-
Ruglið heldur áfram
4. ágúst 2010
Ég hef tekið eftir því að sumum finnst sú ákvörðun Runólfs Ágústssonar að hætta sem umboðsmaður skuldara eftir aðeins einn dag í stafi, vera "aðför" að honum. Ég sá eitthvað blogg þar sem þessum farsi var útskýður að Runólfi hafi verið ýtt út af "bankaelítunni", Agli Helgasyni og einhverjum rógstindátum.
Þetta eru viðbrögð sem ég bjóst satt best að segja við. Farsinn er persónugerður. Þessu er snúið upp á persónur en eins og allir vita þá snýst þetta um mál um prinsipp.
Prinsippið er þetta:
Pólitískar mannaráðningar eiga ekki heima í almennilegri stjórnsýslu. Þær eru stórskaðlegar og ef einhver vissi það ekki. Ein af aðalástæðum hrunsins.
Ráðning Runólfs var pólitísk. Það skiptir engu hvað bífalíngsmaðurinn Árni Árnason segir. Ráðningin var pólitísk. Einungis fábjánar sjá ekki í gegnum það. Í kjölfarið hefur vaknað upp sú spurning hvort hæfur maður (eins og Runólfur sjálfsagt er) eigi að gjalda fyrir það að vera í e-m flokki eða þekkja e-ð fólk.
-Svarið er auðvitað að hann eigi að gjalda fyrir það!!
Það eru nefnilega (og takiði nú vel eftir) meiri hagsmunir að hafa engan vafa í þessu atriði en að hafa skugga pólitísks plottts hangandi yfir. Fyrir utan það að munurinn á þeim besta og næstbesta getur varla verið svo mikill.
Þetta er álíka og ef ráðherra myndi ráða systur sína í eitthvað embætti. Það eru meiri hagsmunir fyrir almenning og stjórnsýsluna að hafa engann vafa á því að ættarvensl spiluðu einhverja rullu í ráðningunni, en að hún gerði það.
-Skil jú? það er betra, alveg sama hvað systirinn er flink, að útiloka þennan vafa.
Þetta mál er ekkert annað en stórsigur fyrir þá sem vilja almennilega stjórnsýslu. HInir sem halda í alvörunni að valdastólar séu beinlínis notaðir til þess að hygla vinum sínum og klíkusystkinum, eru í áfalli.
-Sem er gott
Ég er því miður hand viss um það að Árni Árnason, hefur allt annan skilning á mannaráðningum en þorri almennings. Almenningur telur að sá hæfasti eigi að veljast í starfið og að prófskírteini eigi að vera flokkskírteininu yfirsterkara. En Árni Árnason telur að mannaráðningar séu hluti af valdinu sem hann tímabundið hefur að láni hjá þjóðinni. Að mannaráðningar séu hluti af pólitiskri refskák. Hluti af ávöxtum 20 ára plotts og rassakyssingum upp metorðastigann hjá Samfylkingunni.
-Því miður.
Ég hvet metnaðarfulla blaðamenn þessa lands að rekja ófræingarherferð á hendur einum umsækjanda í starf umboðsmann skuldara því ljóst er að þræðirnir liggja beint inn um skrífstofugluggann hjá bífalíngsmanninum Árna Árnasyni. Sannist þessi tengsl mun Árni segja af sér.
-Nokkuð sem er löngu tímabært.Skrifa athugasemd
-
DV er að rokka.
3. ágúst 2010
Hvar værum við án DV? Blaðið er ekki með forrystu í fréttaflutningi íslenskra fjölmiðla. Þeir eru í allt annari keppni en hinir.
DV er í úrvalsdeildinni. Restin er eitthvað utandeildar snudd.
Bravó DV. Bra-fokkín-vó.
Sjitt hvað ég er stoltur DV bloggari.Skrifa athugasemd
-
Berjum þá.
3. ágúst 2010
Hvernig líður krötum í dag? Getur einhver svarað því? Hvernig líður kjósendum Samfylkingarinnar? Getur einhver sagt mér það?
Er gaman? Erum við stolt?
Hefur eitthvað breysts frá því að Vanhæfa ríkisstjórnin var hrakin frá völdum? Fréttirnar af mannaráðninga-fúski Félagsmálaráðherra Samfylkingarinnar eru ekkert annað en sjokk. Ég er krati, gegnheill og hjartað í mér slær rauðu. Mér blöskrar að Samfylkingin undir forsæti Jóhönnu Sigurðardóttur (af öllum konum!!) skuli ástunda sama mannaráðinga móralinn og fyrri ríkisstjórnir.
