Teitur

Teitur

Teitur býr í Skien sem er lítill bær í Noregi. Hann er hefur BA prófi í trúarbragðafræðum og hefur lokið framhaldsnámi í sölutækni og alþjóðaviðskiptum. Hann er óragur samfélagsgagnrýnandi og áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, náttúrvernd, bifreiðar, málefni flóttafólks á Íslandi og metaltónlist og KISS. Teitur er í 5. Sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður fyrir Alþingiskosningarnar 2013.

  • Djöflsins snillingar - 4. hluti - Sparibros

    7. janúar 2012

    Í kjölsogi efnahagshrunsins hefur Sjálfstæðisflokkurinn sýnt af sér það hrikalega manndómsleysi að kenna núverandi ríkisstjórn um eftirmála efnahagsstefnunnar sem hann sjálfur er ábyrgur fyrir.  Þetta er eins og að brennuvargur valhoppi glaðhlakkaralega utan í slökkviliðsmönnunum sem reyna að slökkva eldinn sem brennuvargurinn sjálfur  kveikti, með fríunarorðum á borð við:


    Ha ha - Kunnið ekki að slökkva eldinn!  Ha - ha.  Þið sprautið meir að segja vatni á sófasettið hennar ömmu.    Ha - ha  Kunnið ekki að sprauta.  Hvernig dettur ykkur í hug að sprauta úr brunaslöngunni yfir bækurnar!! Kunnið þið ekki neitt!  Berið þið enga virðingu fyrir NEINU! 


    Þetta er auðvitað illþolandi, en kosturinn er að þarna sést neyðarlega mikið í hugsanaháttinn sem stýrir för.  Fólk getur verið grimmt og sýnir ótrúlegustu hugkvæmni til þess að kasta ryki yfir eigin misgjörðir.  Þetta er svo sem skiljanlegt en ég verð oft kjaftstopp og líður eins og ég sé að detta aftur fyrir mig þegar ég geri mér grein fyrir því að um er að ræða "okkar besta fólk", vel menntað og hefur náð langt innan stjórnkerfisins sem lætur svona.  


    -Þetta eru kjörnir fulltrúar almennings.


    Og til að bíta hausinn af skömminni er þetta sama fólk, sem galar hæst um "ástandið", sjálft ábyrgt fyrir því.  Kelling kemur aðvífandi að slökkvuliðsmanni þar sem hann sprautar vatni inn í brennandi hús.  Kellingin æpir að slökkvuliðsmanninum að sprauta inn um svefnherbergisgluggann því þar byrjaði eldurinn.  Slökkvuliðsmaðurinn spyr í forundran hverju það sæti að hún viti hvar eldurinn byrjaði.  Kellingin brosir og segir glaðhlakkaralega:


    "Ég ætti nú að vita það.  Ég kveikti hann sjálf". 


    Svona láta þingmenn flokksinns. Allir.  Meir að segja sá sem staðinn var að skattsvikum. Meir að segja sú sem fékk 1700 miljónir afskrifaðar.  Meir að segja sá sem var milligöngumanneskja fyrir risamútur til flokksins.  Meir að segja sá sem lagði línurnar fyrir eyðileggingu sparisjóðakerfsisins.  Meir að segja sá sem skrifaði upp á skýrslu sem dásamaði efnahagslífið styrk þess og getu rétt fyrir hrun.  Meir að segja sá sem stýrði glæfra-banka þráðbeint á hausinn með óskaplegum skaða.  Meir að segja sá sem átti að passa upp á peninga sparifjáreigenda  með þeim árangri að ríkið tapaði mörg þúsund miljónum.  Meir að segja sá sem tók beinan þátt í því þegar bótasjóður tryggingafélgs var tæmdur.


    Meir að segja þetta fólk tekur þátt í "gleðinni" við að spilla fyrir björgunarstarfinu eftir eyðilegginguna sem þau sjálf skópu. 


    -það er gengið hreint til verks. 


     Hreint til verks


    .

    Skrifa athugasemd

  • Djöflsins snillingar - 3. hluti - Geðveik trix

    6. janúar 2012

    Árið 2008 kollvarpaðist hugmyndakerfi stærsta og voldugasta stjórnmálaflokks á Íslandi.  Það er ekkert auðvelt að horfast í augu við að allt sem kjósendur þessa flokks settu traust sitt á, reyndist blekking.  Við höfum reyndar séð svona stöðu áður.  Þegar kommúnisminn hrundi þá fundu margir sig í hreyfingum á borð við "Free Tibet" og þessháttar.  Því miður á þetta ekki við áhangendur Sjálfstæðisflokksins. Þeir virðast ringlaðir og öll orkan sem býr í þessum stóra flokki fer í að reyna að eyðileggja fyrir ríkisstjórninni með öllum ráðum tiltækum. 


