ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S
Teitur

Teitur

Teitur starfar við íslenskukennslu í Gautaborg og líkar vel. Hann hefur líka BA próf í trúarbragðafræðum og hefur nýlokið námi í alþjóðaviðskiptum. Teitur er gegnheill krati og óragur samfélagsgagnrýnandi. Áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, bifreiðar, tilvistarleysi guðs, nördalega hluti og hjómsveitina KISS.

ÉG SAGÐI ÞAÐ - !!!!

12:17 › 10. mars 2010

Ég hef bloggað hundrað sinnum um að Framsókn og Sjálfstæðisflokkur séu að grafa kerfisbundið undan stjórninni og þykjast bara vilja leysa Icesave (sem er lausaleikskrói Sjálfsstæðisflokksins). 

Undirferli Sigmundar kemur mér ekkert svo á óvart og heldur ekki Bjarna Ben.  Það eina sem þeir vilja er að þreyta ríkisstjórnina til örendis, ala á sundrungu (með góðum árangri) og komast svo að ketkötlunum í vor.  Taka svo við sem frelsandi englar.

Ég hef bloggað hundrað sinnum um þetta.

Og núna er þetta komið í ljós með skýrum hætti.  Ég gef sjálfum mér prik fyrir pólitíkst innsæi.  Ég veit líka að stjórnin er í raun fallinn því að villta vinstrið er blindað af sjálfsréttlægingu og kann bara að veita viðnám gegn stjórnvöldum og ferst það illa úr hendi að stjórna.  Ég hvet kjósendur VG að vera heiðarleg í næstu kosningum og kjósa bara Sjálfstæðisflokkinn.  Þetta valda-millistig sem VG er þvælist bara fyrir og þyrlar upp tálsýn um raunverulega möguleika.  Og vitiði hverjir rölta hlægjandi í bankann?  Jú Sjálfstæðið og Framsókn.  Og VG verða á sínum stað, öskrandi á hliðarlínunni. 

-Þannig höfum við alltaf haft það og þannig finnst mörgum best að hafa það. 

Þjóðin er rænd af Sjálfstæðisgangsterum og Framsóknarbófunum meðan VG gargar um óréttlætið og hvetur almenning til að brýna hnífana

Atkvæði greitt VG er atkvæði greitt Sjálfstæðisflokki eins og dæmin sanna trekk í trekk.  Ég held að það sé komin tími á að keyra kraft í Icesave-samningana án miljarðamæringanna (sem eiga fjölskylduauð sinn allan undir pólitískum velsnum) og ljúka þessu með Lee Bucket í brúnni. 

Það er löngu kominn tími á að beita á Framsókn og Sjálfstæðið sömu meðulum og þessir skaðvaldar hafa beitt á þjóðina. 

-Nú þarf ríkisstjórnin að hætta að mæta með hníf í byssubardaga.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.