Einu sinni þá var viðtal við Jórunni Frímannsdóttir í sjónvarpinu, þar sem hún varð kjaftstopp þegar hún var spurð hversvegna styrkur til fátækra barnafjölskyldna væri lægstur í Reykjavík. Þessi frétt birtist í 10 fréttum hjá RUV en var svo hent því hún þótti "óþægileg" fyrir Jórunni Frímannsdóttur og "að framsetningin hafi ekki staðist"
Ég bloggaði um þetta tafs hjá Jórunni og sagði m.a.
Nú veit ég ekki hvort Óðinn horfi mikið á fréttatíma annara stöðva. En
hitt veit ég að bæði í danska sjónvarpinu og því sænska eru svona móment
eins og Óðinn ritskoðar og hendir, álitin styrkja fréttina
sem um ræðir. Þegar svona gerist, þá er iðulega gerð grein fyrir því.
"mistökin" eru sýnt, viðmælandinn er sýndur biðja um endurtekningu og
svo er "rétta" fréttin látin rúlla.
Svona andartak var einmitt í fréttunum á fjarkanum í fyrradag. Það var verið að taka viðtal við Karínu nokkra Ericsson sem er ábyrg fyrir s,k jobbcoach verkefni hjá sænsku vinnumálastofnuninni. Þar var hún spurð hvort hún þekkti til s.k NLP aðferðar sem nokkrir af skjólstæðingum hennar (jobb-coachar) nota.
Karin tafsar lítið eitt en segir svo "Nei, hér stoppum við, ég veit ekkert um þetta NLP. -Þetta kann ég ekki. -Þetta veit ég ekki".
Með þessari aðferð (að láta tafsið halda sér) styrkist fréttin ennþá frekar í þá átt að Karin Ericsson vissi akkúrat ekkert um það hvernig sumir Jobb coachar vinna.
-Fréttin verður sterkari.
Eins og ég sagði í blogginu við tafs Jórunnar Frímannsdóttur, þá er þessi aðferð oft notuð í sænska sjónvarpinu. Ég tók bara sérstaklega eftir þessu í frétt Karínar, þar sem ég fékk svona jobb coach (sem var frábær og ekkert í NLP)
Í tilfelli Jórunnar var fréttin í raun sú
að formaður velferðarráðs Reykjavíkur varð kjaftstopp og þvaðraði eitthvað um að "hjálparstofnanir væru yndislegar" þegar ljóst var að hún væri ekki að standa sig í stykkinu gangvart þurfandi fólki.
Ég hvet sjónvarpsstöðvarnar að taka þessa aðferð upp. Í fyrsta lagi er hún heiðarleg gagnvart áhorfandanum, enda er "fegrun" á fréttum í besta falli ruddaleg, og í öðru lagi er þessi tækni sterk og svínvirkar til að vekja athygli á einhverju. Auðvitað á þetta ekki við þegar fólk mismælir sig eða eitthvað í þá áttina, en þegar viðmælandi verður kjaftstopp vegna einhverrar spurningar, er það sannarlega fréttnæmt. Mér dettur í hug öll andartökin sem við fengum ekki að sjá þegar t.d Geir Haarde neitar að svara ofureðlilegum spurningum og spólar sjálfan sig upp það að rífast við fréttamanninn. Svo eru öll hin skiptin sem við fáum aldrei að vita neitt um. Ég er sannfærður að ef að annar standard væri á fréttaflutningi á Íslandi, værum við í betri málum sem þjóð.
Hérna er linkurinn á sænsku fréttina. Fréttin sjálf byrjar 04:56 og atvikið á sér stað frá 07:35 til 07:53
.
Blogg
"Ófegraðar" sjónvarpsfréttir.
23. febrúar 2011 › 14:59
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
