ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE
Teitur

Teitur

Teitur starfar við íslenskukennslu í Gautaborg og líkar vel. Hann hefur líka BA próf í trúarbragðafræðum og hefur nýlokið námi í alþjóðaviðskiptum. Teitur er gegnheill krati og óragur samfélagsgagnrýnandi. Áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, bifreiðar, tilvistarleysi guðs, nördalega hluti og hjómsveitina KISS.

Svindl á Útvarpi sögu...

12:42 › 8. febrúar 2010

Útvarp Saga er sér á báti.  Þar eru allir að rífast.  Hlustendur rífast við þáttastjórnendur sem svo rífast við þáttastjórnendur á öðrum útvarpsstöðvum.  Tæknimenn skella hurðum rífast skammast út í þennan og hinn.  Efst á þessum rifrildis-bing situr Arnþrúður Karlsdóttir og rífst við ALLA.  Fyrrverandi vinkonur, starfsmenn, félaga og vini.  Rífst við Óla blaðasala, Guffa í bílasölunni og Bjargvættinn Laufey  Rífst og skammast undir gulum strípum, bleksvörtum maskara og eldrauðum varalit. 

Arnþrúður er svar Reykjavíkur við Hallbirni Hjartarsyni útvarpsstjóra í Kántríbæ. Hún hefur pottþétt rifist við Hallbjörn einhverntíman og sennilega massað hann niður í svörðin svo ekkert stóð eftir nema rifinn kábojhattur og tómur pakki af bláum Ópal.

Síðast komst Arnþrúður í fréttirnar þegar hún reifst við samkeppnisráð út af einhverri vél sem mælir "hlustun" á útvarpsstöðna hennar.  Arnþrúður ætti að skoða það mál nánar og hætta að rífast við fólk og hlusta á það í staðinn.. 

Eitt stykki munnur og tvö eyru eru ekki tilviljun. 

En Arnþrúður er ekki bara átakasækin.  Hún virðist lika vera göldrótt.  Á vef Útvarp Sögu er alltaf einhver könnun í gangi.  Mál sem eru i deiglunni eru tekin fyrir og lesendur geta svo kosið með einfaldri netkosningu.  Nú hefur Eimreiðin nokkuð þétt net af leyniþjónustufólki sem fylgist vel með málum líðandi stundar.  Útsendari minn vakt athygli mína á því að undur og stórmerki eiga sér stað á þessum vef á hverjum degi

Útslitum er allt í senn hagrætt og gefið til kynna að mun fleiri hafa kosið í téðum kosningum en efni standa fyrir.  Eftirfarandi skjámyndir eru þessu til staðfestingar.



og.....



Takið eftir því að klukkan svona 10 mínútur í 12 á á morgun, breytast tölurnar í könnuninni á Útvarpi Sögu á dramatískan hátt.  Ef tölurnar breytast ekki, þá má búast við því að fjöldi þáttakenda sé á bilinu 400 til 500 en ekki 1800 til 2000.   

Og þá er líka næsta víst að Arnþrúður hafi lesið þetta blogg. 



- - - - -Og sé alveg brjáluð.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.