ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E
Teitur

Teitur

Teitur starfar við íslenskukennslu í Gautaborg og líkar vel. Hann hefur líka BA próf í trúarbragðafræðum og hefur nýlokið námi í alþjóðaviðskiptum. Teitur er gegnheill krati og óragur samfélagsgagnrýnandi. Áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, bifreiðar, tilvistarleysi guðs, nördalega hluti og hjómsveitina KISS.

Corey Haim

00:14 › 11. mars 2010

Corey Haim er dauður.  Hann drap sig með einhverju dóp-rugli.  Mér þykir það satt best að segja leiðinlegt þótt ég hafi ekkert þekkt þennan mann eða fundist hann eitthvað æðislegur.  Þessi Corey var einhver barnastjarna þegar ég var barn og unglingastjarna þegar ég var unglingur. 

Við erum eiginlega jafnaldrar.

Mér þykir bara eitthvað svö ömurlegt við að þegar barnastjarna drepur sig.  Þetta barnastjörnudót er svo yfirmáta skaðlegt að maður furðar sig á fólki sem ýtir krökkunum sínum út á þessa braut. 

Corey var þessi týpa sem var ótrúlega flottur á einhverju þúsund daga tímabili, en svo gleymdu honum allir.  Einu skiptin sem fólk minntist á hann var til þess að gera af gys af honum og þessum þúsund dögum. 

-Grey kallinn. 

Hvervegna hætti hann ekki þessu Hollívúdd-fokki og fór bara eitthvað að gera eitthvað frekar en að nudda sér utan í wannabe-famous-again þvælu?  Hví keypti hann sér ekki skóbúð eða eitthvað?

Mér þykir þetta leiðinlegt.  Corey var orðin spikfeitur og óþekkjanlegur þegar hann drapst.  Bjórsvolgrandi  dópisti.  Hann sem var svo flottur í minningunni.. 

-The Lost Boys var fín mynd....

Skömm að þessu.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.