Teitur

Teitur

Teitur býr í Skien sem er lítill bær í Noregi. Hann er hefur BA prófi í trúarbragðafræðum og hefur lokið framhaldsnámi í sölutækni og alþjóðaviðskiptum. Hann er óragur samfélagsgagnrýnandi og áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, náttúrvernd, bifreiðar, málefni flóttafólks á Íslandi og metaltónlist og KISS. Teitur er í 5. Sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður fyrir Alþingiskosningarnar 2013.

Verðtryggingar-skrum

20. febrúar 2013 › 10:33

Í bók Milan Kundera er óborganleg lýsing á því þegar félagsskapur lækna fór inn í stríðshrjáð svæði til að hjálpa fólki.  Hugmyndin var í byrjun mjög einföld. - Förum inn og hjálpum þessu fólki.  Þegar á leið stækkaði hugmyndin og tók mið af veruleikanum svo langt sem hann náði.  Það var talið nauðsynlegt að hafa með i för ljósmyndara og blaðamenn.  Þegar það svo spurðist út gekk til liðs við hópinn heimsfræg kvikmyndastjarna.  Þetta leit vel út og hópurinn taldi ljóst að hægt væri að ljúka upp augum heimsins gagnvart þeim hörmungum sem áttu sér stað á þessu skelfilega svæði.


En leikar fóru á annan veg.


Deilur skuku fljótlega hópinn og þegar á hólminn var komin var mórallinn við frostmark.  Vesen með aðföng og leyfi voru ekki á hverju strái og hópurinn varð "strand" einversstaðar þar sem innfæddir hermenn áttuð sig engan vegin á hvaða þetta hvíta fólk væri eiginlega að gera þarna.  Leikar fóru þannig að engum var hjálpað en innbyrðis slagsmál og skærur drápu þessa ágætu hugmynd.  Það eina sem kom út úr þessu var að kvikmyndastjarnan sá sér leik á borði og lét taka mynd af sér með blóðugan fána þar sem hún hnyklaði brýrnar.  Með vindinn í fangið, samanherptar varir og þvermóðskufullt blik í augum.


Myndin endaði á forsíðu Time Magazine en umfjöllunin var ekki um hörmungarnar heldur göfuglyndi kvikmyndastjarnanna í Hollívúdd..


Þetta er að gerast akkúrat núna á Íslandi. Mikilvægt mál er að vera leiksoppur ágætis fólks sem getur ekki komið sér saman um neitt.  Inn á milli eru svo lukkuriddara sem eru góðir í að öskra einhver slagorð og ná athygli fjölmiðla.  Ég er að tala um verðtrygginguna.


Ég er orðin svo gamall að ég man alveg eftir "verðbólguárunum" og því djöfulsins rugli.  Ég man líka hvernig sá vítahringur sífelldra gengisfellinga og vöruhækkana var rofin.  það var komið á því sem kallað var "þjóðarsátt" og hluti haf henni var verðtryggingin.  


Verðtrygging er ekki einhver vera með gul augu og grænt hár sem lokuð er inn í hvelfingu í Seðlabankanum.  Ekki láta telja ykkur trú um að lausnin á vanda okkar Íslendinga sé að farga þessari veru.  


- - - - Verðtrygging er ákveðin tegund af því að reikna út vexti - - - - 


-Punktur.


- Ekkert flókið, ekkert "evil shceme", engir púkar og engar særingar. Verðtrygging er þegar einhver upphæð er tryggð gegn áhrifum verðbólgu.   Verðtrygging er þegar maður leggur inn kýrverð, bíður í 10 ár og fær til baka kýrverð plús einhverja vexti.  


það er beinlínis grátlegt þegar horft er upp á málsmetandi fólk tala um verðtrygginguna eins og hún væri andsetin vera sem þyrfti að reka í gegn með silfurfleyg vættum í hvítlauk.  Svo er öskrað "Hversvegna hefur ríkisstjórnin ekki gengið í það verkefni að láta smiða silfurfleyga?  -OG HVAR ER HVÍTLAUKURINN !! "  


Þau sem láta svona eru allskonar málsmetandi fólk. Hagfræðingar.  Verkalýðsrekendur.  Stjórnmálamenn.  Allskonar fólk sem eiga ekkert sameiginlegt nema þá undarlegu þörf að vera eiginlega alveg saman hvaða eldiviður er notaður til þess að lýsa upp eigin ásjónu.