Ég minni á að ein af grunn-ástæðum hrunsins var einmitt að óhæfu fólki var troðið í alla pósta í hinu opinbera kerfi.
Það að ráða Runólf Ágústsson sem umboðsmanns skuldara er ekkert annað en sjokk fyrir Samfylkingarfólk. Runólfur þessi hefur helst unnið það sér til frægðar að setja Bifröst á hausinn og að borga ekki 500 miljóna kúlulán sem hann fékk í spilavíti útrásartímans. -Ágætis greining hér hjá Reyni.
500 miljónir. Það er meira en hjón vinna sér inn á heilli starfsævi...
Er þetta grín? Er maður hæfari í djobbið eftir því sem maður skuldar meira. Væri Robert Tchenguiz þá ekki sjálfvalinn í jobbið?
Hinn umsækjandinn er betri og það sjá það allir. Nú er hafin ófræingarherferð sem á rót sína og upphaf í ráðuneyti Árna Árnasonar. -Hafi hann skömm fyrir. Ég hef allavega skömm á bífalíngsmanninum Árna Árnasyni.
Það sem þarf að gera er að bindast samtökum. Við fólkið þurfum að mótmæla þessari ráðningu. Við þurfum að gera það á þann hátt sem virkar best. Við þurfum að láta heyra í okkur. Við þurfum að mótmæla! Skrifa í blöðin og rugga bátnum.
Réttlætið gerist ekki að sjáfu sér. Það þarf alltaf að berjast fyrir því.
Við þurfum að einsetja okkur að fá Árna Árnason af þessari ákvörðun með öllum ráðum tiltækum. Ég hvet lesendur til að gera eins ég. Kaupið spurningu hjá Capacent fyrir næsta miðvikudag! Kaupum spurninguna um hvort samfélagið okkar eigi að láta pólitískar mannaráðningar viðgangast. Spyrjum hvort Samfylkingarfólk sé stolt af Árna Árnasyni og skóveini hans. Spyrjum!!
Finnið einhverja góða spurningu og kýlið á þetta. Vinnustaðir ættu að taka sig til. Skólar ættu að taka sig til og hætta að væla og rífast við sjónvarpið og gera eitthvað í málinu !!!
Við eigum þetta land og við eigum að ráða hvernig því er stjórnað. Ef það þarf að berja stjórnmálamenn til góðrar breytni þá eigum við að berja þá til góðrar breytni.
-Fast.Skrifa athugasemd
-
STOPP - - MARKMIÐINU ER NÁÐ !!!!
3. ágúst 2010
Núna rétt í þessu safnaðist inn síðasti þúsundkallinn í söfnuninni fyrir spurningunni sem ég keypti frá Capacent/Gallup. Söfnin gekk vel. Ég byrjaði að sníkja á vefnum, en sníkti svo af öllum vinum mínum á Fésbókinni.
Það er Markmiðinu er sem sagt náð og ég bíð spenntur eftir reikningum frá Capacent. Hann verður greiddur eins og skot. Annars voru samskipti mín við Capacent til fyrirmyndar. Ég hringdi bara, fékk upplýsingar um verð og tilhögun.
Þetta er einfalt. Á hverjum miðvikudegi fer af stað svokallaður "vagn" með spurningum. Það eina sem maður þarf í raun að gera er að panta sæti með vagninum. Þetta þarf að gerast í allra síðasta lagi deginum áður en vagninn fer af stað. Verð á einni spurningu er nákvæmlega 96.625.-með vsk.
Spurningin má ekki vera bara út í loftið og þarf að vera gerð í samfélagi við spurningameistara Capacent. Ég vildi t.d að spurningin sem ég keypti hljóðaði svo:
"Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að erlendir aðilar geti keypt (endurselt og veðsett) íslenskar náttúruauðlindir"
Capacent mælti ekki með því. Með þessu móti var verið að opna fyrir allskonar gagnrýni og þeir vildu hafa spurninguna eins beisikk og hugsast gat og komu því með tillöguna sem ég samþykkti."Ertu hlynn(ur) því eða andvíg(ur) að erlendir aðilar geti keypt íslenskar náttúruauðlindir?"
