Afi minn var fæddur í Vestmannaeyjum. Hann var fjórði elstur 14 systkina og þurfti ungur að sjá fjölskyldu sinni og móður farborða. Hann vann í verslun Önnu Gunnlaugsson í Vestmannaeyjum og síðar í útibúi frá sömu verslun á Laugaveginum í Reykjavík. En þar voru vefnaðarvörur á boðstólnum. Hann stofnaði síðan sína eigin vefnaðarvörubúð á horni Klappastígs og Njálsgötu sem hann rak í áratugi. Hún hét því virðulega nafni "Verslun Sigurbjörns Kárasonar".
Afi minn var það sem kallað er hrjúfur maður og ég held að hann hafi aldrei kynnst gleði æskunnar því henni var skipt út fyrir ábyrgð og vinnusemi. Vinnuþrælkun jafnvel. Þessi hrjúfleiki afa var stundum ferlega spaugilegur því þegar kom að stóru málunum voru þau afgreidd eins og þorskur á aðgerðarborði.
Afi minn gaf okkur bræðrunum eitt ráð sem flokka má undir kynfræðslu. Um það bil þegar afi sá sig knúinn að veita þetta ráð sitt, voru kynferðsbrotamenn og ósómi þeirra í deiglu fjölmiðlanna. Mig minnir að "nauðgunarblaðið" frá Þjóðviljanum hafi verið nýkomið út en það olli umtalsverðum titringi í samfélaginu.
Ráðið hans afa var einfalt. -Passið ykkur á hommunum.
Hann var enginn fýlopoki en maður sá langar leiðir að hann var ekkert endilega í góðu skapi. Við spiluðum mikið saman og hann kenndi mér að leggja kapla. Kóngakapalinn, kjöltukapalinn og þennan með sjö bunkum sem ég veit ekki hvað heitir. Sá heitir Solitaire á ensku.
Afi sagði okkur Auðunni einn brandara. Hann var okkur gersamlega óskiljanlegur. Brandarinn var svona:
Maður nokkur í Vestmannaeyjum var söngmaður góður og alltaf kallaður Sigurður englasöngur. Sigurður var einhverju sinn að hjálpa til við heyskap í rokin í Vestmannaeyjum og flámæll bóndinn kallar:
"Seggi"... -Ekkert svar enda hávaðarok, brakandi þurrkur og heiðblár himinn.
"Seggi minn" hrópar bóndi.... Ekkert svar.
"Seggi minn" hrópar bóndi öðru sinni.....
"Segurður englasöngur, andskoti heyrir strákurinn illa"...
....
.....
......
-Brandarinn er búinn.
Það var svo meira en áratug siðar að bróðir minn hringir í mig í algeru hlátursskasti og segist hafa fattað brandarann og stynur upp úr sér milli hlátursrokanna að brandarinns sé að blanda saman svona þétt, orðunum englasöngur og andskotinn.
Ég fékk svo þessa útgáfu staðfesta þegar ég spurði smið sem ég vann hjá og Vestmannaeyjing fram í fingurgómana út í þessa tilgátu. Sá hló þessi reiðinnar býsn og sagði að brandatilgáta bróður míns hafi verið hárrétt.
Blogg
Sigurður englasöngur
18:21 › 15. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
