ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW
Teitur

Teitur

Teitur starfar við íslenskukennslu í Gautaborg og líkar vel. Hann hefur líka BA próf í trúarbragðafræðum og hefur nýlokið námi í alþjóðaviðskiptum. Teitur er gegnheill krati og óragur samfélagsgagnrýnandi. Áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, bifreiðar, tilvistarleysi guðs, nördalega hluti og hjómsveitina KISS.

Langþráð hláturkast

07:35 › 16. mars 2010

Í fundargerð stjórnarfundar Prestafélags Íslands frá febrúar kom fram þessi sérkennilega ályktun:


Þá var um það rætt á fundinum að meðal nokkurra presta hefur það
komið til tals að laun biskups Íslands séu óeðlilega lág miðað við stöðu
hans meðal embættismanna þjóðarinnar og miðað við vægi embættis hans. #



Það kemur mér ekkert á óvart að prestar telja að kaup biskups sé óeðlilega lágt (miljón á mánuði) enda eru þeir að eigin sögn með þumalinn á púlsi mannlífsins og manna best hvernig vindarnir blása í samfélaginu sem þeir þjóna.  Trúleysingjar hafa reyndar snúið þessu við og sagt samfélagið þjóna prestunum en ekki öfugt og segja má að þeir hafi nokkuð til síns máls.

það sem kom mér á óvart hvenrig þeir hnýttu endahnút á þessa vitleysu.  Hér fer á eftir orðrétt sýnishorn úr fundargerð Prestafélags Íslands

"1. Fundarsetning, ritningarorð og bæn.
Formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna, las hann að því
loknu úr
Lúkasarguðspjalli, 18.kafla, og leiddi fundarmenn í bæn."

Það var sérlega vel við hæfi að velja 18 kafla Lúkasarguðspjalls í þessu samhengi því þar segir:

18-24 Jesús sá það og sagði: „Hve torvelt er þeim sem auðinn
hafa að ganga inn í Guðs ríki.
25 Auðveldara er úlfalda að fara gegnum
nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríki.“

Þegar ég sá þetta þá hné ég niður í hlátuskasti sem var velþegið eftir erfiða viku.  Það var ekki ég sem fattaði þetta heldur kom þessi frábærlega fynda uppgötvun sem athugasemd á vantrúarvefnum við þessa grein

Stundum hafa ríkiskirjuprestar haldið því fram að áróður siðblindra trúleysingja sé ástæðan fyrir bágri stöðu ríkiskirkjunnar en ég sé ekki betur en að þeir sjálfir séu sínir verstu óvinir.  Trúleysingjar og andstæðingar ríkiskirkjukerfisins þurfa í raun ekkert að "berjast gegn" ríkiskirkjunni.  Það er algjör óþarfi.  -Hrein og bein tímasóun.  Ríkiskirkjan er alveg fullburða að taka það að sér eins og dæmin sanna.  Ég bara vona að ályktun prestafélagsins um hækkun á launum biskups nái fram að ganga.  það skerpir einungis á þeirri gjá sem er milli ríkiskirjunnar og þjóðarinnar sem þjónar henni.

Vantrú er að standa sig vel eins og alltaf og það er frábært að tilheyra þessum félagsskap.  Ég hvet að lokum alla sem þola ekki svona hræsni að segja sig úr ríkiskirkjunni. 





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.