Þeirri hugsun laust niður í huga mér í dag eða í gær að við Íslendingar eigum engan kven-Ladda. Ég er ekki að segja að það finnist ekki góðir kven-kómíkerar. Þær eru all nokkrar. Halldóra Geirharðdsóttir,
Ólafía Hrönn, Steinunn Ólína og fleiri.
Ég er að tala um amatörana í kómík. Þá sem hafa rúllað yfir próffana eins og enginn sé morgundagurinn. Frægastur er Laddi, svo kemur Jón Gnarr, svo kemur Sveppi og svo framvegis.
Þið vitið. Þessi hæfileikabúnt sem gersamlega brillera í kómík.
-Það er enginn svona kona, sem er synd.
það hefur sýnt sig að amatörarnir eru venjulega miklu fyndnari en lærðir leikarar. Þar eru amk stjörnurnar.
Blogg
Enginn kven-Laddi.
21:00 › 8. febrúar 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