Nú verð ég að taka fram áður en lengra er haldið að ég er enginn sérstakur málsvari verðtryggingarinnar og er "fórnarlamb" hennar eins og hver annar.  Lánið okkar hjóna hefur hækkað úr 15 miljónum í 21 milljón á 5 árum.   Við borgum alltaf á réttum tíma en lánið hækkar og hækkar.  Er þetta gaman gæti einhver spurt.  "HELL NO!"  myndi svarið verða frá mínum ranni. 


Hérna er veruleikinn og takið þið vel eftir.  


Hvernig er hægt að ætlast til þess að lánveitandi (bankar, lífeyrissjóðir) muni yfir höfuð lána nokkurn skapaðan hlut, ef þeir eru ekki nokkurn veginn vissir um að fá peningana til baka með vöxtum?  Myndir þú lesandi góður lána eina miljón í 20 til 40 ár í þeim skugga að þú fáir virkilega ekki alla peningana til baka?  Svarið er nei.  Í því umhverfi sem íslenskt efnahagslíf býr við (verðbólga - stöðug hætta á gengisfellingu - gjaldeyrishöft o.s.fr) er einfaldlega útilokað að hægt sé að stunda lánastarfsemi án þess að einhverjar verðbólgu-varnir séu til staðar.


Það sem ég er að segja að það er til annað hugtak  yfir "Verðtryggingu" og það er "Breytilegir vextir". 


Ég þarf stundum að bíta mig í tunguna eða ástunda aðra tegund sjálfs-meiðinga þegar ég hlusta á hagfræðinga tjá sig um þetta mikilvæga mál eins og það snérist um að drepa eitthvað dýr í kjallaranum í Seðlabankanum.  


 


- o - o - o -    eftirfarandi samræður heyrðust á Dylgunni um daginn    - o - o - o -


Hagfræðingur A. (frekar æstur) Það þarf að koma þjóðinni út úr þessari meinsemd sem verðtryggingin er.  Það þarf bara að mæta með lið niðrí Seðlabanka, loka öllum útgöngum og leita uppi dýrið og drepa það með silfurlfeygum.


Hagfræðingur B:  (rólega og yfirvegað) ...og ekki má gleyma hvítlaukum.


- o - o - o -


 


Í Svíþjóð er ekki verðtrygging.  Þar geisaði bankakeppa á níunda áratug síðustu aldar (Ástæðan:  Gráðugt ríkt fólk) Þar eru breytilegir vextir á öllum húsnæðislánum.  Lán megin þorra harðduglegra Svía hækkuðu um því sem nam gengisfellingunni á sænsku krónunni.  Var þetta gaman?  Nei.  Var þetta fyrirsjáanlegt?  .  Svona virka breytilegir vextir. Þeir tryggja lánveitendann fyrir áföllum.  Þetta jafnaði sig reyndar á nokkrum (sársaukafullum) mánuðum.


Hérna er sannleikurinn óþveginn, ósmurður og blautur sem tuska. 


Ef að verðtrygging verður "bönnuð", mun eitthvað áþekkt fyrirbæri koma strax í staðinn. -Um leið. -Eins og skot.  -Annað er útilokað.  


Ástæðan er að við erum með gjaldmiðil sem er svo lítill að undrum sætir.  Gjaldmiðillinn er gjaldgengur í 320.000 manna samfélagi.  Það er svipað og af Aarhus væri með sér gjaldmiðil. - Seðlabanka. - Peningastefnu. - Vexti. - Verðbólgu.


það er svo sem ekkert flókið að ímynda sér að lítill hópur geti ekki haft sína eign mynt sín á milli. Það er vel hægt. En málin flækjast býsna mikið þegar kemur að viðskiptum við aðrar þjóðir.  það þýðir ekkert að kaupa 100 tonn af olíu og borga í Aarhus-krónum.  Það yrði hlegið að þér alla leið út á stétt.


það er meir að segja ennþá ólíklegra að koma með íslenskar krónur og reyna að borga 100 tonn af olíu með  þeim  það er alla vega vita fyrirfram að íslenska krónan fellur stöðugt (en á mismunandi hraða þó).  Það er líka vitað að hún er viðkvæm fyrir allskonar sveiflum, bæði frá útlöndum og frá heimavelli.  Gott og vel...  Hvað er til ráða?  jú.  það er fundinn banki sem tekur sjensinn á að íslenskum krónum í alvöru mynt.  En hvað haldið þið....  Bankinn tekur auðvitað mikllu hærri vexti fyrir að taka við þessum eldfima gjaldmiðli... Hann veit af áhættunni...


