Teitur

Teitur

Teitur býr í Skien sem er lítill bær í Noregi. Hann er hefur BA prófi í trúarbragðafræðum og hefur lokið framhaldsnámi í sölutækni og alþjóðaviðskiptum. Hann er óragur samfélagsgagnrýnandi og áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, náttúrvernd, bifreiðar, málefni flóttafólks á Íslandi og metaltónlist og KISS. Teitur er í 5. Sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður fyrir Alþingiskosningarnar 2013.

  • Hugheilar jólakveðjur..

    24. desember 2010

    Ég skannaði á dögunum nokkur kort sem tilheyrðu ömmu minni.  Þetta hérna er frá árinu 1913 og mér þykir það afar jólalegt.  Takið eftir hvað jólasveinninn er kostulegur.  Hérna er stór upplausn af þessu jólalega korti.

    Skrifa athugasemd

  • Síðasta sort í VR...

    23. desember 2010

    Eftir hrunið hef ég tekið þátt i umræðum um
    verkalýðsfélagið mitt sem er VR og skipt mér að eins að eins og sagt er.  Ég hef verið stuðningsmaður núverandi
    formanns, Kristins Arnars Jóhannessonar því ég veit að þar fer um völl góður
    drengur, réttsýnn og klár.  Því miður
    hefur afhjúpast samsæri gegn honum sem mun leiða til þess að hann mun láta af
    störfum þann 29. desember næstkomandi. 
    Kristinn hefur verið í þröngri stöðu, beint á milli fólks úr hópi sem
    kenndur er við “Nýtt Ísland” og svo “Skuggana” sem eru hratið frá spilltu
    stjórninni sem var búin að koma því svo fyrir að VR var orðin af einhverskonar
    sjálftöku-klíku sem laut eigin lögmálum.


    Núna hafa “Skuggarnir” beðið nógu lengi og
    hávaðafólkið úr “Nýja Íslandi” æpt sig raddlaus og þann 29. desember næstkomandi
    munu “mistökin” sem fólgin voru í því að hinn almenni félagsmaður hefði
    eitthvað að segja varðandi framtíð og skipulag VR, verða leiðrétt.  Hér er ég að vísa til alvöru orðalags
    sem “Skuggarnir” notuðu eftir að hinn gerspillit Gunnar Páll var hrakin úr
    stöðu formanns VR. 


    Skuggarnir” þurftu bara að bíða í tæp 2 ár og
    þá var óeiningin búin að gera út af við hinar góðu og löngu tímabæru hugmyndir
    um réttlátt VR, orðnar að engu.  Tvö ár
    gott fólk. 


    Það sem “Skuggarnir” gera þann 29. desember er
    alveg makalaust.  Þau ætla að skipa
    Stefán Einar Stefánsson sem formann VR. 
    Sá kallar sig viðskiptasiðfræðing. 
    Hann er þekktastur fyrir því að standa að baki kosningasmölun og víðtæku
    mútukerfi þegar Ólafur Nílesen var kosin formaður SUS.  Það var tiltölulega einfalt plott en mjög
    skilvirkt.  Það var einhver fundur á
    Ísafirði hjá SUS og skyndilega birtust tugir smjörgreiddra Sjálfstæðismanna og
    tóku völdin á fundinum, kusu nýjan formann og flugu svo heim til Reykjavíkur.  Til eru makalausar myndbandstökur af því
    þegar enn smjör-skallinn er að veifa búnti með fimmþúsundköllum sem hann síðan
    afhendir fundartökmönnum.


    Stefán er líka formaður “Varðberg”, félags um
    vestræna samvinnu (NATO-félag) og líka formaður “Biblíufélagsins”.  Hann hefur haldið úti bloggi sem hann eyðir
    öðru hvoru því sumt sem þar er skrifað er alveg á mörkunum eins og amma mín
    hefði sagt.  Þó ber þess að geta að
    Stefán Einar skrifaði um stríðið í Írak að “það
    væri frábrugðið öðrum stríðum, því það væri háð á forsendum mannúðar*”
    . 
    Stefán er blóðugur upp fyrir haus í
    félagsmála-stússi sínu og nýtur takmarkaðrar virðingar þeirra sem til hans
    þekkja.  


