ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE
Teitur

Teitur

Teitur starfar við íslenskukennslu í Gautaborg og líkar vel. Hann hefur líka BA próf í trúarbragðafræðum og hefur nýlokið námi í alþjóðaviðskiptum. Teitur er gegnheill krati og óragur samfélagsgagnrýnandi. Áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, bifreiðar, tilvistarleysi guðs, nördalega hluti og hjómsveitina KISS.

Stóra hamborgaramálið og VR...

09:16 › 21. febrúar 2010

 Þann 2. febrúar birtist frétt á stöð 2 þess efnis að lykilstarfsmenn VR hefðu eytt 7 miljónum á kreditkort félagsins árið 2008.  Logi Bergmann sagði frá þessu þungbrýndur og haukfránn þar sem hann bókstaflega boraði alvarlegri sjónu sinni í innanverða höfuðkúpu áhorfenda sinna.  7 miljónir og grunur um að sumt af þessu hefði verið til einkanota!

-Ekki gott.

Í kjölfarið var formaður VR tekin í viðtal þar sem hann þurfti að verja þetta án þess þó að vita nákvæmlega um hvað málið snérist.  Frekar óþægileg staða satt best að segja sérstaklega þar sem þessar úttektir áttu sér stað ÁÐUR en Kristinn Örn varð formaður í VR.

En þetta var einmitt markmiðið. Að láta stjórnina og formanninn líta illa út.  Það má alveg segja það hafi tekist. 

Færri vita að þessar upplýsingar um kreditkortanotkun ársins 2008 eru fengnar úr félaginu sjálfu og eru runnar undan rifjum fjórmenninganna sem vilja ná undirtökum í VR.  Fjórmenningum sem tengdir eru andstyggilegum samtökum sem heita Nýtt Ísland.  Í skjóli þess að þau eru stjórnarmenn í VR, hafa þau aðgang að allskonar upplýsingum úr félaginu.... og hvað gera þau?  Þau leka þeim í fjölmiðla!!!  -Traustvekjandi stjórnarfólk eða hitt þó heldur!

En ég ætla ekki að fjalla um þennan ömurlega og huglausa gjörning fjórmenningaklíkunnar.

Ég ætla að fjalla um efnisatriði málsins.  Hvað er gagnrýnt? -Byrjum á því.  Já, 8 lykilstarfsmenn hafa kreditkort frá félaginu! 

---Ó Ó Ó.  Hneisa! ... Skömm! ... Órán! ...Spilling! ... Valdníðsla! 


Til að gera langa sögu stutta þá er þetta sniðugt. Þetta er gagnsætt og þetta er ofureðlilegt.  Með þessu móti er komið í veg fyrir hundrað reikninga út um allar trissur, tvist og bast út um allt land.  Fólki er einfaldlega treyst fyrir útgjöldum félagsins (rekstrarkostnaður, skrifstofa o.s.fr.) enda eru allar úttektir öllum ljósar og skýrar því að þær koma fram á yfirliti samdægurs.  Með þessu móti er nánast útilokað að svindla á VR.  Hver einasti reikningur er bakkaður upp með kvittun og svo er farið yfir allt draslið þegar yfirlitið berst frá bankanum.  sem sagt:  Ekkert grunsamlegt, heldur eðlilegt og gegnsætt.  Leiðinlegt fyrir fjórmenningaklíkuna en svona er þetta.

Synd að Helga Arnardóttir fréttamaður Stöðvar 2 hafi gleypt þetta svona hrátt.  Eiginlega óskiljanlegt. Þetta er svo léleg fréttamennska að undrum sætir.  Fréttin í þessu er allt önnur og sæmilegur fréttamaður hefði komið auga á hana strax.  Ég kem að því síðar.

En OK.  Þetta er vonandi skýrt.  Kreditkort fyrir lykilmenn eru eðlileg og sjálfsögð.  Það kostar slatta að reka apparat eins og VR, pappír, blek og hitt og þetta sem kemur upp. 

Þá kemur að þeim atriðum sem fréttamaðurinn Helga Arnardóttir tekur fram sem dæmi um hroðalega misnotkun á þessu kerfi.  "Svo virðist að sumar úttektirnar séu til einkanota". 

---Ó Ó Ó.  Hneisa! ... Skömm! ... Órán! ...Spilling! ... Valdníðsla!

Hvað fann Helga Arnardóttir?  Jú þetta hérna:



Ég er ekki að grínast.  Í öllu þessu máli eru ÞETTA fréttin.  Þetta er ástæðan fyrir því að fjórmenningaklíkan lekur trúnaðarupplýsingum úr sínu eigin félagi!!  Ég vek athygli á afhjúpun ársins í þessu máli.  Einhver starfsmaður VR hefur fengið sér hamborgara á Vitabar!  -Og sleppt frönskunum!  Ha?  Sex þúsund kall í Bræðrunum Ormstein?  (gæti það verið minniskort eða eitthvað álíka, hugsanlega prentarahylki?) 

---Ó Ó Ó.  Hneisa! ... Skömm! ... Órán! ...Spilling! ... Valdníðsla!


