ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.1° 0m/s Calm
Teitur

Teitur

Teitur starfar við íslenskukennslu í Gautaborg og líkar vel. Hann hefur BA próf í trúarbragðafræðum og hefur nýlokið námi í alþjóðaviðskiptum. Teitur er óragur samfélagsgagnrýnandi og áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, náttúrvernd, bifreiðar, tilvistarleysi guðs, nördalega hluti og hjómsveitina KISS.

Hið óþolandi Magma-mál.

13:10 › 12. júlí 2010

Mér finnst þetta Magma-mál snúast um allt aðra hluti en látið er í veðri vaka.  Þetta mál snýst um algjör grundvallaratriði fyrir þjóðina Ísland, ef hún er þá til á annað borð.

Þetta er svo mikið grundvallar atriði að það er ekkert hægt að jafna því við neitt annað.  Þetta snýst um lítin hóp af fólki sem býr á lítilli harðbýlli eyju austan undan Grænlandi.  Hóp sem hefur einhvernvegin tórað í gegnum aldirnar og skyndilega síðustu 100 ár hefur allt legið uppávið.  Skyndilega er ljóst að eyjan er ekkert svo hrjóstrug, heldur auðug af allskonar sniðugum hlutum.

Þá kemur einhver innan hópsins og telur restinni af hópnum trú um það að farsælast sé fyrir alla að selja auðlyndir eyjunnar.    -Er þetta sniðugt já eða nei.

Um þetta snýst þetta Magma-mál.

Þetta er ekki þjóðremba og ekki afturhaldskommúnismi.  NEI!  Þetta er bara ösköp venjuleg afstaða til þjóðarinnar og landsins sem maður tilheyrir.

Það er þyngra en tárum taki að Samfylkingin af öllum flokkum skuli beita sér svo hart í því að selja auðlyndir landsins (fyrir slikk) og beinlínis "push-a" þeim út eins og dópsali í skuggasundi.

Stórnmál snúast ekki um lögfræði heldur rétt og rangt.  Pólitíkusarnir ákveða leiðina og fá svo lögfræðivinnudýrin til þess að varða leiðina og leggja malbik.  Þannig virkar þetta.  Fyrst þarf að athuga hvað sé rétt, og svo að búa til lög sem passa að ákvörðuninni. 

Eins og öll mannana verk þá er hægt að snúa einhverri ákvörðun við. Það er líka hægt með þessu Magma-svindli.   Hætta bara við þetta.  Bera fyrir sig að Magma Swerige sé greinilegt skúffufyrirtæki (enda viðurkennt sem slíkt af Magma-fólkinu) og stofnað til þess að fara á skjön við íslensk lög sem banna kanadísku fyrirtæki að fjárfesta í jarðhita á Íslandi.

Sýnið manndóm!! 

Hættið við þessa hugmynd !!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?