Svindl á Útvarpi sögu... Tvífarar vikunnar.

8. febrúar 2010

Sóðabloggari, sóðapési og asni.

Eimreiðin

Ástþór Magnússon kallar mig Sóðabloggara, sóðapésa, asna og segir mig síðan "hjakkast" á Arnþrúði Karlsdóttur. 

..... nú þarf ég að taka mér hlé sökum hláturskasts sem torveldar pikk á lyklaborðið...

12 mínútum seinna:


En hafið þið pælt í því hver regin mistök það voru að kjósa ekki Ástþór sem forseta?  Hann hefði verið FRÁBÆR!!.  Ef hann hefði verið forseti þegar Bandaríkjamenn réðust inn í Írak og allt það ógeð, hefði Ástþór pottþett brillerað eins og engill í jólasveinabúning.  Hann hefði sennilega stoppað þetta!  Sprautandi tómatsósu á Bush og Blair, Öskrandi á þá að þeir væru FÁVITAR  . . . .og ....ASNAR   !!!!.

Og hann hefði haft rétt fyrir sér að öllu leyti.  Synd að þessu.  Þið getið yljað ykkur um hjartarætur og hugsað um fallegri heim yfir þessari mynd. 





Já og hvað varðar hina efnislegu hlið ásakanna Ástþórs þá hef ég rétt fyrir mér.  Útvarp Saga er að svindla í þessum kosningum sínum. 

ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.