ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW
Teitur

Teitur

Teitur starfar við íslenskukennslu í Gautaborg og líkar vel. Hann hefur líka BA próf í trúarbragðafræðum og hefur nýlokið námi í alþjóðaviðskiptum. Teitur er gegnheill krati og óragur samfélagsgagnrýnandi. Áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, bifreiðar, tilvistarleysi guðs, nördalega hluti og hjómsveitina KISS.

Eurovision-sturlun heillar þjóðar.

08:32 › 14. mars 2010

Við hjónin horfðum á Úrslitakeppnina í Eurovision í gær á "Eitt-unni".  Þetta prógramm hefur verið í allan vetur og mikið húllumhæ.  Nú var stóra stundin og 10 lög kepptu um þátttökusætið í lokakeppninni.

Svíar teka Eurovision alvarlega. -Mjög alvarlega.  Þetta eru örugglega 4 - 6 undankeppnir og svo ein úrslitakeppni.  Fjölmiðlar fylgjast með þessu eins og hungraðir haukar.  Nú var kallaður til Dolhp Lundgren sem kynnir, en í raun var hann bara upp á punt og var eitthvað að fíflast.  Fór í allskonar búninga og söng eins skelfilega og það hljómar.  

Já þeir taka þetta alvarlega.  Eftir að flutningi laganna lauk tók við stigakeppninn.  Svíar hafa dómnefndir í nokkrum löndum og þær, þakka ykkur fyrir, hlusta á öll lögin og dæma eftir kúnstarinnar reglum.  þetta var eins og míní útgafa af stóru keppninni í gamla daga.  það vor eitthvað 5 eða 6 dómnefndir allstaðar frá út Evrópu sem gáfu stig.  Moskva til Berlínar.  Svo fengu stærstu bæir Svíþjóðar að kjósa. Stokkhólmur, Gautaborg, Malmö og Lulea.  Já og keppnin er haldin í Globen og það er alltar TROÐIÐ!  Ég giska á nokkur þúsund manns á hverri keppni.   Þetta er alvöru og popp er alvöru í Svíþjóð.  Þetta er iðnaður sem skilar miljarðatekjum.  Ekki er óalgengt að geri ekkert annað en að skrifa popplög. Låtskrivareheitir svoleiðis stétt.  Bakvið annað hvert popplag í vestur heimi er einhver Svíi sem græðir peninga.  Rhianna? -Gautaborgari skrifar allt fyrir hana.  Frú Spears?  Sama þar.  Celine Dijon?  Sama sagan.  Þetta er risabissnes og andskotans synd að Íslendingar hafa ekki fattað það.  Við föttum bara tonn af einhverju. Tonn af áli, tonn af einhverjum fiski og tonn af skít.  Við skiljum ekki að popp geti verið bissness sem er jafn mikilvægur og eitthvað tonna-fokk. 

Ég fullyrði að ef látið væri brota-brot af niðurgreiðslum landbúnaðarins og sett í bauk sem að lagahöfundar gæti sótt í til að raffínera lögin sín, myndi það skila sér tífalt til baka.  Þetta er spurning um hæfileika og þolinmæði. 

En þetta var útúrdúr.... :) 

Já úrslitin lágu fyrir. Lagið "Keep On Walking" með Salem Al Fakir vann, með þónokkrum yfirburðum.

En nei....  Ó.. nei.

Keppnin var rétt að byrja.  Glaðbeittur kynnirinn sagði okkur hjónunum að nú var komið að því að áhorfendur fengju að kjósa!  Þeirra atkvæði höfðu meira vægi en atkvæði borganna og lægsta einkunn gaf 11 stig, næsta 22 stig og svo koll af kolli.  Eftir æsispennandi keppni kom loks lagið í ljós.  Lagið "This is My Life" með Önnu Bergendahl.

Frekar slappt lag og gerir ekki neinar gloríur í Osló í maí.  Besta lagið var með þessum Fakír.  það hefur verið að hljóma í útvarpinu og er algjör eyrna-ormur.  Svona svipað og "Bittersvveet Simphony" með þarna þessari bresku hjómsveit.  Svo var annað lag með Andreasi Johnson.  Það var nokkuð gott.

Hérna er Fakír með lagið "Keep On Walking"..





Hérna er svo sigurlagið.  "This is my Life" með Bergendahl



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.