ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E
Teitur

Teitur

Teitur starfar við íslenskukennslu í Gautaborg og líkar vel. Hann hefur líka BA próf í trúarbragðafræðum og hefur nýlokið námi í alþjóðaviðskiptum. Teitur er gegnheill krati og óragur samfélagsgagnrýnandi. Áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, bifreiðar, tilvistarleysi guðs, nördalega hluti og hjómsveitina KISS.

Langhlaupið.

11:14 › 10. mars 2010

Yfirvofandi stjórnarslit eru hörmuleg.  Villta vinstrið er að misskilja eitthvað grundvallaratriðið sem ég næ ekki alveg að festa niður í orð.  Ég ætla samt að reyna.

Vandinn felst í stjórnarskránni þar sem kveðið er á að þingmaður skuli stýrast af eign sannfæringu.  Vissulega er þetta valid en STUNDUM, þarf að gera málamiðlanir.

Þingið er EKKI samkoma 63 stjórnmálaflokka.  STUNDUM þarf að gefa eftir á einum vígstöðvum til að vinna sigur á öðrum.  Svona virkar pólitík ef einhver vissi það ekki.  Er ekki sagt að stjórnmál séu list þess mögulega.  Stjórnlist sem miðast við að einhver meirihluti komi sér saman um eitthvað málefni og fái það svo í gegn?

Búandi í stabíliseruðu kratasamfélagi sem Svíþjóð er, þá er það fáránleg hugsun að allir þeir sigrar og allar þær réttarbætur sem einkennir sænksa samfélagið, hafi unnist á einni  nóttu! 

Stjórnmál eru langhlaup.  Ekki spretthlaup.

Villta vinstrið í VG er svo þvergyrt að það vill barra hætta í hlaupinu eftir fyrstu metrana vegna þess að hlaupaleiðin er ekki NÁKVÆMLEGA eins og þau áttu von á. 

Ég á ekki til orð yfir þessi mistök. Með falli þessarar ríkisstjornar eru bæði VG og Samfylking búin að vera.  Það mun ekki vera mynduð vinstri stjórn næstu 25 árin eftir að Ömmi og Liljurnar sprengja stjórnina.  Nokkuð sem mun gerast!    Verkefnin eru svo hrikaleg.  Svo mikilvæg og svo stefnumarkandi fyrir samfélagið.  Ég spái því að ef stjórnin spryngur ekki í næstu viku, mun það pottþétt gerast þegar nær dregur samningum um ESB.

Sumir lýðræðiselskandi vinstri sinnar vilja nefnilega ekki þjóðaratkvæðagreiðslu um málið.  Nokkuð sem sætir endalausri furðu.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.