    Ég þekki aðeins til Stefáns.  Hann var samtíða mér í guðfræðideild HÍ og
    laug upp á mig allskonar ómerkilegri vitleysu. 
    Þegar ég svo útskrifaðist og fór að vinna hjá EJS sem viðskiptastjóri,
    fóru málin heldur betur að flækjast milli Stefáns Einars og mín.  Hann hafði komist að því að ég var meðlimur í
    Vantrú (nokkuð sem var álitið óhugsandi komandi úr guðfræðideildinni) og réri
    að því öllum árum að viðskiptasamningi Biskupsstofu og EJS  yrði rift vegna þess að ég var trúlaus.  Samhliða hóf hann svo ofsóknir á hendur mér á
    blogginu sínu sem enduðu með því að ég sagði upp starfi mínu hjá EJS því þarna
    voru mín prívatmál að þvælast fyrir hagsmunum fyrirtækisins sem ég vann
    hjá.  Til allrar hamingju var plan B
    komið í gang því að konan mín hafði fengið stöðu í Gautaborg.  Við fluttum út með fjölskylduna seinna um
    veturinn og höfum búið þar síðan.


    Þetta voru erfiðir tímar og ég óska engum þess
    að ganga í gegnum þennan hroða.  Ég hafði
    þó eindregin stuðning minna yfirmanna á EJS sem ég mat mikils jafnvel þótt að
    vélabrögð Stefáns hefðu komið því til leiðar að áralöngum viðskiptasamböndum
    var slitið.  Vinir mínir reyndust mér
    einnig vel sem og fjölskylda og ekki síst konan mín.  Þegar allt var hvað svartast og skýin
    hrúguðust upp yfir mér, tók hún utan um mig og sagði glettinn að það væri
    örugglega skárra að vera trúlaus guðfræðingur en siðlaus siðfræðingur. 


    það eru orð að sönnu.


    -o-o-o-o-

    það kemur mér ekkert á óvart að Ragnar Þór Ingólfsson saki Stefán Einar um lygar.  Mér þætti það reyndar tíðindi ef að Stefán hætti að ljúga ómerkilegum atvkum upp á fólk.  Þessi verðandi formaður VR er síðasta sort.


    * Til eru afrit af öllum skrifum Stefáns Einars.

    Skrifa athugasemd

  • Hallar á Hall.

    16. desember 2010

    Guðlaugur Þór Þórðarson er
    merkilegur fyrir
    margra hluta sakir. En eins og allir vita þá ályktaði landsfundur
    flokksins
    hans Guðlaugs að sá skyldi hætta afskiptum af stjórnmálum.  Þetta er
    eftir
    því sem ég kemst næst, einsdæmi.  Guðlaugur er ekki bara umdeildur innan
    flokksins síns heldur er hann af mörgum talin göldróttur.



    það nægði t.d fyrir hann að taka upp tólið meðan hann lá skaðbrenndur á
    spítala, og hringdi í ákveðin mann (sem nú situr í gæsluvarðhaldi,
    grunaður um
    stórfelldan efnahags-glæp) og það var eins og við manninn mælt.  -30
    miljónir birtust inn á reikningi Sjálfstæðisflokksins.



    Þetta er þó ekki það skuggalegasta við Guðlaug Þór Þórðarson.  Þessi orð viðhafði Guðlaugur Þór ekki fyrir svo alls
    löngu:



    ",Ég setti það viðmið fyrir rúmlega 20 árum þegar ég byrjaði í
    stjórnmálum að þiggja aldrei boðsferðir frá fyrirtækjum og hef staðið
    við það
    og mun að sjálfsögðu gera það áfram," segir Guðlaugur og bætir að hann
    hafi einungis verið að þiggja boð Hauks vinar síns þegar hann ákvað að
    fara með
    í ferðina
    "



    En því miður fyrir Guðlaug.  Haukur vinur hans Leósson, bauð honum í
    laxveiðiferð þar sem drögin voru lögð að ráninu á Orkuveitu
    Reykjavíkur. 
    Sú saga endaði reyndar snautlega fyrir samblástursmennina, en Guðlaugur
    hefur
    aldrei viljað sýna fram að að hann hafi greitt Hauki Leóssyni 500.000
    kallinn. 




    Ég tel nú ljóst að Guðlaugur hafi aldrei borgað þessa ferð.  Það sem
    styður þennan  grun minn er:

    a)  Hann vill ekki sýna fram á millifærsluna

    b) Hann vill ekki segja frá því að hann hafi borgað Hauki með reiðufé
    (væntanlega þá í þykku umslagi)

    c)  Flokksmenn standa saman.  Guðlaugur treystir á þagmælsku Hauks í
    þessu máli.