Þessi spurning fór í vaginn og niðurstaðan var eins og ég vissi. Langstærsti meirihluti aðspurðra vildu svöruðu nei.
Ég er svolítið svekktur hvað fjölmiðlar sýndu þessu lítinn áhuga en ég plöggaði þessu út um allt. Ég byrjaði að hafa samband við fréttastofu RÚV í sjónvarpinu en þeir vildu ekki nota þetta. Sögðu að síðdegisútvarpmið myndi hafa samand við mig daginn eftir. Sem þau gerðu ekki. DV brást vel við. Sömuleiðis Eyjan. Vísir.is gerði þessu einnig skil. Mér er ekki kunnugt um að aðrir miðlar hafi tekið upp málefnið. Hitt er þó alveg víst að margir hafa lesið niðurstöðu þessarar könnunnar og þá fólk sem einhver vigt er í. þetta var svipað og með Alþýðublaðið í gamla daga. Það var bara 4 síður og upplagið takmarkað en allir sem skiptu máli lásu það spjaldanna á milli.
Ég er því sáttur.
Ég er líka sáttur við alla þá sem studdu þessa söfnun hjá mér og þakka þeim öllum frá dýpstu hjartans rótum. Takk, takk og takk. Mér fannst ekkert kjánalegt að snýkja þúsundkalla frá vinum mínum. Ég borga oft sjálfur í svona safnanir og þegar ég sleppi því þá þarf ég ekkert að útskýra það frekar. Takk samt og aftur takk.
Ég vona að fleiri taki þetta upp og taki virkan þátt í samfélagsumræðunni og ekki síst í samfélagsmótuninni. þegar ég hugsa um það eftirá, að ég, atvinnulaus maður í Gautaborg, í félagi við aðra bloggara, náðum að sprengja þetta Magma-mál upp í meiriháttar krísu fyrir ríkisstjórnina og Magmafólkið. Það sér reyndar ekki fyrir endann á þessu máli en það lítur betur úr nú en áður
Ég líti svo á að þetta mál sé eins og tímavél. Hugsum okkur að við fengjum tækifæri á að stoppa kvótakerfið þegar það að var að fæðast árið 1984. Hugsum okkur það. Að arðurinn af auðlindinni færi til þjóðarinnar allrar, ekki fámenns útgerðaraðals sem hefur spilað rassinn svo úr buxunum að einsdæmi er í veröldinni. Jafnt í fortíð sem framtíð.
Ég hvet alla sem áhuga hafa á samfélagsmálum að skipta sér að. Skrifa bréf. Byrja að blogga, Kaupa kannanir og rugga bátnum!! Ef að ég ætti eftir einn dag ólifaðan og ætti að segja einhverjum eitthvða satt áður en ég dræpist væri þetta það:
Réttlæti næst ALDREI sjálfkrafa. Það þarf ALLTAF að berjast fyrir því. Alveg sama hvaða ríkisstjórn situr í valdastólunum. það þarf ALLTAF að berja yfirvaldið til góðra hluta.
-ALLTAF !!Skrifa athugasemd
-
Til José
3. ágúst 2010
Á skáni er lítill bær sem heitir Ängelholm. Fyrir nokkrum vikum þá vorum við hjónin í smá sumarfríi og keyrðum niður til Malmö frá Gautaborg. Við stoppuðum í Ängelholm til að fá okkur að borða. Á meðan við vorum að rölta og skoða hvað var í boði rambaði ég fram á þetta listaverk.

Ég kannaðist aðeins við konseptið og varð svolítð forvitin. það var ekki fyrr en maður les nafn verksins að það skilst að fullu. Hér er mynd af heiti verksins.
Þetta er því einföld ástarjátning. Gabríela þessi hefur átt í tygjum við José og hann hefur alveg örugglega verið vitlaus í hana. Og hún í hann því þetta listaverk virkar alveg og er skemmtileg blanda af húmor og innileika.
Þetta finnst mér oft vanta með listina. Þegar maður skilur ekkert þá er oft gott að fá vísbendingar sem leiða mann að pælingu listamannsins. Ég gef lítið fyrir útskýringar á borð við "af því bara" og "þetta þarfnast engra útskýringa" og þaðan fram eftir götunum.
Svo er alltaf gaman að spá í því hvort Gabriella Sandin og José eru ennþá saman.Skrifa athugasemd
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- Næsta »
