-
Að harma umræðu..
30. júní 2010
Anna Skúladóttir, einn af toppunum hjá OR harmar umræðuna um bílafríðindi hennar. Ég harma að hún harmi það. Ég harma að það sé verið að blanda svona rugli inn í launakjör fólks. Ef þetta er hluti af launakjörum hennar, þá ætti bara frekar að hafa þetta einfalt og hækka kaupið hennar í krónum talið en ekki fela kaupið í svona þvælu. En það má auvitað ekki þvi þá sést hið ósanngjarna launabil milli toppanna og venjulegra starfsmanna.
Hvða verður næst. Er hægt að gera samning við opinbert fyrirtæki um að það sjái um afborganir af húsinu manns? Borgi RÚV eða píanótíma hjá krökkunum?
Ömurlegur þessi hrærigrautur með launakjör fólks og enn ömurlegri eru afsakanir á ruglinu. Allt ofurlauna-liðið ekur um frítt. Fólkið sem EINMITT ætti að eiga efni á 8 miljón króna bílum eins og þessi fjármála-Anna.
Svo er athyglisvert að það er eins og það sé samhengi milli lélegrar frammistöðu í starfi og bíla fríðinda. Þeim mun verr sem starfamaður stendur sig, þeim mun flottari bíl fær hann frá fyrirtækinu. Anna hefur beinlínis staðið sig ÖMURLEGA í starfi. Orkuveita Reykjavíkur er ömurlega illa rekið fyriræki og sem fjármálastjóri hefur Anna ábyrð. Hún fær allavega borguð ofurlaun VEGNA ÞESSARA MIKLU ÁBYRGÐAR !!!
OR er tæknilega gjaldþrota fyrirtæki. Þvi var stýrt svo illa af pólitískum flokkshundum að fyrirtækið er ónýtt. Fjármálastjórinn Anna ætti frekar að sjá sóma sinn í því að afþakka bara bílastyrki (enda á hún pottþétt bíl sjálf) og leggjast á árarnar með Reykvíkingum og reyna að bjarga því sem bjarga verður. Annars hlýtur ábyrgð hennar sjálfrar að vera töluvert í þessu fúski með Orkuveituna.
Hún ætti bara að hætta og gerði það ef hún hefði vott af sómatilfinningu.Skrifa athugasemd
-
Fyndið...
29. júní 2010
You can't kill the metal
The metal will live on
Punk-Rock tried to kill the metal
But they failed, as they were smite to the ground
New-wave tried to kill the metal
But they failed, as they were striken down to the ground
Grunge tried to kill the metal Ha,hahahahaha
They failed, as they were thrown to the ground
Aargh! yaow! [x2]
[Singing]
No-one can destroy the metal
The metal will strike you down with a vicious blow
We are the vanquished foes of the metal
We tried to win for why we do not know
New-wave tried to destroy the metal, but the metal had its way
Grunge then tried to dethrone the metal, but metal was in the way
Punk-rock tried to destroy the metal, but metal was much too strong
Techno tried to defile the metal, but techno was proven wrong
Yea!
Metal!
It comes from hell!Skrifa athugasemd
-
-- -- Maradona -- --
29. júní 2010
Mér vitanlega eru bara tveir menn í heiminum sem lifa í heimi goðsögunnar og veruleikans. Nelson Mandela og Diego Maradona. Maradona er samt sympótískari en Mandela því að Maradona er breyskur, gerir mistök og er fjótfær. Mandela er ljós hetja. Maradona er myrk hetja.
Og myrku hetjurnar eru mikið skemmtilegri því þær eru eins og við sjálf.
Maradona tengir saman heim goðsögunnar og heim veruleikans á dáleiðandi hátt. Allt sem hann gerir er svo yfirgengilegt. það er enginn millivegur og viltast rithöfundur gæti varla uppdiktað furðulegri sögu en söguna um Maradona. Besta fótboltamann í heimi. Manninn sem skoraði 2 eftirminnilegustu mörk fótboltans... Í sama leiknum. Fyrra markið með hendinni en það síðara með óumdeildri snilld þar sem hann sólaði upp allt enska landsliðið og geirnegldi sigur yfir hötuðum Englendingunum. Englendingar höfðu þá nýlokið við að hrekja Argentínumenn Falklandseyjum og þessi fótboltaleikur var ekki bara leikur.
Hann var dauðans alvara fyrir Argentínu.