    Ég tel ljóst að sá hinn sami sem getur sannað að Guðlaugur hafi ekki
    borgað
    Hauki Leóssyni 500.000 kall, getur skreytt skrifstofu sína með
    uppstoppuðu
    höfði Guðlaugs Þórs Þórðarsonar.





    Hann sendi út eitthvað mont-bréf á alla frambjóðendur til stjórnlagaþings þar sem afrek hans gagnvart mér eru tíunduð !!!  Ástæðan er að ég tók út rugling (sjá athugasemdir)þar sem ég ruglaði saman Ólafi Jóhannessyni og Steingrími Hermannsyni og að áeggjan Halls sjálfs, leiðrétti ég missilninginn.

    Þetta afgreiðir hann svona í bréfi til allra frambjóðanda Stjórnlagaþings:



    Nú er ég ekki sérfræðingur í tölvukunnáttu Framsóknarmanna, en er þetta ekki komið gott?  Þetta er nú ekkert brjálæðislega flókið.  Framsóknarmenn virðast freta út einka-tölvuskeytum á alla þjóðina sjálfum sér og vitsmunum sínum til skammar.

    Ég sendi Halli tölvuskeyti og bað hann vinsamlega um að hætta að tjá sig á blogginu minu, enda leiðist mér þeir sem hafa verið að "eltast við mig undanfarið".  Hallur svaraði með skætingi og hafði í hótunum við mig. 

    -Ljóst er að málum tengdum samskiptum í gegnum al-netið hallar á Hall.

    Skrifa athugasemd

  • Stórmerkilegur fræðsluþáttur um Wikileaks.

    12. desember 2010

    Ég var að enda við að horfa á stórmerkilegan fréttaskýringarþátt um Wikileaks.  Ísland fléttast heldur en ekki betur inn í þessa hringiðu og Kristinn Hrafnsson sæmdi sér vel.  Sömuleiðis Birgitta, Smári McCarthy og einn til sem ég man ekki hvað heitir í augnablikinu. Stórmerkilegur þáttur sem sýnir vel að "establismentið" gersamlega hatar þegar fólk veit hvernig það vinnur, hvernig það hugsar og hvernig það bregst við.

    Hvíti engillinn, Julian Assange, á að mínu mati skammt eftir ólifað og ég veit hvernig hann drepst og hvernig almenningur er látin gleyma þessum merkilega Ástrala.

    Hann mun finnast dauður á einhverju hótelherbergi og skýringin verður að hann hafi "kafnað í einhverjum kynlífsleik".  Þessi afsökun er oft notuð.  Ekki fyrir löngu fannst NJÓSNARI í Thames-ánni í ferðatösku.  Dánarorsökin var auðvitað "kynlífsleikur sem fór úr böndunum". 

     - - -Yeah.... Right...

    Kannski er almenningur orðin svo viðbjóðslega heimskur að svona lagað dugar eða kannski eru "vondu" orðnir svo ánægðir með sjálfa sig að þeir telja sig geta komist upp með hvað sem er.  Ég er ekki viss hvað það er, en við eigum að fagna þessum leka og umvefja hann og vernda. 

    það sem er svo ógeðslega fyndið, varðandi viðbrögðin á Íslandi, var að Björn Bjarnason, af öllu fólki var látinn svara fyrir lekann.  Sá var auðvitað alveg í molum yfir þessu og gerði að aðalatriði, lekann sjálfan, en ekki innihald hans.

    Mjög dæmilegt.

    það væri samt gaman að vita hvers vegna blaðamaðurinn valdi eftirlaunaþegan Björn Bjarnason til þess að svara fyrir þetta. Hann er í alvörunni síðasti maðurinn á Íslandi sem ætti að tjá sig efnislega um leka úr bandaríska kerfinu.

    -o-o-o-o-

    Þessi þáttur sannfærir mig enn fekar að nýjir tímar eru í uppsiglingu.  Nýjir og betri tímar.  Leyndarmálin verða dregin fram í dagsljósið og leyndarhyggjan lætur undan upplýsingaskyldunni.

    -Ég held að við lifum á merkilegum tímum.

    Skrifa athugasemd

  • Til þeirra sem málið varðar.

    11. desember 2010

    Vinsamlega sendið upplýsingar um PWC til höfðustöðva PWC í Svíþjóð. 

    Íslensku upplýsingar myndu fella fyrirtækið eins og spilaborg.  Það má í senda sænsku pressunni c.c í leiðinni.  Þessi netföng eru ágæt.. 

    71000@aftonbladet.se

    nyhetstips@gp.se

    caroline.karlsson@gp.se



    Skrifa athugasemd