Teitur

Teitur

Teitur býr í Skien sem er lítill bær í Noregi. Hann er hefur BA prófi í trúarbragðafræðum og hefur lokið framhaldsnámi í sölutækni og alþjóðaviðskiptum. Hann er óragur samfélagsgagnrýnandi og áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, náttúrvernd, bifreiðar, málefni flóttafólks á Íslandi og metaltónlist og KISS. Teitur er í 5. Sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður fyrir Alþingiskosningarnar 2013.

  • Skyggnigáfa mín

    28. febrúar 2012

    Þennan pistil skrifaði ég 27. janúar og fékk birtan í Fréttatímanum.  Hérna er bloggið daginn eftir.  Hér fyrir neðan er úrdráttur úr greininni.



    "Maður heyrir nánast mærðarlega yfirlýsinguna. Samt kemur hún ekki fyrr en svona í byrjun mars. Yfirlýsingu á blaðamannafundi á Bessastöðum sem markar hápunkt spennuþrunginnar viku þar sem hver dagur er vandlega hannaður. Yfirlýsingin mun bera öll höfundareinkennin sem við höfum þurft að þola: Talað um sjálfan sig í þriðju persónu; sögulegar skírskotanir í víkingatímann og klisjukenndar og væmnar myndlíkingar; útlönd (og Alþingi) sem óvinur og forsetinn sem eini fulltrúi þjóðarinnar; skreytingar með fjöðrum annarra („Og svo kom Mugison suður og bauð af ísfirsku örlæti allri þjóðinni til Hörpugleði."); uppgerð og tilgerð en aðallega klisjur og klækir".


     


    Þetta rættist allt.   - Ég er skyggn.

    Skrifa athugasemd

  • Snorri Óskarsson

    11. febrúar 2012

    Það hefur verð mjög upplýsandi að fylgjast með umræðu í kringum Snorra Óskarsson kennara vegna skrifa hans á bloggið sem hann heldur úti.  Viðbrögðin við skrifum Snorra voru ofsafengin og í kjölfarið var hann tekinn á teppið í skólanum þar sem hann vinnur.  Snorri óttast uppsögn úr starfi vegna þessa máls.  Þetta voru orðin sem settu fólk úr jafnvægi.


    "Kjarninn í sjónarmiði evangelískra er sá að samkynhneigðin telst vera synd. Syndin erfir ekki Guðs ríkið og því óæskileg. Laun syndarinnar er dauði og því grafalvarleg"


    Það sem er svo himinhrópandi furðulegt við þetta mál allt er að Snorri Óskarsson er einfaldlega að greina frá staðreynd.  Það er staðreynd að evangelistar telja að hómósexualismi sé synd.  Ég vil ekki hugsa þá hugsun til enda þegar staðreyndir verða tabú í samfélaginu.  Þessi afstaða evangelista er öllum heirum kunn. 


    Sennilega á þessi ofsafengnu viðbrögð gegn Snorra Óskarssyni sér rót í þeirri staðreynd að fólk veit ekki neitt um kristindóminn.  Fólk ruglar honum saman við almenna gæsku manna í milli og heilbrigt umburðarlyndi.  Í því samhengi er gaman að geta þess að Guðni Ágústsson sagði einhverntíman á Alþingi að "það væri ekki til neitt siðferði en kristið siðferði". 


    -Fólk ruglar þessu öllu saman.


    Evangelistar eru fleiri en lúterar ef einhver vissi það ekki.  Þessi skoðun á samkynheigðum er því ekki einhver sérkennileg og öfgakennd heldur mikið frekar almenn sé miðað við heildarmyndina.  Katólar, sem er langstærsta kirkjudeildin er á svipaðri skoðun og evangelistar.  -Hómósexualismi er synd. 


    Það væri skelfilegt ef að trúarskoðanir fólks færu að skipta máli þegar kemur að því að meta hæfni þess til vinnu.  Sérstaklega í tillfelli Snorra Óskarssonar, sem er mikið meira "mainstream" en fólk heldur.  Maður getur svo spurt sig hvar sú pæling endar eiginlega?  Hvað með kennara sem leggur traust sitt á kristalla hverskonar og svoleiðs glingur?  Hvað með kennara sem fara reglulega til spámiðla og tala við hina látnu? 