Maradona. Maðurinn sem nánast á eigin spýtur landaði heimsmeistaratitli fyrir Argentínu 1986 og blómstraði sem fótboltamaður hjá Napólí næstu ár á eftir. Einfaldlega besti fótboltamaður sögunnar. Snillingur. Listamaður.
Svo kom fallið.
Offita, dópneysla, furðulegur söngferill, mistækur þjálfari.... Name it. Ruglið var endalaust. Svo kom hin bjargandi hendi og Maradona fékk þjálfarastöðu hjá AFA. Það er alveg svakalega Suður-Amerískt að velja Maradona til að stýra landsliðinu en ekki verður betur séð en að sú ákvörðun hafi verð hár-rétt. Það sem er svo gott við þetta, eftir því sem fróðara fólk en ég heldur fram, er að Mardona tekur alla fjölmiðlaathyglina frá liðinu. Stórstjörninni Messi, Heinze og hinum snillingunum. Þeir spila eins og englar og augljóst að samband Maradona við leikmennina er innilegt og sterkt.
Myndavélarnar elska Maradona og það er frábært að fylgjast með þessum naggi bókstaflega flæða í tilfinningum þegar leikurinn stendur sem hæst. Einn fótboltasérfræðngur sagði mér ansi góða kenningu um hvenrig sniðugir andstæðingar gæti brotið Argentínu á bak aftur. Kenning sem mér þykir líkleg. Hugsum okkur að löglegt mark væri dæmt af Argentínu og hugsum okkur hvernig Maradona myndi bregðast við því. Hann er undir venjulegum kringumstæðum tifandi tímasprengja á hliðarlínunni og sniðugur og slóttugur þjálfari ætti að færa sér þetta í nyt. Ögra honum kerfisbundið og hið óumflýjanlega mun gerast.
Maradona mun sprynga. -Búmm !!
Þegar það gerist mun hann annaðhvort verða leiddur í járnum upp í stúku, öskrandi og froðufellandi. Trylltur eins og köttur í plastpoka, eða hann mun einfaldlega fá hjartastopp og deyja. Það er reyndar í goðsögustílnum og er líklegri lending atburðanna.
....Maradona er lifandi goðsögn og ég fyllist smæð og auðmýkt þegar ég sé þennan risastóra smávaxna mann í sjónvarpinu.
....Já og ég held með Argentínu.Skrifa athugasemd
-
Myndbrot óskast. -FUNDARLAUN !!!
29. júní 2010
Eftir að bloggfærslu mína þar sem ég færi rök fyrir þvi að formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna sé fábjáni, hefur ekki staðið á viðbrögðunum. Ég hef fengið fjöldan allan af tölvuskeytum þar sem Sjálfstæðisfólk frábiður sér öll tengsl við Ólaf Örn Nielsen. Svo rammt kveður af þessu að ég hef meir að segja fengið upplýsingar (ekki nýjar að vísu) um hvernig Ólafur Örn Nielsen varð kosin formaður SUS fyrir nokkrum mánuðum síðan.
Hann beisiklí keypti sér embættið. Enda mega einstaklingarnir allt í arkadíu þeirra Sjálfstæðismanna.
Mér var hinsvegar sagt frá myndbroti þar sem einhver "dólgslegur"(eins og það var orðað) náungi úr Níelsen-klíkunni, beinlínis afhendir fundargestum á Ísafirði fé til þess að kjósa Ólaf Örn Nielsen sem formann SUS.
Ég auglýsi hér með eftir þessu myndbroti og heiti verðlaunum til þess sem sendir mér það á netfangið mitt. teitur.atlason@gmail.comSkrifa athugasemd
-
Ísland í fréttum. -Rétt einn ganginn
28. júní 2010
Um daginn birtist grein í Gautaborgarpóstinum þar sem Ísland bar á góma. Rétt einn ganginn. Ég hef það fyrir reglu að blogga alltaf um það til að sýna löndum mínum og lesendum hvað Ísland er í rauninni stórt. Það líður varla sú vika að ekki sé minnst neitt á Ísland í GP eða í fréttum hér úr Svíþjóð.
Mér finnst þetta bara pínulítið merkilegt og mér finnst þetta vera fréttnæmt.
Þessi blaðagrein varðar útgáfu á íslensk-sænskri orðabók. Rætt er við Håkan Jansson sem vinnur í Gautaborgarháskóla að verkefninu. Svíar borga að miljónirnar í þetta verkefni sem er stýrt frá Reykjavík.
Hérna er blaðsíða 28 í stórri upplausn og hérna er blaðsíða 29
Skrifa athugasemd
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- Næsta »
