ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW
Teitur

Teitur

Teitur starfar við íslenskukennslu í Gautaborg og líkar vel. Hann hefur líka BA próf í trúarbragðafræðum og hefur nýlokið námi í alþjóðaviðskiptum. Teitur er gegnheill krati og óragur samfélagsgagnrýnandi. Áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, bifreiðar, tilvistarleysi guðs, nördalega hluti og hjómsveitina KISS.

Hagsmunir þjóðarinnar.

09:12 › 13. mars 2010

Ungir Sjálfstæðismenn hafa komist að niðurstöðu um hvernig hagsmunum þjóðarinnar sé best borgið.  Jú með því að afhenda auðlyndir Íslands til nokkurra útvegsmanna.

Maður gæti ætlað að eitthvað gys sé í gangið.  Að fyrsti apríl sé í dag eða að maður hafi óviljandi etið eitraða sveppi.

Nei.  Þetta er fúlasta alvara.  Hérna er frétt um málið. 

Það er svooooooooo skrýtið að ungir og til hægri skulu komast að ÞESSARI niðurstöðu.  Hin eðlilega hægri niðurstaða væri einfaldlega að rikið leysti til sín allann kvóta og leigði hæstbjóðenda.

Ungir hægrimenn á Íslandi vilja frekar ógeðfelt óréttlátt, svifaseint og þunglamalegt kerfi sem byggt er á veiðireynslu ársins 1984!  Svolítið táknrænt með 1984 en ég á ekki von á að ungir til hægri skilji sneiðina.


Sjálfstæðisflokkurinn er ekkert stjórnmálaflokkur.  Hann notar það bara sem yfirvarp og skálkaskjól  Sjálfstæðisflokkurinn eru regnhlífasamtök auðlindaræningja Íslands.  Það jaðrar við sturlun þegar fólk styður þennan bófaflokk.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.