ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE
Teitur

Teitur

Teitur starfar við íslenskukennslu í Gautaborg og líkar vel. Hann hefur líka BA próf í trúarbragðafræðum og hefur nýlokið námi í alþjóðaviðskiptum. Teitur er gegnheill krati og óragur samfélagsgagnrýnandi. Áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, bifreiðar, tilvistarleysi guðs, nördalega hluti og hjómsveitina KISS.

Sjálfstæðiskonur

00:12 › 13. mars 2010

Ég skil ekki Sjálfstæðiskonur.  Ég fatta ekki konseptið.  Er þetta einhver saumaklúbbur eða svona basar-dæmi eins og kvennfélag Hringsins?  Skiptir virkiega máli fyrir hinn últra hægrisinnaða flokk hvort kona eða kall sé með þessar skoðanir sem FLokkurinn hefur í heiðri? 

Ég meina.  Er FLokkurinn sjálfur ekki alltaf að halda þessu fram?  Segja með digurri bassaröddu "Við veljum alltaf hæfasta einstaklinginn"

Og ALLTAF er kall valin.

Sem þýðir bara eitt....


Já ágætu Sjálfstæðiskonur..

Þið hljótið að vera svona ömurlega slappar. 

Fyrst að miðaldra kallar með skalla, plattfót og pungsig vinna ykkur ALLTAF. :)  Ef ég væri sjálfstæðskona yrði mitt fyrsta verk að leggja niður félag Sjálfstæðiskvenna.  Það væri sannarlega spor í jafnréttisátt.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.