Teitur

Teitur

Teitur býr í Skien sem er lítill bær í Noregi. Hann er hefur BA prófi í trúarbragðafræðum og hefur lokið framhaldsnámi í sölutækni og alþjóðaviðskiptum. Hann er óragur samfélagsgagnrýnandi og áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, náttúrvernd, bifreiðar, málefni flóttafólks á Íslandi og metaltónlist og KISS. Teitur er í 5. Sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður fyrir Alþingiskosningarnar 2013.

  • Harmageddon.

    23. júlí 2011

    Ég var í Harmageddon á fimmtudaginn.  Talaði um Evrópusamandið.  Tók eftir því við hlustun að ég hef mýkst töluvert í afstöðu minni til Sjálfstæðisflokksins. 

    -Því ber auðvitað að fagna.

    Hérna er linkurinn á viðtalið.  Ég byrja þegar 22.41 mín eru búnar og enda þegar 47.09 eru búnar.


    Það er eftirtektarvert að Harmageddon er besti samfélags-rýnis þátturinn í íslensku útvarpi. Þetta heyrist mér vera almenn vitneskja. 

    Skrifa athugasemd

  • Graffití er flott.

    22. júlí 2011

    Ég hef í síðustu tveimur bloggum bent á hið andstyggilega "tagg" sem er út um allt.  Sumar athugasemdirnar við þessi blogg voru á þá leið að þetta væri einhverskonar "tjáning" og væri þar af leiðandi merkilegt og fólk ætti frekar að virkja krassarana í stað þess að banna þeim að krassa.

    Þetta er mjög röng og vitlaus hugsun.

    Tagg er bara krass og ber höfundunum ófagurt vitni.  Þetta eru bara skemmdarvargar og þurfa að komast undir manna hendur.

    Sumir eru svo fávísir að rugla saman taggi og graffití.  "Tagg" er eins og ég hef sagt, mjög hefðbundin  skemmdarverk en graffití er oft og tíðum list.

    -Já ég sagði það.  List.

    Ég er áhugamaður um graffití og hef tekið þessar myndir af flottum verkum sem sjá má í Reykjavík.  Þess ber að geta að ég tók þessar myndir áður en ég bloggaði um bannsett "taggið".


    Mynd við þar sem áður var portið hjá Sirkús hinum vafasama við Klappastíg.  Leó er þarna með ís eða eitthvað.


    Port við Héðinshúsið


    Port við Héðinshúsið. Frábær mynd.  Flottasta sem ég hef séð. 


    Undirgöng við Seljaveg.


    Undirgöng við Seljaveg.


    Við Héðinshúsið.  Bessi pósar.


    Stærsta myndin.  Feykilega flott.  Stór upplausn hér


    Ég og mynd af ónefndum Framsóknarmanni sem hefur gert mér lífið leitt  :) 

    Skrifa athugasemd

  • Leiðinlegur göngutúr

    20. júlí 2011

    Ég vakti athygli á veggjakroti í bloggi í gær.  Viðbrögðin voru góð og greinilegt að margir eru orðnir þreyttir á þessum ósóma.   Reyndar er það svo að ég fæ á tilfinninguna að flestir séu löngu hættir að taka eftir þessu og í dofa þess sem er sama um allt, hætta skilningarvitin að virka og vandinn er þar af leiðandi ekki til.

    Ástæðan fyrir því að ég tek eftir þessu, er að ég bý í Gautaborg og þar er þetta ekki vandamál.  Lesið athugasemdir Gunnars Hjálmarssonar við bloggið mitt frá í gær.  París er ekki einu sinni svona.

    Í leiðnni út í Nóatún áðan þar sem ég var að kaupa í morgunkaffið, tók ég með mér myndavélina og ákvað að  taka myndir af öllu veggjakroti sem yrði á vegi minum.  Þetta er stutt gönguferð.  Innan  við 10 mínútur hvora leið.

    Þetta er leiðin sem ég gekk.  Reglurnar voru einfaldar.  Ég tók  bara myndir af veggjakroti við göturnar sem ég gekk.  Bannað var að kíkja yfir í næstu götu til að mynda veggjakrot.




    Hérna er ég fyrir utan húsið sem ég dvel í.  Veggjakrot í litlum göngum út í garð.  Rafmagnskassi útbíaður í kroti.  Einhver sem kallar sig By! er búin að merkja sér Holtsgötuna.  Rafmagnskassar eru vinsæll efniviður  veggjakrassara.  Á Framnesveginum má sjá einu tilraunina til þess að gera einhverja mynd úr krassinu.  Virkilega lélegt graffíti sem ber höfundunum vondan vitnisburð.




    Framnesvegur.




    Vinnuskúr er krotaður sem og merki sem kveða á um að hér sé strætóstoppistöð!.




    Horn Framnesvegar og Hringbrautar.  Þarna má sjá veggjakrot á steinuðu húsi. Viðgerð er útilokuð því ekki er unnt að þrífa svona múráferð.  Verðmætaeyðileggingin er gríðarleg.    Takið eftir að taggararnir merkja sér ótrúlegustu svæði.  Ruslafötur,  baklhluti skilta, þakrennur osfr.