    Það sem er svo furðulegt við þetta alltsaman er að það er eins og "stefnan" sé álitin heilög og óbrigðul.  Þessvegna er haldið áfram með hana þrátt fyrir áfallið þegar efnahagur landsins hrundi.  Að þessu leiti hefur stefnan á sér trúarlegan blæ.  Hver hefur ekki klórað sér í hausnum yfir heimsendaspámönnum sem halda áfram að spá heimsendum ár eftir ár og skipta bara um dagsetningu.  Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei þorað að skoða stefnuna sem hann sjálfur leiddi inn í samfélagið á heilum 18 árum.  Hún var rétt að mati áhangenda flokksins.  Rétt !  Rétt!  og steinþegi þeir sem halda öðru fram.


    Þetta er stefnan ef einhver hefur gleymt henni:


    1)   Einkavæðing stofnanna ríkisins (heilsukerfi, skólakerfi, samgöngur, orka o.s.fr)


    2)   Skattleysi hinna ríku (undanskot gerð auðveld í gegnum bókhaldsbrellur)


    3)   Sala náttúruauðlinda (til útvaldra vildarvina -aldrei þess sem býður best)  


    Sem sagt:  Nákvæmlega sama stefna og leiddi þjóðina á braut græðgis-sturlunar og þjóðargjaldþrots.  Meir að segja fyrrverandi menntamálaráðherra, sem fékk afskrifaðar 1700 mijónir  segir að mikilvægasta pólitíska verkefni samtímans sé að koma ríkisstjórninni frá.   Þetta er mjög sérkennilegt í ljósi þess að maður gæti ætlað að fólk færi út í stjórnmál til þess að stuðla að einhverskonar réttlæti eftir því hvernig maður skilgreinir það.  Mér þykir a.m.k ekkert réttlæti í því að ríkt fólk fái afskrifað en venjulegt fólk ekki.  En að er sjálfsagt auðvelt að horfa fram hjá svona smáatriði ef maður er sjálfur í afskriftaklúbbnum. 


    Í eðlilegri hægristefnu myndi það "réttlætismál" að ríkisstjórnin fari frá, verða algerlega magnlaust í samanburði við miljarða-afskriftir þeirra ríku. Þessu er ekki til að fara á Íslandi.  Því miður bjó Sjálfstæðisflokkurinn svo um hnútanna - eftir ákveðinni forskrift - að gróða var hægt að einkavæða, en tapið lenti á landsmönnum öllum.


    -"Djöfulsins snillingar" gæti einhver æpt og slegið sér á lær.


    Sumir gætu sagt að það vanti elementið um að "báknið skuli burt".  Því er til að svara að báknið jókst stórum á valdatíma Sjálfstæðisflokksins og allt tal um annað er reykský sem blásið er upp í annarlegum tilgangi.  Í pólitík gildir að dæma flokka eftir verkum þeirra.  Ekki góðum ásetningi.


    Þar stendur Sjálfstæðisflokkurinn niðrúr.

    Skrifa athugasemd

  • Djöflsins snillingar - 2. hluti - Góðir dílar

    5. janúar 2012

    Eftir 18 ára valdasetu og stanslausa ítroðslu humgynda á borð við "ég á þetta - ég má þetta" og fyrirlitingu á sameignarhugakinu, hefur vaxið upp heil kynslóð sjálfstæðismanna sem halda á lofti skoðunum sem stinga í stúf við það sem kalla má venjulegan samfélagsskiling og eðlilegt siðferði.  Auðvitað eru þetta stór en þau má rökstyðja.


    - býsna vel. 


    Fyrir nokkrum árum var gerð hallarbylting í Heimdalli þar sem fundur var "hertekin" og fólki greitt fyrir að kjósa einhvern umfram annan.  Þetta tókst og engum Sjálfstæðismann fannst nokkuð að þessu.  Þetta var álitið sniðugt og bera vott um útsjónarsemi.  Þess má geta að heilin bakvið þessa "yfirtöku" var einhverskonar siðfræðingur.  Hugmyndin um að fólk komi saman, ræði saman, komist að niðurstöðu var orðin að algeru aukaatriði og féll í skuggan af einhverri refskák sem fáir skilja nema innvígðir.  Plottið er málið.  Ekki venjulegar leikreglur.  Þær eru til þess að brjóta þær, mistúlka og glæða nýju inntaki.


    -Annað dæmi stendur mér nær en þetta hér að ofan.



    Ég gleymi því aldrei þegar ég heyrði enn félaga minn dæsa yfir frétt í útvarpinu þar sem sagt var frá grindhvaladrápi í Færeyjum.  Hneykslunar-andvarpið var þó ekki vegna náttúruverndarástæðna eða þvíumlíkt, heldur vegna þess að þulurinn sagði frá því að bráðinni sem veiddist, væri skipt á milli íbúa eftir ákveðnum reglum.  Kunningi minn horfði út um bílrúðina og sagði lágt en eiturhvasst:


    “Djöfulsins óréttlæti”.


