Þrátt fyrir háan aldur er ég algjör sökker fyrir danstónlist. Ég kaupi eiginlega alla tónlistina mína frá Beatport og refsa lögunum sem ég kaupi í svona 3 - 4 mánuði. Þá kaupi ég mér meira. Konan mín er að verða vitlaus á mér því hún þolir ekki svona tónlist. Það er svolítið gaman að því að sumt að ég hef fylgst með danstónlist svo lengi að ég þekki orðið þessa tegund ágætlega og heyri strax þegar þessi annars underground tónlist verður vinsæl. Það er augheyrt að electro house er að troða sér inn í meinstrímið hvað sem svo fólki kann að finnast um það. Mikið af útsetningum poppdívanna í dag eru nánast hreinræktað electro house. Rhianna er alveg með þetta og svo þessi leiðinlega Lady Ga Ga.
Svo er electróið sjálft að breytast. Það er að poppast aðeins upp. Fleiri raddir og krókar. Þetta er alveg sprelllifandi tegund og gaman að því að Svíar eru eiginlega bestir í þessu.
Punkturinn í þessari pælingu minni er þetta lag sem er vinsælt í útvarpinu.
-Svínvirkar





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