    Strætóskýli útbíað í taggi.  Póstkassi líka.  Meir að segja auglýsing sem limd er í glugga lyfjaverslunar sem er þarna.




    Þarna var ég komin inn í Nóatún og innan í búðinni var búið að krota!!  Á leiðinni heim tók ég myndir af krotinu sem mér yfirsást.  Þetta er alveg sérstök tegundu hugsturlunnar þessi veggjakrotsárátta.




    Þarna má sjá afleiðingarnar þegar einhver spreyjar bílalakki á steinað hús. Útilokað er að þrífa þetta af.  Múrhúðin er það viðkvæm og losnar af við háþrýstiþvott og sýrubað.




    Ruslatunnur eru vinsæll efniviður veggjakrotara.




    Allt er útbíað.



    Þessi stutti göngutúr um vesturbæ Reykjavíkur ætti að færa fólki sanninn um stærð þessa vandamáls eða ófögnuðar.  -Þetta er út um ALLT!!

    Ég hvet Reykvíkinga til að taka á þessu máli og færa skemmdarvarganna fyrir dómstóla.  Þetta er ófögnuður sem vel er hægt að úthýsa úr borginni okkar.

    Skrifa athugasemd

  • Vandalismi í Reykjavík

    19. júlí 2011

    Ég á heima í Gautaborg.  Hún er næst stærsta borg Svíþjóðar með 515.000 íbúa.  Í "Stór-Gautaborg" búa um það bil miljón manns.  Höfnin í Gautaborg er risastór og borgin er hard-core iðnaðarborg.  Í borginni slær hjarta hins mikla sænska iðnaðar.  Samt er Gautaborg hreinni og umgengni íbúana um borgina sína er mikið betri en í Reykjavík.

    Það er ekki svo aumur veggfermeter í Reykjavík, að hann sé ekki útbíaður með óskiljanlegum skilaboðum frá einhverjum veggjakroturum.  Þetta er böl og hefur lengi verið.  Nú vil ég áður en lengra er haldið taka fram að ég er hrifin af graffiti.  Sumar myndir sem eru sannarlega til prýði og lífgar upp á (d)auða veggi.  Sumir graffarar eru geysilega flinkir og ég tek hatt minn ofan fyrir þeim   Graffið er líka skotspónn veggjakrotsins.  Flottar myndir eru eyðilagaðar af veggjakrassandi skemmdarvörgum.

    Veggjakrot er stundum kallað "tagg" og Reykjavík er útbíuð í svona taggi.  Fyrir vikið virkar borgin skítug og niðurdrepandi.  Veggjakrotarar skirrast einskis og skrifa á hvað sem er og skeyta engu um verðmæti eða vinnu fórnarlamba þeirra. 

    Til er aðferð í múrbransanum sem heitir "steinun".  Það er afar dýr framkvæmd og tímafrek.  Félagi minn á litla íbúð í húsi sem er verið að steina, og reikningurinn fyrir húsið hljóðar upp á margar miljónir.  Steinun felst í því að steinmulningi er kastað á blautan múr sem festist þegar múrinn harðnar. 

    Þegar einhver veggjakrotari sprautar bílalakki á steinað hús, er hann að eyðileggja alla þá hlið hússins því útilokað er að lagfæra steinað hús með háþrýstiþvotti á einangruðu svæði.  Blæbrigðamunur sést alltaf þegar lagfæringar eru reyndar á steinuðum múr.  Til að vel sé gert, þarf að hreinsa alla hliðina með þrýstiþvotti og steina upp á nýtt.  Tjón vegna veggjakrots á steinuðu húsi er því gífurlegt og hleypur á miljónum!

    Þetta hús stendur við Vonarstræti.  Nýsteinað og fínt en einhver fáviti sá sér leik á borði og krassaði það út með spreybrúsa.  Ég finn til með eigendum hússins og vona að þetta skemmdarverk verði kært til lögreglunnar.





    Ég hvet íbúa Reykjavíkur að skera upp herör gegn þessum ófögnuði með öllum ráðum tiltækum. Höfum  í huga að gerendurnir eru þekktur hópur og alveg öruggt að með fundarlaunum er hægt að hafa hendur í hári þessa tiltekna fávita sem eyðilagði nýsteinaðan múr með veggjakroti. 

    Svo ég endi þar sem ég  byrjaði, í Gautaborg.  Þar er í gangi stefna sem gengur út á að hart er tekið á veggjakroti og allstaðar þar sem ekki má krota, og krot birtist, er málað yfir það innan 24 klukkustunda.  Viðurlög og sektir eru geysiháar við veggjakroti og farið með svona mál eins og hver önnur lögbrot með kæru, fjársektum og refslingu við hæfi.

    Skrifa athugasemd

  • Húsin í Reykjavík

    18. júlí 2011

    Sum húsin í borginni eru makalaustu furðuleg.  Samhengi þeirra við götuna sem þau standa við, er oft ennþá furðulegra.  Þetta hús stendur á horni Bræðraborgarstígs og Öldugötu.



    Þarna glittir í konu mína og örverpið.

    Skrifa athugasemd