Fregnir herma að Finnur Ingólfsson einn stórtækasti þjófur Íslands hyggi nú á að skipta um vetfang og fara í öryggismálin. Hann mun vera meðal álitlegustu tilboðsgjafa í Securitas og nýtur fulltingis Guðjóns Ólafs Jónssonar sem er viðloðandi skiptastjórnina (þessi með hnífasettið í bakinu).
Ég spái því að Framsókarleiðin verið farinn í þessu máli og að Finnur fái Securitas. Hann mun vera staurblankur eftir Iceland-air rugið en trúið mér. Það mun ekki stoppa hann. Hann fær einhversstaðar lánað út á inngróið tengslanet innan bankanna.
Ég ætla að leggja mitt lóð á þessar vogarskálar.
Ef að Finnur og vinir hans fá Securitas ætla ég að koma á fót vefsíðunni "fokkum.í.finni.is" og hvetja alla og þá meina ég alla viðskiptavini Securitas að snúa viðskiptum sínum annað. Það er enginn vandi enda á Securitas samkeppnisaðila sem standa sig vel. Það eina sem dugar í þessu samhengi eru tæki hins frjálsa markaðar. Upplýstir neytendur.
Finnur stendur sig reyndar alltaf best þar sem er einokun enda rekur hann eitt slíkt fyrirtæki sem lifir á einhverjum skítadíl sem var gerður við Alfreð Þorseinsson, frægan Framsóknarskálk.
Krafan er skýr.
Burt með framsóknarbófana úr íslensku viðskiptalífi!
Blogg
Stórþjófur komin í öryggismálin
17:05 › 18. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
