ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.1° 0m/s Calm
Teitur

Teitur

Teitur starfar við íslenskukennslu í Gautaborg og líkar vel. Hann hefur BA próf í trúarbragðafræðum og hefur nýlokið námi í alþjóðaviðskiptum. Teitur er óragur samfélagsgagnrýnandi og áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, náttúrvernd, bifreiðar, tilvistarleysi guðs, nördalega hluti og hjómsveitina KISS.

Kellingarnar mínar

07:49 › 24. ágúst 2010

Ég er nörd.  Ég er algjör sökker fyrir allskonar jaðarmenningu.  Allskonar fyrirbæri sem kalla má smekkleysu vekja hjá mér áhuga.  Ég safnaði á tímabili myndum af ósmekklegum veggskreytingum.  Myndum sem voru gjarnan í stigagöngum eða prýddu verbúðir.  Þið kannist örugglega við konseptið.  Ég er því miður löngu hættur þessu furðulega áhugamáli, en á orðið ágætis safn af ósmekklegum myndum.  Ég veit ekkert hvað ég ætla að gera við þetta en ég tími ekki að henda þessu.  Ef einhver vill fá þetta lánað í eitthvað verkefni þá er það auðsótt.  Svo auglýsi ég eftir fleirum sem safna svona smekkleysu.  Faðir minn á ágætt safn ljótra hluta sem hann tekur fram og sýnir gestum þegar vel liggur á honum þannig að áhugi á ósmekklegum hlutum er ekki bara hjá mér þótt vera kunni að áhuginn liggi einungis í Bergsætt.

Ég hef tekið eftir einni konu á blogginu sem er með svipað áhugamál.  Hún bloggaði á dögunum um "drenginn með tárið" sem flestir kannast við og sýndi lesendum sínum safn af austantjalds-glergripum sem hún komst yfir í Græna hirðinum.  Alveg var ég að tengja við þetta.  Ég er ekki með það alveg á takteinum hvað þessi kona heitir eða hvar hún bloggar, en hún má alveg hafa samband við mig.

-UPDATE-  Konan sem hér um ræðir heitir Þórdís Gísladóttir og hér er bloggið hennar! 

Í síðustu viku þegar ég var á Íslandi fór ég yfir geymsluna hjá mömmu sem hýsir sumt af veraldlegum eigum mínum og viti menn. Þar var ósmekklega safnið komið.  Ég tók myndir af hverri mynd í algerri nörda-vímu lesendum Eimreiðarinnar til ánægju og yndisauka.


Fyrsta myndin í safninu. Keyptí Kolaportinu


Þokkadís.  Uppruni ókunnur


Dónalegasta myndin:  Fékk hana hjá fyrrverandi tengdaföður mínum.  Mér er sagt að þessi mynd sé í seríu þriggja mynda í svipuðum stíl.


Furðulegt. Virðist vera sama konan og í mynd númer eitt.  Kolaportið.


Kolaportið:  Þessa mynd bregður fyrir í kvikmyndinni "A Clockwork Orange".  Gríðarlega ósmekkleg mynd


Kolaportið.


Stærsta myndin:  Keypti í "Blå pakhus" á Amager í Kaupmannahöfn.

Svo er það dýrgripurinn sjálfur. 

Mynd af Lindu P. þar sem hún auglýsir kosti þess að skulda peninga.  Þessa mynd tók ég traustataki á vinnustaðnum mínum sem var trésmíðaverkstæði.  Þetta var árið 1991 og markar upphaf ósmekklega safnsins.  Athygli verkur að allir í auglýsingunni eru farnir á hausinn.  Samvinnubankinn, Iðnaðarbankinn, Búnaðarbankinn, Landsbankinn og Sparisjóðirnir á Íslandi.



Myndin af Lindu er ekki til sölu og gagnlaust að gera tilboð í hana nema fyrir jeppaverð.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?