Teitur

Teitur

Teitur býr í Skien sem er lítill bær í Noregi. Hann er hefur BA prófi í trúarbragðafræðum og hefur lokið framhaldsnámi í sölutækni og alþjóðaviðskiptum. Hann er óragur samfélagsgagnrýnandi og áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, náttúrvernd, bifreiðar, málefni flóttafólks á Íslandi og metaltónlist og KISS. Teitur er í 5. Sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður fyrir Alþingiskosningarnar 2013.

  • Willy Brandt.

    9. janúar 2011

    Einn merkasti stjórnmálamaður 20. aldarinnar var þjóðverji að nafni Willy Brandt.  Hann var kanslari Vestur Þýskalands á árunum 1969 til 1974.  Hann var sósíaldemókrati eins og ég og annað Samfylkingarfólk og naut mikillar virðingar langt fyrir utan Þýskaland og lengst inn í mæri andstæðinga sinna.

    Willy Brandt var "einn af þeim stóru" eins og stundum sagt er um merka stjórnálamenn.

    Ég ætla ekkert að fara frekar í söguna af Willy Brandt en get þess aðeins að hann sagði af sér í kjölfar þess að njósnari var uppgötvaður meðan aðstoðarmanna hans.  Takið eftir að HANN sagði af sér vegna þessa.  Flestir stjórnmálamenn íslenskir sem ég þekki til, hefðu hangið í embættinu en það er önnur daga og dapurlegri.

    Það er ágætt að hugsa aðeins til hvað gerir stjórnmálamenn "stóra".  Er það stjórnviskan?  Er það framsýnin, eða er það kannski mennskan?  Gæti það verið sú staðreynd að stundum felst stærðin í auðmýktinni? 

    Ein af eftirminnilegustu ljósmyndum síðustu aldar er einmitt af Willy Brandt.  Hann var þá kanslari Vestur Þýskalands og var í opinberri heimsókn til Varsjá.  Þetta var söguleg heimsókn því að engin þjóð hafði verið eins illa leikin af nasistum og Pólverjar.  Heimsóknin var hluti af því sem kallað var "ostpolitik" og var helsta kennimerki á pólitískum ferli Brandts.  Í Varsjá var gert ráð fyrir að Brandt færði blómsveig að minnismerkinu um gyðinga uppreisnina í borginni árið 27 árum áður. 

    Andrúmsloftið var tilfinningaþrungið við minnismerkið því Pólland hafði verið rifið í tætlur af Þjóðverjum og 9 af hverjum 10 gyðingum í landinu verið drepnir.  Glæpirnir voru einir þeir verstu í mannkynssögunni. 

    Þarna var Brandt og átti að leggja einhvern blómsveig.  Öllum að óvörum, aðstoðarfólki sínu, öryggisvörðum og árvökulum pólskum hermönnum,  bandaði Willy Brandt frá sér blómaskreytingunni og lét einhvern fá ræðupunktana sem hann hafði tilbúna.

    Hann gekk fram alvarlegur í fasi og kraup á kné.

    -Og þagði.

    Þagði bara.  Sagði ekki neitt.  Ekki orð.  -Á hnjánum.



    Stundum eru orðin gagnslaus sama hvernig þau eru valin. Stundum útskýrir þögnin betur heldur en orð.  Þannig var það árið 1970 í Varsjá þegar kanslari Vestur Þýskalands kraup á kné fyrir framan minnismerkið um gyðingauppreisnina í Varsjá 1943.

    -o-o-o-o-o-

    Þessi saga um Willy Brandt í Varsjá hefur alltaf heillað mig.  Þarna varð stjórnmálamaður stór með því að fara á hnén.  Þetta var einhver tilraun til uppgjörs við nasismann og eftir þessu var tekið um allan heim.  Fyrsta veturinn minn hérna í Gautaborg, vann ég með Pólverja þegar ég var í flökuninni og ég spurði hann einu sinni út í þessa ljósmynd.  -Hvort hann myndi eftir þessu.  Jú. hann mundi.  Hann sagði að þetta andartak hefði verið svona "hvar-varst-þú-þegar-Kenedy-var-skotin-andartak" meðal pólskra. Pólverjinn sagði að margir hefðu grátið þegar þeir sáu kanslara Vestur Þýskalands krjúpa á kné við minnismerkið.  -Þetta var stór stund sveipuð auðmýkt og einlægri iðrun.

