Bessi sonur minn verður 4 ára á sunnudaginn. Við erum búin að bjóða nokkrum krökkum í "kalas" á morgun. Konan mín er fór að skoða Barnalandið og sjá svona hvernig fólk heldur afmæli fyrir krakkana sína og kom til baka náföl á svip.
"Við erum ömurleg". Sagði hún við mig í uppgjafatón. Við nánari eftirgrenslan kom í ljós að meðal afmælið samsanstendur að svona 20 fullorðnum og 10 börnum. Sumir munu hafa það sem reglu að panta hljómsveit.
Ég er svo gamaldags að ég vil bara hafa afmæli krakkanna minna eins og þegar ég var krakki. Það var ekkert flókið. Súkkulaðikaka sem var skreytt með smartís og lakkrísrörum og gos. Stundum voru bara pulsur. Þetta var alveg beisik. Ég man ekki betur en allir skemmtu sér konunglega og afmælin enduðu venjulega þegar einhver fékk "brjálæðiskast" og slökkti í fjörinu.
Einu fullorðnu voru kannski ömmurnar og afarnir.
Nú er öldin önnur og foreldrar upplifa sig sem misheppnaða ef að ekki eru bakaðar 10 sortir, boðið upp á grænmetiskost og Sálin Hans Jóns míns sé að stilla græjurnar í stofunni.
Ég þrurfti að róa Ingunni töluvert niður eftir þetta högg sem við fengum frá Barnalandi og ég ætla að láta hófsemina ríkja en bæta þeim mun meira í fjörið. Ég ætla að vera vitlausa trölliið og standa fyrir leikjum hverskonar. Vinir hans Bessa, Óskar og Sebastían eru reyndar ferlegir göslarar og ég býst við nokkurm marblettum og hellu fyrir eyrum næstu daga á eftir. Þeir hafa þann sið að hlaupa um öskrandi og hafa því miður kennt Bessa mínum þennan ósið. Hann er þó allur að mannast og er 10x þægari en þegar hann var yngri. Klár strákur hann Bessi og með eitthvað það fegursta geðslag sem ég hef séð hjá nokkurri manneskju
Ég ætla að sletta í form og baka súkkulaðiköku. Hugsanlega skúffuköku sem verður eins og sjónræningjaskip í laginu. Það er ekkert mál. Maður þarf bara að byrja. Ingunn ætlar að taka að sér að búa til brauðtertuna en það er hvítabrauð sem blandað er með asspass og majónesi. Osti er síðan stráð yfir og bakað uns osturinn er bráðinn. Það er bókstaflega útilokað að mistök geti átt sér stað í brauðtertunni. Mistakasvigrúmið er óskaplega breitt. Ingunn er reyndar frekar brotin eftir síðustu eldatilraun sem var Krem brúllei, sem endaði með ósköpum.
Vonandi kippir brauðtertan henni aftur á sporið.
Blogg
Barnaafmæli.
10:52 › 12. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