    Ef að Snorri Óskarsson samsamar sér við hugmyndakefi evangelista þá kemur það engum við.  Ef að Snorri Óskarsson greinir frá túlkunum evangelista á tilteknum "vandamálum", þá á hann að fá að gera það án þess að eiga hættu á að missa vinnuna.


    Hérna kemur svo grundvallar atriði sem margir eiga erfitt með að skilja. 


    Þó að ég sé algerlega ósammála Snorra í afstöðunni til samkynhneigðra, þyki skoðanir hans skaðlegar, vondar og ég ber á engan hátt virðingu fyrir þeim, er réttur Snorra til að viðra skoðanir sínar miklu mikilvægari en hvað mér finnst um þær. 

    Skrifa athugasemd

  • ..Fyrir þína peninga.

    9. febrúar 2012

    Aftonbladet hefur verið að fjalla um ofurgróða bankanna hér í Svíþjóð.  Upplýst hefur veirð að gróð bankanna er ekki í neinu samhengi við annað sem gerist í samfélaginu. 


    ab


    Þýðing:  Þau lifa í lúxus fyrir ÞÍNA peninga.  Vextirnir þínir veita þeim miljóna-laun.  Aftonblaðið skoðar lífvenjur fjögurra bankastjóra.....


    Hérna kemur lykilatriði sem gott er að hafa á alveg á hreinu áður en lengra er farið. 


    Gróði bankana kemur frá viðskiptavinum þeirra.  Hann myndast ekki úr einhverjum gufum í loftinu eins og margir halda.  Þegar banki græðir, kemur gróðin frá viðskiptavinum hans.  Arion-banki græddi t.d svo mikið á síðasta ári að hann það var eins og stórnendurnir hafi blygðast sín og endurgreiddu viðskiptavinum (sem stóðu í skilum) 2500 miljónir.  Þetta er skripaleikur. Þetta er eins og eitthvað vildar-vina-punkta-kerfi.


    - Mætti ég biðja um lægri vexti takk fyrir.


    Þegar öll fyrirtæki ganga illa,  - nema bankar - er þar á ferðinni augljóst merki um að vextirnir sem bankarnir rukka, eru of háir.  Fjármálaráðherrra Svíþjóðar hefur bent á vandamálið og er að skoða með aðgerðir.  -Þær munu koma.  Þetta var ekki skrum í herra Borg.  Honum er að því er mér virðist sama um vinsældir. 


     


     

    Skrifa athugasemd

  • Gott skap

    8. febrúar 2012

    Þessi mynd kemur mér alltaf í gott skap.  Þegar Ólafur F varð borgarstjóri voru stjórnmálin orðin absúrd og hætt að vera leiðinleg. 


    Olafur F

    Skrifa athugasemd

  • Skilaboð: Hingað og ekki lengra

    7. febrúar 2012

    Eins og á Íslandi þá eru nokkrir bankar sem eru ráðandi á markaðinum hér í Svíþjóð.  Nýjustu tölur yfir gróða eru yfirgengilegar.  Alveg eins og á Íslandi.  Ofurlaun bankatoppana er mál sem hinn venjulegi "Svenson" hatar eins og pestina. 


    Ólíkt íslendingum, þá fatta Svíar að gróði bankanna kemur ekki úr einhverjum gufum í loftinu heldur frá viðskiptavinum þeirra.  Þessi staðreynd hefur valdið spennu í samfélaginu og almennri reiði gagnvart bönkunum sem bera fyrir sig allskonar útúrsnúningum.


    Anders Borg, sem hefur verið kallaður besti fjármálaráðherra í Evrópu, skilur vel stöðuna sem er uppi og sendi bönkunum skýr skilaboð "Bankarnir sýna ofurhagnað sem grundvallaður er á viðskiptavinum þeirra.  Vextirnir eru of háir - Þetta er ögrandi framkoma".  Þetta eru ekki innantóm orð. Þetta er ekki skrum til þess að auka vinsældir


    -Þessum orðum munu fylgja aðgerðir ef að ekkert gerist.


     


    Óskandi væri að íslenskur fjármálaráðherra væri jafn skorinortur og herra Borg.


    .

    Skrifa athugasemd