    -o-o-o-o-

    Þegar ég var að leita að þessari ljósmynd á netinu, sá ég nokkrar myndir af Willy Brandt sem sýna hann í öðru ljósi en því sem ég hef alltaf séð hann fyrir mér.  -Þetta var flottur náungi og sennilega stór-reykingamaður.





    -o-o-o-o-o-o-

    Það er gaman að geta þess að í Stokkhólmi er lítill almenningsgarður sem ber nafn Willys og er tileiknaður honum.  Willy Brandt bjó nefnilega í Stokkhólmi á stríðsárunum sem flóttamaður.  Í þessum garði er feykilega flott stytta af Willy Brandt eftir listamanninn Rainer Fetting.



    Willy Brandt er góð fyrirmynd allra sósíaldemókrata um allan heim.  Ekki síst á Íslandi þar sem virkilega er þörf á "stóru" stjórnmálafólki.  Fólki sem lyftir sér upp yfir þrasið með skýra og einbeitta sín á framtíðina. Fólk sem hefur viljan til að bæta og hugrekki til að taka slaginn við hagsmunaklíkurnar.

    Skrifa athugasemd

  • Mósedóttir og "draumastaðan".

    9. janúar 2011

    LIlja Mósesdóttir er á móti þessum ágætu stefnumálum ríkisstjórnarinnar, um "sóknaráætlum fyrir Ísland".

    Hérna eru punktarnir sem að Mósesdóttir er á móti. 

    1. Að minnka hlutfall örorkulífeyrisþega af íbúafjölda úr 8,4% í 7,0% árið 2020.  

    2. Að lækka hlutfall atvinnulausra (> 12 mán.) niður fyrir 3% árið 2020.   

    3. Að auka jöfnuð á Ísland með lækkun Gini stuðuls fyrir ráðstöfunartekjur í um 25 árið 2020.   

    4. Að bæta stöðu jafnréttismála þannig að gildi jafnréttisvísitölunnar global gender gap index  verði nálægt 0,9 árið 2020.   

    5. Að auka vellíðan og góða andlega heilsu þannig að meðaltal
    mælinga, samkvæmt WHO 5 kvarðanum hækki úr 64 árið 2009 í 72 árið
    2020.   

    6. Að hlutfall Íslendinga á aldrinum 20‐66 ára sem ekki hafa hlotið
    formlega framhaldsmenntun fari úr 30% niður í 10% árið 2020.   

    7. Að 4% af landsframleiðslu sé varið til rannsókna, þróunar og
    nýsköpunar og að hlutfall framlags fyrirtækja í samkeppnissjóði og
    markáætlanir sé 70% á móti 30% framlagi ríkisins.  

    8. Að Ísland verði meðal 10 efstu þjóða árið 2020 í rafrænni
    stjórnsýsluvísitölu og rafrænni þátttökuvísitölu sem mæld er af
    Sameinuðu þjóðunum.  

    9. Að hátækniiðnaður skapi 10% af landsframleiðslu og 15% af útflutningsverðmætum árið 2020.  

    10. Að notkun vistvæns eldsneytis í sjávarútvegi verði a.m.k 20% árið 2020 og að 20% alls eldsneytis í samgöngum verði vistvænt.

    11. Að Ísland taki að sér sambærilegar skuldbindingar og ríki Evrópu gagnvart loftslagssamningi Sameinuðu þjóðanna árið 2020.  

    12. Að vistvæn nýsköpun og afurðir hennar verði helsta vaxtargreinin
    næsta áratug, með 20% árlegan vöxt í veltu sem tvöfaldist fyrir 2015,
    miðað við 2011.  

