Teitur

Teitur

Teitur býr í Skien sem er lítill bær í Noregi. Hann er hefur BA prófi í trúarbragðafræðum og hefur lokið framhaldsnámi í sölutækni og alþjóðaviðskiptum. Hann er óragur samfélagsgagnrýnandi og áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, náttúrvernd, bifreiðar, málefni flóttafólks á Íslandi og metaltónlist og KISS. Teitur er í 5. Sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður fyrir Alþingiskosningarnar 2013.

Réttarhöld vegna upprifjunar á Kögunarmálinu

8. ágúst 2012 › 08:52

Núna eru málin loksins að skýrast í meiðyrðamáli Gunnlaugs M. Sigmundssonar gegn mér.  það verður réttað í því þann 5. september næstkomandi.  Margir sem ég hef talað við reka í rogastans þegar ég segi þeim þetta, flestir standa í þeirri trú að fallið hafi verið frá þessari kæru.  Svo er því miður ekki.  Það sem datt út var skaðabótakrafa Gunnlaugs og konu hans í minn garð. 


það var ansi há upphæð.  Var sikabát ein og hálf árslaun fyrir mig


Þegar skaðabótarkrafan fauk, var eins og fargi hafi verið létt af mér.  Þá er "worst case senarió" ekki lengur að missa íbúðina, heldur eins og að klessa bílinn rækilega. 


Stórmunur á þessu.


Ég hef reyndar boðið Gunnlaugi sáttatilboð sem ég ítrekaði síðast fyrir nokkrum vikum.  Það er fólgið í því að við veljum okkur verðugt málefni sem við styðjum um sitthvor mánaðalaunin og göngum báðir frá borðinu með einhverri yfirlýsingu þar sem við hörmum hvernig þetta hefur þróast altsaman. 


Þessu ágæta tilboði var hafnað jafnharðan. 


Mér finnst þetta mál hafa gengið alltof langt.  Þetta hefur kostað mig um það bil miljón hingað til og sú tala mun hækka eftir því sem á líður.   Héðan í frá er samt hálf marklaust að bjóða fram sátt í málinu.  Ég treysti frekar á að verjast og vinna.


Samhliða þessu máli hefur fólk stutt mig með ráðum og dáðum.  Ég hef fengið hundruðir tölvupósta og óteljandi símtöl vegna þessa máls og finn fyrir eingdregnum stuðningi úr öllum áttum.  Ég stofnaði söfnunarreikning til þess að standa straum af lögfræðikostnaði og margir hafa stutt mig peningalega í þessu stússi.  Það skiptir alveg ótrúlega miklu máli. Endurskoðunarskrifstofan  BDO sér um utanumhald á þessari söfnun. 


Þess má geta að frá því að málið hófst hefur Gunnlaugur bætt við einni setningu við stefnuna og blaðagrein eftir Guðmund Andra Thorsson og skrýtla eftir Henrý Þór voru að auki lögð fram sem gögn í málinu gegn mér.  Nú þarf ég varla að taka fram að ég hef ekkert vald hvað annað fólk skrifar eða hvernig myndir það teiknar og mig barasta skortir gáfur til að botna í þessu útspili.


 Ég lít á þetta mál sem mikið stærra en eitthvert meiðyrðamál. Ég sé þetta fyrir mér sem prófsteinn á það hvort það sé lagalega mögulegt að gera upp það hörmungartímabil í Íslandssögunni þegar flokksgæðingar Framsóknar -og Sjálfstæðisflokks, sölsuðu undir sig eigur ríkisins eftir kerfi sem kallað var "helmingaskiptareglan". Ef að tappi verður settur skoðun á þessum hörmungartíma, eigum við ekki von á góðu.  Ef einhver heldur að Kögunarmálið sé eitthvað sérstakt ætti viðkomandi að vera bent á að kynna sér söluna á SR-mjöl....  Eða söluna á Sementsverskmiðju ríkisins.....  Eða söluna á hlut ríkisins í Íslenskum aðalverktökum.....  Eða söluna á Búnaðarbankanum.....  Eða söluna á Landsbankanum.  


Verður það virkilega svo að söguskoðun þeirra sem högnuðust á ofantöldum einkavæðingum, verði sú eina sem leyfilegt verður að halda í frammi?


Ég er ekki lengur hræddur við niðurstöðu þessa máls og það þýðir ekkert að hræða mig.


 ---
stuðningur
---


.



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.