    Til útskýringar vil ég segja að sú hugmynd að auðlindum Færeyinga væri skipt eftir einhverjum réttlætisreglum , var þessum félaga mínum algerlega framandi.  Honum þótt hún ranglát og ljót.  Hugmyndin um að til væri eitthvað sameiginlegt var í huga þessa kunningja míns, ógeðfelt.  Enda er hann skilgetið afkvæmi íslenskrar hægripólitíkur.   "Virkur í flokknum" eins og sagt er.  Ekki láta ykkur dreyma um að þessi ágæti maður sé einn um að vera svona innréttaður.  Heil kynslóð hægri-bolta, lítur svo að sameign sé slæm og beinlínis verði að komast í hendurnar á einhverjum einkaaðila.  Aðila sem oftast er nátengdur Sjálfstæðisflokknum en það er önnur saga og reyfarakenndari. 


    Þessi grindhvala-saga situr í mér og mér óar við þeirri framtið þegar þessi kunningi minn og félagar hans munu ná undirtökunum í Sjálfstæðisflokknum


    -Sem er bara tímaspursmál.

    Skrifa athugasemd

  • Djöfulsins snillingar - 1. hluti - Gull af mönnum

    4. janúar 2012

    Ég hef töluvert mikla samúð með fólki sem eru til hægri í hinu pólitíska litrófi.  Ég segi samúð því að hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins sem má skilgreina sem "ég á þetta - ég má þetta", er ekkert til hægri.  Ég hef samúð með því ágæta fólki sem skilgreinir sig til hægri og var leitt á villibrautir frjálshyggjunnar sem skóp þessa andstyggilegu hugmynd að eignarrétti, fylgi ekkert siðferði..  Hugmyndin um að fólk taki ábyrgð á gerðum sínum, er miklu meira til hægri en lífsspeki hinar ábyrgðarfælnu frjálshyggju.  Ábyrgð er nefnilega eitt af grundvallarstefjum hægri stefnu annars staðar en á Íslandi.. 


    Þið vitið:  Skýrar einfaldar reglur.  Frelsi og ábyrgð


    Kjósendur Sjálfstæðisflokksins létu selja sér hugmyndina að peningarnir væru mælikvarðinn á rétt og rangt.   Nokkuð sem kann að hljóma ótrúlega, en annað eins hefur nú gerst.  Stefnan var ekki sett fram af annarlegum ásetningi nema í undantekningartilfellum.  Flestir trúðu boðskapi Sjálfstæðisflokksins um að farsælast væri fyrir Ísland að láta ríkt fólk vera einskonar lénsherra yfir auðlindum landsins.  Þegar þetta kom í ljós að þetta ríka fólk, hafði veðsett auðlindirnar okkar og keypt sér þyrlur og farið á fyllerí, var sagt að það væri mjög eðlilegt og ekkert út á þetta að setja. 


    Þetta keyptu kjósendur Sjálfstæðisflokksins líka.


    það sem var svo sorglegt við "stefnuna" var að Sjálfstæðisflokknum tókst að selja kjósendum sínum  var mantran að "sá sem á þetta, má þetta" væri eins eðlileg og að dagur komi á eftir nótt.  Þetta átti við um öll svið mannlífsins.  Fé sem borið var á stjórnmálafólk var ekki mútur heldur "framlag til þess að styrkja lýðræðið".  Veðsetning sameignar þjóðarinnar var kallað "að losa um dautt fé".  Pétur Blöndal þingmaður Sjálfstæðisflokksins vann að því myrkrana á milli að hlutafélagavæða sparisjóðakerfið.. Pétri tókst áætlunarverk sitt með þeim afleiðingum að allt kerfið var skafið að innan þannig að ekkert var eftir nema skelin. Skaðinn var óskaplegur fyrir þúsundir Íslendinga.  Eftir því sem ég kemst næst hefur Pétur ekki enn skipt um skoðun og predikar - eins og fyrr - um að "peningar án hirðis", séu skelfilegt ástand.


    Pétur hefur aldrei verið krafin um ábyrgð vegna þessarar ötullegu vinnu sinnar enda yrði það sjálfsagt tilgangslítið.  Eftir því sem ég kemst næst hefur Pétur aldrei rangt fyrir sér og ábyrgðin á hruni sparisjóðakerfisins er víst að finna hjá einhverjum óvinum Sjálfstæðisflokksins.


     Núna er verið að reyna að selja kjósendum þá hugmynd.

    Skrifa athugasemd

  • Slysin gera ekki boð á undan sér

    30. desember 2011

    Ég og Leó vorum að perla í fyrradag. 


    slys

    Skrifa athugasemd