Enn slær Jónas Kristjánsson naglann beint á höfuðið. Kosturinn við samfélagsrýni Jónasar er að hann sér í gegnum moðreykinn. Hann veit hvernig stjórnvöld hugsa og hvernig klíkurnar ráða bókstaflega allri stjórnsýslu á Íslandi.
Pælum aðeins i eftirfarandi. Fyrst var Baldur Guðlaugsson sendur til að semja um Icesave. Svo eftir stjórnarslitin var Svavar Gestsson sendur.
Kreppuviðbrögð stjórnmálaflokkanna eru svo hryllilega fyrirséð. Svo eru þessir ömurðarsamningar sem þessir tveir komu með heim, afsakaðir með því að visa í PERSÓNUR þessara tveggja!!
Mikið hefði verið betra að sæmileg sátt hefði ríkt um þessa samningamenn Íslands. Mér líst vel á þennan Lee Bucket. Þar fer sennilega maðurinn sem strax hefði átt að hafa samand við. Lee er helvíti töffaralegt nafn og ég er viss um að það fleyti okkur til ásættanlegrar niðurstöðu. Lee Marvin var flottur. Sömuleiðis Lee Majors. Já svo ekki sé talað um Lee Van Cleef.
-Naglar.
Þegar ég var í Brussel í síðustu viku þá flaug að mér hugmynd sem er á pari við pælingu Jónasar. Evrópusambandið er samstarfsvetvangur Evrópuþjóða. Mjög siviliserað og flott. Göfug markmið og gildi.
-Ísland eins og ég þekki það passar ekkert þarna inn.
Við myndum eyðileggja það. Ef að Ísland færi inn í ESB þá myndi svipað gerast og í einni bókinni um hann Ástrík. Það kom einhver asni inn í þorpið og klauf og risti upp með fláræði og sjálfshagsmunapoti. Flestir Íslendingar skilja ekki ESB. Fatta einfaldlega ekki punktinn! Mjög margir Íslendingar líta á ESB sem land. -Sem ríki. Sem dæmi um þetta þá telja margir að ESB sendi fótboltalið á næsta HM! Þið haldið að ég sé að grínast en því miður er það ekki svo. Í benu framhaldi verður svo Evrópukeppnin sennilega lögð af. Sömuleiðis Eurovision. -Eða hvað? Pólitísk umræða og pólitískir gerningar á Íslandi haga sér eins og vírus. Mygla sem eyðileggur. -Umræðan er úldin.
Ég er langþreyttur á þessu. Umræðunni er haldið á botninum af einhverju liði sem telur hag SÍNUM betur borgið utan ESB.
Enginn. Ég endurtek: Enginn hugsar um hvað er Íslandi fyrir bestu.
Blogg
Íslandsvírusinn
10:11 › 10. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
