Við Ingunn tókum okkur til og bökuðum afmælisköku á föstudaginn. Planið var að gera skúffuköku. Hún tókst í þriðju tilraun. Fyrst bjó Ingunn til einhverskonar kex og fékk þunglyndiskast. Ég reif mig þá upp úr bókunum og sletti í eina uppskrift sem ég taldi trausta.
Sú mistókst vegna þess að uppskriftin var of lítil miðað við skúffuna. - Öllu hent.
Eftir að hafa horft í augu hyldýpisins með konu minni ákváðum við að prufa í þriðja skiptið og tvöfalda uppskrifina sem ég klúðraði. VIð gerðum þetta og til að gera langa sögu stutta þá tókst þetta prýðilega.
Hérna er mynd af kökunni sem við bökuðum og ÉG skreytti. 
Ég sá ekki betur en að krakkarnir hökkuðu þessa köku í sig. Ég fer með restina í skólann á morgun.
Blogg
Bakstursraunir
14:36 › 14. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
