Teitur

Teitur

Teitur býr í Skien sem er lítill bær í Noregi. Hann er hefur BA prófi í trúarbragðafræðum og hefur lokið framhaldsnámi í sölutækni og alþjóðaviðskiptum. Hann er óragur samfélagsgagnrýnandi og áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, náttúrvernd, bifreiðar, málefni flóttafólks á Íslandi og metaltónlist og KISS. Teitur er í 5. Sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður fyrir Alþingiskosningarnar 2013.

  • "Efnahagsmeistaranum" boðin vinna

    20. mars 2011

    Ég sá myndina "The Inside Job" í gær.  Fín mynd um efnahagshrun heimsins.  Ísland var versta dæmið enda fyrst að falla.  Það er svo skrýtið að ástandið í Bandaríkjunum var alveg eins og á Íslandi.  -Bara 1000x stærra. 

    Stór-furðulegt og ýtir sannarlega undir kanarífuglskenninguna sem svo hefur verið nefnd.

    Athygli mína vakti viðtal við þennan Mishkin sem Viðskiptaráð keypti afar bjarta skýrslu af, í þeirri von um að tala burt ástandið.  Félagi Mishkins við gerð skýrslunnar var þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Tryggvi Þór Herbertsson.  Það sem er fyndið vð þetta sorglega dæmi um akademískt hórarí, er að Mishkin hefur breytt titlinum á skýrslunni í ferliskrá sinni!!  Hann breytir "stability" í "unstability" og lætur líta út fyrir að skýrslan hafi verið varnaðarskýrsla!! 

    -Spurning um hvort Tryggvi Þór Herbersson hafi gert hið sama?

    Myndin kemst að nokkrum niðurstöðum en sú sem er mest afgerandi er að launa og bónuskerfi bankaheimsins sé hin rauverulega ástæða fyrir hruninu.  Ég er alltaf að verða meira og meira sannfærður um að sérstök lög sem beint er að bankaheiminum, séu nauðsynleg og bónusaruglið verði barasta bannað.  Mikið betra er að borga hærri laun á mánaðabasis ef há laun eru svona lífs-nauðsynleg innan þessa geira.

    Hin sérkennilega staða kemur upp í myndinni að seðlabankastjórinn Davíð Oddson, fær háðslega útreið hjá engum öðrum en Miskin. 

    Ein af þeim hugrenningum sem fóru í gegnum huga minn eftir að hafa horft á þessa ágætu mynd, er að ef að tesan er rétt um að Davið Oddson hafi gert allt rétt og verið óskeikull.....Hví er ekki búið að hafa samband við hann frá Alþjóðabankanum og honum boðin staða til að mannkynið fái allt að njóta hæfileika"efnahagssmeistarans" eins og Davíð er kallaður meðal innvíðgra

    -o-o-

    ps.

    Þessi nafngift er EKKI grín.  Davíð Oddson ER kallaður "efnahagsmeistarinn" meðal innmúraðra.

    Skrifa athugasemd

  • Appelsín frá Siglufirði

    20. mars 2011

    Enn eitt dæmið um að nútíminn sökkar....

    Einu sinni var til gosdrykkjaverksmiðja á Siglufirði.


    stór upplausn hér.

    Lifi hið frjálsa framtak og lifi fjölbreytnin! 

    Róttækni mín eykst með hverju árinu og núna er komið þannig fyrir mér að ég þoli ekki massa-framleiðslu-ógeðið sem sífellt er verið að troða upp á mann.  Ég vil SPUR og ég vil VALASH og ég vil Appelsín frá Siglufirði!!!

    Skrifa athugasemd

  • Íslensk stjarna í Svíþjóð

    19. mars 2011

    Sverrir Guðnason er nafnið sem er á allra vörum í sænska leiklistarheiminum.  Í Gautaborgarpóstinum í gær var stór viðtal við hann þar sem hann sagði í örfáum orðum frá sjálfum sér, uppvextinum á Íslandi.  Flutningnum til Svíþjóðar og leiklistinni.  Ágætis viðtal en markar trauðla vatnaskil í blaðamennskunni. 

    Hitt er ljóst að Sverrir er stjarna hér í Svíþjóð. 

    Gestkomandi í húsi mínu hafði á orði að Sverrir væri "ofboðslega huggulegur".  Það eru orð að sönnu.  Fegurri Íslendingur er vandfundnari en Sverrir Guðnason.

    Í bíóhúsum í Svíþjóð er nú verið að sýna mynd þar sem Sverrir fer með eitt af aðalhlutverkunum.  Myndin fær fína dóma og það er vonandi að hún skilar sér á klakann því að standardinn á sænskum myndum er geysi hár.

    Hérna eru myndir af viðtalinu og auglýsingin fyrir myndina sem Sverrir leikur í.









    Ef einhver vill fá viðtali sent í læsilegu letri, þá er hægt að senda mér póst á netfangið teitur.atlason@gmail.com

    Skrifa athugasemd

  • Bensín er ódýrt á Íslandi.

    19. mars 2011

    Líterinn kostar 14 skr eða 253 ískr

    Tankurin á Opel kostar 11.521,- ískr.  

    -Slatti.

    Skrifa athugasemd

  • Bandaríkin munu falla

    19. mars 2011

    Ég fór í flottustu búð Gautaborgar um daginn til þess að kaupa í afmælið hans Bessa.  ICA Focus heitir hún og er toppurinn af ICA búðunum.  -Frábær búð.  Þar fann ég loksins sinnepið "mitt" í amrísku hillunni sem er heiðgult og bragðgott.

    En ég fann meira. 



    Ég sá loksins "Fluff" sem er goðsagnakend vara sem amrísk börn smyrja ofan á brauð.  Fluff er eiginlega stöffið sem er innan í kókosbollunum.  Við keyptum auðvitað eina dollu og smurðum ofan á vöfflur.  Furðlegt nokk þá þögðu drengirnir meðan þeir voru að innbyrða vöffur með flöffi.



    -Nokkuð sem gerist sjaldan eða aldrei.

    Í þögninni þá gafst mér smá tími til umhugsunar og ég fann til innilegrar sannfæringar að þjóð sem býrt til Flöff, og notar sem álegg, á sér enga framtíð. 


    -Bandaríkin munu falla.

    Skrifa athugasemd