal er að segj að það hefði talist til tíðinda ef að Líndal hefi verið heiðarlegur og gengist við broti sínu. það sem er líka athyglivert að Laxdal kallar þá staðreynd að reyna að ljúga sig út úr aftanákeyrslu, "að beita klækjum"Lygi er orðin jafn rétthá einhverjum klækjabrögðum

    Þetta kallst gengisfall hugtakanna.

    Líndal sagði sjáfur í viðtali að "myndbandsupptakan hefið ekki verið honum hagstæð".  Þetta er kostulegt.  Með sömu retórík má segja að sönnunargagn í glæpamáli, hafi ekki verið hinum ákæra hagstætt. 

    "Það var ekki hagstætt fyrir ákærða að DNA prufa reyndist passa við DNA sem fannst á brotaþola"  (maðurinn er sem sagt sekur eins og syndin )

    Þetta er moðreykur af verstu sort, sem blásin er upp til þess að afvegaleiða það sem raunverulega gerðist og auðvitað erum við komin í algert óefni sem þjóð, þegar virðulegir prófessorar ljúga upp á borgaranna allskonar ómerkliegri þvælu.  Í tilfelli Líndals lét hann ekki þar við sitja, heldur gerði gys að þeim sem hann reyndi að snuða.  Kallaði hann "sauðslegan mann" og dylgjaði um að brotaþolinn hefði logið til um tjónið! 

    Líndal kannast kannski við þessar lagagreinar:

    234. gr. Hver, sem meiðir æru
    annars manns með móðgun í orðum eða athöfnum, og hver, sem ber slíkt út, skal
    sæta sektum eða [fangelsi]1) allt að 1 ári.

    1)L. 82/1998, 127. gr.



    235. gr. Ef maður dróttar að öðrum
    manni einhverju því, sem verða myndi virðingu hans til hnekkis, eða ber slíka
    aðdróttun út, þá varðar það sektum eða [fangelsi]1) allt að 1 ári.

    1)L. 82/1998, 128. gr.



    236. gr. Sé ærumeiðandi aðdróttun
    höfð í frammi eða borin út gegn betri vitund, þá varðar það …1) fangelsi allt
    að 2 árum.

    Sé aðdróttun birt eða borin út opinberlega, enda þótt sakaráberi hafi ekki haft
    sennilega ástæðu til að halda hana rétta, þá varðar það sektum …1) eða fangelsi
    allt að 2 árum.

    1)L. 82/1998, 129. gr.



    Það er nöturlegt til þess að vita að fólk sem hefur sig í frammi í þjóðmálaumræðunni,  skilur ekki muninn á réttu og röngu. 

    Skrifa athugasemd

  • Kratagildin á frímkerkjum -Barnahæli-

    8. febrúar 2011

    Eins og lesendur hafa séð í skrifum mínum að undanförnu, er mér svolítið umhugað um gildin sem gera okkur að þjóð og hvernig þau má sjá í gömlum frímerkjum. (já þetta er nördalegt)  Ég sem ný-endurhæfður frímerkjaðsafnari, hef með þessu móti sameina áhuga minn á frímkerkjasöfnun og þjóðfélagsmálum. Þessi myndefni frímerkjanna eru líka svo heiðarleg einhvernvegin.  Auðlesin, auðskilin og laus við þvaður og útúrsnúninga.  Þessi myndefni er yfirlýsing frá örþjóð undir oki Danmerkur um að við getum þetta.  Um að okkur stendur ekki á sama um hvort annað og umfram allt. 

    -Við stöndum saman.



    Auðvitað er ekkert sjálfsagt mál að til séu barnaheimlii (barnahæli) sem rekin eru af hinu opinbera.  Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf verið mikið á móti svoleiðis rekstri og sagt að barnaheimili skuli vera einkabissness.  Þetta er svo sem punktur út af fyrir sig, en ef að barnaheimilispláss væru EKKI niðugreidd þá myndi hvert pláss kosta á bilinu 150 til 250 þúsund á mánuði.  Auðvitað er draumastaða hægrisins um lægri skatta og dýr barnaheimilispláss ágæt fyrir þá sem eiga fullt af peningum. 

    Og takið eftir þessu góðir lesendur.  Stefna Sjálftæðisflokksins miðast ALLTAF við þá sem eiga nóg af peningum.  Þeim er í raun sama um niðurbrot samfélagsgildanna svo fremi sem það sparar þeim einhverjar krónur í skatta.

    Þetta er makalaus stefna og mannfjandsamleg.

    Skrifa athugasemd

  • Stærðfræði

    7. febrúar 2011

    Bessi sonur minn (4 ára) er ágætur í samlagningu.  Málið flækist heldur betur þegar hann á að draga saman.  Ég lagði fyrir hann eftirfarandi dæmi í fyrradag.

    "Ef þú átt þrjár bakkúgan kúlur og ég tek af þér tvær...  Hvað áttu þá margar?"

     - - - Bessi var eldfljótur að svara - - -

    -"Nú auðvitað tíu"

    ...Svo skýrði ég út fyrir honum með allskonar fingrabendingum hvernig dæmið liti út.  Þá komu vöflur á drenginn og hann viðurkenndi að "tíu" var ekki rétt svar.

    -o-o-o-

    Formaður Framsóknarflokksins gerði ennþá fyndnari villu en Bessi Teitsson þegar hann í blaðagrein ruglaðist á eitthvað hundrað og fjörtíu þúsund triljónum í mínus þegar upphæðin átti að vera í plús.

    Grátlegra er þó að þótt að hann viti af þessari hroða-villu, neitar hann að skipta um skoðun á málefninu sem var grunvöllurinn fyrir reikningsdæminu.

    Þetta er álíka og að móðir segir við börnin sín og eiginmann:  Nei ágæta fjölskylda.  Við komumst ekkert til til Borgarness í afmælið hans Kobba litla.  Það er spáð ofsaroki á leiðinni og tómt hættuspil að ana út í svona hættu.  Eiginmaðurinn bendir á -(með hægð)- að veðurspáin um rokið eigi við um næstu viku og að úti sé sólskin og blíða.  Eiginkonan lítur út um gluggann, tékkar svo á textavarpinu og segir hranalega

    Nei. Við förum ekki neitt í dag. Andskotans afmæli alltaf hreint.  Það er samt hættulegt að keyra þessa leið þótt ekkert sé rokið og veðrið eins og best verður á kosið.

    Sigmundur Davið er alveg eins.  Telur það til minnkunar að skipta um skoðun jafnvel þótt að "nýjar" forsendur séu skellihlægjandi fyrir framan hann. 


    Bessi sonur minn er þroskaðri en formaður Framsóknarflokksins hvað þetta varðar. 

    Skrifa athugasemd