Bankinn segir: "Ég skal taka við þessum ónýtu krónum þínum en þú þarft að borga svo og svo mikla vexti fyri það."  Þannig fáum við 100 tonn af olíu en það þarf alltaf að selja hana töluvert dýrara en eðlilegt er, því að það er innbyggður verðbólguþrýstingur á hana (vegna kostnaðar við lántökuna) 


Þetta dæmi er reyndar ekki alveg svona einfalt því Ísland notar Seðlabankann sem millilið og svo er um að ræða ríkisskuldabréf.  Að öðru leyti er sviðsmyndin sem ég varpa fram hin sama.  Það verður sem sagt ALLTAF - og ég endurtek ALLTAF - verðbólga þar sem örmynt eins og íslenska krónan er notuð.  


Þar sem er stöðug og viðvarandi há verðbólga er alltaf erfitt að lána peninga til lengri tíma.  Lán til húsnæðiskaupa eru því annað hvort með fasta mjög háa vexti eða með breytilega vexti (sem er annað orð á verðtryggingu) 


Ekki ímynda ykkur eitt andartak að lánveitendur muni lána fé í þeirri vissu að þeir munu aðeins frá brot af því til baka.  Það er útilokað.  -Alveg sama hvað öskrað er hátt.


Hafandi sagt þetta er ekki þar með sagt að eitthvað sé hægt að gera í þessari stöðu.  Ég held að möguleikarnir séu samt þröngir en þeir eru þessir helstir.


1:  Viðvarandi ástand. -Ekkert gert.  -Óbreytt ástand


2:  Verðtrygging "bönnuð" eða vaxtaþak sett á útlán: -Verðbólga (sama ástand og fyrir þjóðarsáttina)


3:  Upptaka annars gjaldmiðils.  -Erfitt að segja til um hvað gerist en sennilega verða allar breytingar til góðs.  Líklegast er það Evra.  Það myndi gerast í samstarfi við Evrópska seðlabankann og við í skjóli frá honum meðan á umskiptingunni stendur.  Einhliða upptaka annars gjaldmiðils væri mjög skrýtin í þessu samhengi.  


Hérna kemur að sérstöðu Samfylkingarinnar í þessum krónu-kór.  Samfylkingin talar býsna skýrt hvað þetta varðar og vill taka upp Evru.  Þarna er ég ánægður með formanninn því hann hefur alltaf talað fyrir þessu og varað við skrumi.   Þið ættuð að heyra í honum þegar hann fer af stað.  


Smæð krónunnar og verðbólgubölvunin sem henni fylgir er svo alvarleg að meir að segja góðar hugmyndir og nýsköpun kafna í þessu andrúmslofti.  Góðar viðskiptahugmyndir og sprotafyrirtæki þurfa að vera svo brjálæðislega góð því eigi þær að komast yfir hefðbundna þröskulda þarf líka að fara yfir þröskuldin sem fylgir því að aðgangur að lánsfé er miklu dýrari á  Íslandi en annarsstaðar. 


Verðtryggingin er hluti af stærra vandamáli sem er smæð myntarinnar.   Það að gera hana að kosningamáli er lýðskrum af verstu sort.   Verðtryggingin er vandamál sem á sér rót í öðru vandamáli. Að kenna verðtryggingunni um er eins og að taka bíl-lyklana af konu sem hefur þann sið að keyra alltaf full, sé einhver lausn.


Vandamálið er drykkjan.  Ekki að hún keyri alltaf full.


Nú væri óskandi að ræða hvaða leiðir eru í boði til að leysa þetta böl í stað þess að æpa einhverja tilfinningaþrungna  vitleysu.  Það er svo auðvelt að æpa og glenna sig fyrir framan míkrafón.  Það er jafn auðvelt og það er óheiðarlegt.  Rétt eins og kvikmyndastjarnan í bókinni hans Milan Kundera sýnir, er vel hægt að klúðra góðum málstað með athyglisþörf og galgopahætti.


Ég vildi óska þess að þetta mikilvæga mál verði ekki skrum skrímslinu að bráð. 


 


 .



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.