ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW
Teitur

Teitur

Teitur starfar við íslenskukennslu í Gautaborg og líkar vel. Hann hefur líka BA próf í trúarbragðafræðum og hefur nýlokið námi í alþjóðaviðskiptum. Teitur er gegnheill krati og óragur samfélagsgagnrýnandi. Áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, bifreiðar, tilvistarleysi guðs, nördalega hluti og hjómsveitina KISS.

Vandi heilbrigðiskerfisins...

00:01 › 18. mars 2010

Það er ferlega gaman að fylgjast með
athugasemdunum við þessa umræðu hérna
Í henni fer Ólafur Gunnar Sæmundsson næringarfræðingur í gegnum nokkrar mýtur
sem varða næringu og heilsu.  Alveg beisikk neytendamál og alltof
sjaldgæft framtak að sjá svona umfjöllun.



Viðbrögðin voru hörð.



Allskonar fólk lagði orð i belg og sagði næringarfræðinginn vera besservisser,
ruglaður, slæmur fyrir stétt næringarfræðinga, lokaður og hrokafullur. 
-Þið vitið.  -Þetta helsta.  Einn athugasemdill sagðist fyrst ekki
hafa trúað grein næringarfræðingsins og talið hana vera eitthvað spaug. 
Svo fór umræðan eins og venjulega að snúast um aspartam...  Þá komu þessu
gullkorn sem varpa ljósi á mikið stærri vanda en þvæluna sem viðgengst þegar
kemur að næringarfræði og heilsumýtum. Tékkið á þessu:



Athugsaemd:  SA



"Ég er ekki sammála að Aspartam sé skaðlaust ! Ég er með vefjagigt og
drakk svakalega mikið af Coke Light og var alltaf mjög slæm í skrokknum.. leið
og ég hætti því þá lagaðist skrokkurinn...eftir það gerð ég tilraun á sjálfri
mér og prufaði að fá mér diet drykki og light drykki og fleira sem inniheldur
Aspartam og alltaf fann ég strax mun á skrokknum.. fékk bakverki og stífna upp
í fingrum til dæmis.. á meðan ég læt Aspartam í friði þá líður mér mun betur !
Auðvitað skiptir mataræði og hreyfing miklu máli líka upp á að líða vel í
skrokknum.. en Aspartam hefur óneitanlega þessi áhrif á mig.. svo er þetta
auðvitað persónubundið en ég hef heyrt fleiri segja þetta sem eru vanalega
slæmir fyrir !"



Þessari athugasemd var HG alveg sammála.



"Sammála fyrri ræðumanni, ég er ekki sammála því  að aspartam sé
skaðlaust

Í mínum augum er það eitur, ég finn líka mun á að neyta vara sem innihalda
aspartam, fæ mög illt í magann af því, og miðað við hvað ég hef lesið af
greinum um aspartam, hefur alveg verið rannsakað á mönnum og ekki bara músum,
varðandi allt hitt er ég nokkuð viss um að það sé allt misjafnt eftir
fólki.  Sumir hafa líka hraðari brennslu en aðrir"



Svo mörg voru þau orð.



Tökum burtu alla þvæluna um aspartam.  Tökum burt rökin með og á móti
aspartami. Tökum burt að allskonar virtar stofnanir með alvöru vísindamönnum
hafa sagt efnið skaðlaust meðan eitthvað bréfaskóla-lið segir það eitrað.
-Tökum þetta burtu.  Þetta
skiptir engu máli í samhenginu sem ég ætla að draga fram.



Það sem vakti athygli mína er þessi eindregna fullyrðing SA:  "Ég er
ekki sammála að aspartam sé skaðlaust !".  Takið eftir orðinu "ég"
í þessu samhengi.  Ég er ekki samála um að aspartam sé
skaðlaust". 



Meinið við þessa setningu að skaðsemi eða skaðleysi aspartams snýst ekkert um
hvað manni finnst.  Annað hvort er það eitrað eða ekki.  Þetta
er ekki spurning um smekk eða afstöðu til lífins eða hlutanna í kringum
okkur. 



-Þetta er annaðhvort eða spurning.  Maður getur ekkert sagt: Mér finnst tóbasnotkun ekkert krabbameinsvaldandi.  En það eru nákvæmlega sömu rök fyrir þessari setningu og þá með  asprartamið.


