ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW
Teitur

Teitur

Teitur starfar við íslenskukennslu í Gautaborg og líkar vel. Hann hefur líka BA próf í trúarbragðafræðum og hefur nýlokið námi í alþjóðaviðskiptum. Teitur er gegnheill krati og óragur samfélagsgagnrýnandi. Áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, bifreiðar, tilvistarleysi guðs, nördalega hluti og hjómsveitina KISS.

Guðmundur Andri og Ísfólkið

11:14 › 18. mars 2010

Guðmundur Andri Thorsson skrifar alveg feykilega góða grein um Iceasave á vefsíðu TMM.  Það er beinlínis mannbætandi að lesa greiningu á þessu ömurlega Icesavemáli sem er laus við upphrópunarmerki og í stikkorðastíl.

Þetta er risaatriði sem ég hef ekki séð áður:

Icesavemálið snýst um ábyrgð íslenska ríkisins sem sumir segja að  komi
íslenskum þegnum ekkert við – það er að segja ríkið: íslenska þjóðríkið
komið þegnum sínum ekkert við, umboð kjörinna fulltrúa nái ekki til þess
að gangast undir alþjóðlegar skuldbindingar. Lýðræðið hér á Íslandi sé
ekki þannig meint. Íslendingar hafi meira kosið fulltrúa á þing til þess
að láta þá ganga erinda sinna gagnvart öndverðum hagsmunaaðilum gegn
því að þeir fengju að skara eld að sinni köku.

Ábyrgðin á Icesaveskuldbingingunum (ekki reikningunum sjálfum, þar verður að kalla til ábyrgðar fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, Kjartan Gunnarsson) er ríkisins.  Með því að hafna ábyrgð ríkisins er einnig að hafna ábyrgð ríkisins í öllum öðrum málum.

Þetta snýst um ábyrgð kjósenda þegar öllu er á botnin hvolft. Kjósendur Sjálfstæðisflokksins bera ábyrgð á Sjálfstæðisflokknum.  -Þetta skilja ekki Íslendingar.  Þeir halda að þetta sé einvher skollaleikur þar sem leyfilegt sé að breyta reglunum í miðjum leik.

Ég hvet alla til að lesa grein Guðmundar.

Svo hvet ég til þess að Samfylkingin átti sig á annarlegum áætlunum Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.  Þessir flokkar eru ekki að fara að skrifa undir neitt.  Þeir eru bara að þreyta stjórnina til örendis.  Þeir munu aldrei skifa undir neitt því með því er hlutdeild þeirra í ábyrgðinni á Icesave staðfest.  Meir að segja inntak hefur inntak Sjálfstæðisflokksins breyst úr frjálshyggjumoði yfir í hreina og beina anstöðu gegn lausn þessa máls.  Andstöðu við alþjóðasamfélagið og hefðbundið "við-erum-Íslendingar-skrum".

Samfylkingin verður að fara að hætta að mæta með hníf í byssubardaga.  Bretta upp ermarnar og beita sömu meðölum á Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn hafa beitt á þjóðina s.l 18 ár. 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.