    13. Að árið 2020 gangi 75% nýrra bifreiða, undir fimm tonnum að þyngd, fyrir vistvænu eldsneyti.  

    14. Að hlutfall innlendrar matvöru í neyslu landsmanna aukist um 10% fyrir árið 2020.  

    15. Árið 2020 verði færni íslenskra grunnskólanemenda sambærileg við
    10 efstu þjóðir samkvæmt OECD PISA rannsókninni á lesskilningi og læsi á
    stærðfræði og raungreinar.

    =

    =

    =

    =

    Allt mjög góð markmið.

    En vitið þið afhverju Mósesdóttir er á móti þessu?  -Hún segir þetta "aðlögun" að ESB.!!!

    -Þetta er moðreykur af verstu sort.

    Lilja Mósesdóttir veit vel að ÞAÐ VERÐUR KOSIÐ UM ESB.  Ætlar einhver ófullur að segja mér að Mósesdóttir sé á móti lýðræðislegri niðurstöðu úr þjóðaratkvæðagreiðslu !!!

    -Getur það verið?

    Getur verið að Lilja þrái "draumastöðuna" eins og framtíðarsýn vilta vinstrisins í VG genngur út á?  Þið vitið; 

    Sjálfstæðisflokkur í stjórn og VG öskrandi (um óréttlætið) á hliðarlínunni.

    Þetta er nefnilega þægileg innivinna og það besta er.....

    .......enginn ábyrgð.

    ..........bara sterk raddbönd.

    Skrifa athugasemd

  • Trix.

    8. janúar 2011

    Ég var í heimsókn hjá vinafólki á Skáni um síðustu helgi.  Það var ánægjuleg ferð í alla staði.  Ekki skemmdi fyrir að húsfreyjan átti poka af Trix-i sem er morgunkorn sem fæst bara í Bandaríkjum Norður Ameríku

    Þegar ég var krakki, fékkst Trix í búðunum og þótti ekkert forboðið eða þvíumlíkt.  Þetta var samt ákveðin lúxsus og Amma og Afi á Túngötunni vissu það upp á hár, og það var alltaf til pakki af Trixi þegar við bræðurnir gistum.

    Hérna má sjá mynd af mér ný-vöknuðum með forboðna-morgunkornið í skál. (ég er í "search and destroy"-bolnum mínum sem var mér þykir alltaf svolítið yfirgengilegur.  -Af tegundinni Fuckt ef einhver hefur áhuga á merkjavörum)



    Hérna má sjá dýrðina í nærmynd.  "Þeir" eru auðvitað búnir að breyta uppskriftinni eins og með alla góða hluti.  Núna er hver kúla tvílit.  Ég fullyrði þó að bragðið er hið sama.



    Leó sonur minn fékk líka að smakka. Ekki er hægt að segja að drengurinn hafi verið drýldinn meðan á átinu stóð.

    Skrifa athugasemd

  • SAAB 9-5

    8. janúar 2011

    Ég sá loksins nýja SAAB-inn á dögunum.  Þetta er bíllinn sem á að bjarga fyrirtækinu og miðað við útlitið, ætti það að takast.  Þetta er einfaldlega flottasti millistærðar sedaninn á markaðinum.  Glæsileg sænsk hönnum, sérviskuleg með svissinn milli framsætanna.










    Skrifa athugasemd

  • Vinstrið vs. Hægrið

    8. janúar 2011

    Það er ekkert hlaupið að því að greina munin á hægri stefnu og vinstri stefnu.  Til þess þarf að mínu mati allnokkur dæmi eða dæmisögur.  Ég gæti notast við orðaleppa eins og að í hægristefnu er áherslan öll á einstaklinginn meðan áherslan sé á samfélagið í vinstri stefnu.  Þetta er nærri lagi, en algerlega ófullnægjandi eigi að síður.  Málið er flóknara en svo.

    Það er hinsvegar sláandi að bera saman fyrirmyndir hægri manna annarsvegar og fyrirmyndir vinstri manna hinsvegar.

    Hægrið "á" Margréti Thatcher og Pinochet......

    en vinstrið "á" Tage Erlander og Willy Brandt



    Skrifa athugasemd