Því miður fyrir suma sem skila ekki heiminn nema í enhverju póstmódernísku moði
þar sem allt er á floti, allt er leyfilegt, allar skoðanir réttháar og allt
jafn rétt og það er vitlaust.  Þessar konur sem eru sammála um að aspartam
sé skaðlegt skal bent á eftirfarandi.  Óteljandi rannsóknir, framkvæmdar
af hlutlausum aðilum benda allar til þess að aspartam sé skaðlaust.  Vantrú hefur reglulega
vakið athygli á þvælunni í aspartam-bölsóturum og ég efa að til sé lífsseigari
mýta i hindurvitnabransanum en hið illa aspartam 



Ég veit hinsvegar vel að þessar aspartam-konur taka ekkert mark á vísindarannsóknum. 
Það er alveg sama þótt kæmi í ljós að aspartam væri allra meina bót. 
Afstaðan er skýr.  Víglínan hefur verið dregin. 

Það er reyndar alveg kostulegt í innleggi SA að milli þess sem hún kennir
aspartaminu um allskonar verki og slen, tekur hún fram sérstaklega að samhliða
neyslustoppi á aspartaminu sé frábært að ástunda leikfimi hverskonar og breytt
mataræði.



Halló!!!  Getur verið að það sé hreyfingin og mataræðið sem vegi þyngra en
aspartamið i dæmi þessarar ágætu konu.  Það sem er svo furðulega skrýtið er að fólk er byrjað að greina sína eigin sjúkdóma eins og ekkert væir eðlilegra.  "Já ég er með vott af þvagsýrugigt á byrjunarstigi".  og það sem allir kannast við. "Ég skráði mig í meðferð í fyrradag".  Ísland er eina landið í heiminum þar sem sjúklingarnir sjáfir skrá sig inn á spítala.  Sjúkdómadekrið er yfirgengilegt.  Nú eru allir með ofnæmi fyrir einhverju.  Hnetum.  Paprikkum, Brauðristum.  Vöflujárnum.  Brauði. Frauði og gólfhliðinni á popppkorninu sem liggur stundum á gólfinu í Bíóhöllinni, áður en er sópað.  Og ég?  Ég mun vera með einhvern sjúkdóm eftir að ég hætti að drekka fyrir 9 árum.  Sjúkdóm sem ég vill ekkert kannast við en er voðlalega vandræðalegt að útskýra fyrir fólki. Það heldur alltaf að ég sé að fara að byrja að drekka ef ég fer út í þá sálma. 

Hugsar: "A-ha... Hann er núna að þykjast ekkert vera alki og er sennilega að skipuleggja eitthvað rosalegt fyllerí...."

-o-o-o-o-o-


Ég skil ekki alveg hvernig fólk hugsar.  Hvað er það sem sviptir fólk
svona ályktunarhæfninni og meðfæddu viti?  Er það svona spennandi að trúa
öllu illu upp á "vondu kryddfyrirtækin" eða svoleiðis?  Er þetta
viðnám gegn nútímanum?  Eitthvað svona: "þessir fræðingar vita nú
ekki allt".  Er þetta vörn alþýðumenningarinnar gegn alþjóðahyggjunni
og fræðingaveldinu? 



Annað dæmi um þetta og jafn skaðlegt eru inngróið vantraust á
fiskifræðingastéttinni.  Fiskifræðingar segja sem svo að ekki sé æskilegt
að veiða karfa á Hnökrabugt meðan hann er að hrygna.  Þá klikkar það ekki
að hundruð neftóbaksfræðinga spretta upp og æpa.  "Hvað vita þessir
fokkíng fræðingar"  berja sér á lær og halda áfram "þeir hafa
aldrei migið né skitið í saltan sjó", róa sig aðeins niður og líta fast í
augun á manni og segja



"Ég er alveg viss um að karfinn má við frekari veiðum á Hnökrabugt... Ég er alveg viss um það.  ..Alveg
hand viss.



En hverjum skyldi maður nú trúa?  Gimba á Áseyrinni eða teymi af
ofurmenntuðum liffræðngum sem hafa það að atvinnu að mæla fiskistofna?

 




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.