ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE
Teitur

Teitur

Teitur starfar við íslenskukennslu í Gautaborg og líkar vel. Hann hefur líka BA próf í trúarbragðafræðum og hefur nýlokið námi í alþjóðaviðskiptum. Teitur er gegnheill krati og óragur samfélagsgagnrýnandi. Áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, bifreiðar, tilvistarleysi guðs, nördalega hluti og hjómsveitina KISS.

VR félagar athugið !!

08:14 › 17. mars 2010

Nú stenda yfir kosningar í VR. Í framboði er L-listi sem býður fram gegn núverandi stjórn.  Hann er í beinum tengslum við Nýtt Ísland sem er vafasamur félagsskapur sem staðið hefur fyrir allskonar lýðskrumi. 

-Stefnuskrá þessa félags er í meira lagi skuggaleg

Mér líst illa á þennan Lúðvík Lúðvíksson og fylgihnetti hans.  Hann hvorki meira en minna en setti mig prívat og persónulega á STEFNUSKRÁ Nýs Íslands og sagði að samtökin ætluðu að halda mér í námi sem allra lengst eða eitthvað þvíumlíkt. 

Merkileg samtök og föst fyrir eins og dæmin sanna. 

Ef það þessi L-listi nær meirihluta í stórn VR væri það álíka og afhenda Sid Vicious og félögum hans lyklana af sumarbústaðnum sínum.  Segja svo: "Sjáumst á mánudagin Sid - Þú gengur frá eftir þig og svoleiðis".  Ef að þetta fólk nær undirtökunum í VR þá þýðir það einhverjar rosa kröfur á atvinnulífið og ríkið sem mun sennilega lama allt samfélagið. Sem er svo sem allt í lagi. 

-Bara ekki núna í miðri kreppu.

Ásakanir þessa fólks í garð VR forrustunnar eru barnlegar og hafa verið hraktar.  Allt snérist um eitthver kreditkort sem áttu að vera svo hræðileg og eftir að hafa farið í gengum 3 ára færslur fanst út 10 þúsundkall frá einhverri búð sem heitir Markó Póló (reyndist vera tölvutaska) og þúsundkall á Vitabar (reyndist vera djús fyrir krakka sem voru að leika í augýsingu)

Ég hvet alla VR félaga að kynna sér málið.  Kynna sér staðreyndir sem við blasa og hlusta ekki á skrumarana í L-listanum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.