Þúsundkall takk fyrir. Það er nú öll spillingin í þessu máli.  Ég ætla að tilnefna Helgu Arnardóttur til fréttamannaverðlauna ársins fyrir þessa afhjúpun.

Það sem hefur skyggt á þessi kaup á hamborgaranum á Vitabar (og engar franskar með) er úttekt í Markó Pólo sem er fatabúð.  Ég sendi barasta fyrirspurn til VR og fékk svar nokkrum dögum síðar.  Nú veit ég að svarið hugnast ekki fjórmenningaklíkunni því það er síður en svo sensasjónal.

-Tölvutaska....


Þetta er tölvutaska!   -Þetta er ódýr tölvutaska!.  það er ekkert óeðlilegt við þessi kaup.  Þetta er taska utan um tölvu ef einhver er að misskilja mig.  Það þarf stundum að kaupa svoleiðis.  það getur jafnvel sparað peninga að hafa svona tösku utan um tölvu sem er í eigu VR. 

Tölvutaska ágæta VR fólk.  Það var nú alltsaman.

Ég á ekki orð yfir fjórmenningaklíkunni að draga félagið sem þeir eru í forsvari fyrir í gegnum svona niðurlægingu.  Ef þá á að leka einhverju í fjölmiðla, þá er oft betra að hafa eitthvað fyrir sér í ásökunum sínum.  það er gott og það er heilbrigt þegar þannig er farið, en að leka heilu ársyfirliti um rekstrarkostnað VR til þess að varpa ljósi á einn skitinn hamborgara frá Vitabar og tölvutösku, er bara fáránlegt.  Fárálegt og sýnir hversu þetta fólk er reiðubúið að leggjast lágt.

Fréttin sem Helga Arnardóttir sá ekki, en hefði átt að sjá, var hinn annarlegi tilgangur lekans.  Hún hefði einnig getað sagt frá lepp-framboðinu sem tryggja á fjórmenningunum völd yfir VR. Hún gæti einnig sagt frá greinilegum tengslum við hið ógeðslega félag, Nýtt Ísland.  Og fyrst hún er byrjuð þá ætti hún að forvitnast um það hversvegna fjórmenningarnir eru svona áfjáðir að komast í stjórn Lífeyrissjóðs Verslunarmanna! 

-Hugsið ykkur að treysta þessu fólki fyrir mikilvægum upplýsingum um rekstur og fjárfestingar Lífeyrissjóðsins!!!.  Það væri eins og að opna hænsakofann fyrir hungruðum tófum.

Þessu fólki er ekki treystandi.  Þau leka upplýsingum um VR í fjölmiðla til þess eins að skaða stjórnina (sem þau sjálf eiga sæti í) að því er virðist til þess að koma höggi á aðra stjórnarmenn sem hafa unnið sér það eitt til saka að hafa verið í stjórn með Gunnari Páli sem var, ef þið munið það ekki, kosin burt úr trúnaðarstörfum fyrir VR.

Eftir því sem ég skoða þetta mál nánar verður mér ljóst hvaða afglöp það væru ef að fjórmenningarnir næðu markmiðum sínum.  Mér sýnist þetta snúast um allskonar mál sem koma verkalýðsmálum ekki beint við, heldur óbeint.  Andstöðu við inngöngu í ESB og afþökk á aðstoð frá AGS.  -Eitthvað svona.

Ragnar Þór Ingólfsson sagði í ræðu með tryllingsglampa í augunum að Íslendingar ættu bara að borða fisk í staðinn fyrir að þiggja aðstoðina frá AGS. -og uppskar mikið klapp.  Þetta er skrum ágætu lesendur.  Innihaldslaust lýðskrum og popúlismi af þeirri sort sem hefur reynst hvað skaðlegastur fyrir þjóðir sem ganga í gegnum erfiðleika. 

-Það er hroðalegt að horfa upp á þetta.  Það er hroðalegt eð horfa upp á þessi samtök, Nýtt Ísland með sinn hálffasisma og enn hroðalegra er að fjórmenningarnir í VR skulu tengjast þessum andstyggilegu samtökum (sem hafa á stefnuskránni að setja atvinnulaust fólk í þegnsskylduvinnu!).  Borgarhreyfingin hefur meir að segja tekið undir málflutning þessara ógeðslegu samtaka sem Nýtt Ísland er og vísa á heimasíðu þeirra frá sinni. (ég mjókkaði skjáskotið, sem er tekið héðan)



Ég er að reyna að ímynda mér svona róttæka þjóðfélagsumbótahreyfingu hér í Svíþjóð sem tengir sig við hálf-fasísk samtök á borð við Nýtt Ísland....en ég get það ekki.  -Þetta er svo absúrd. 

Það er líka absúrd hvað auðvelt virðist vera að manipúlera með fréttamenn fjölmiðlana á Íslandi.  Þeir virðast ekki rannsaka ástæðurnar fyrir því að upplýsingum er lekið í þá.    Ég mæli með rómversku aðferðinni.  Hún klikkar ekki.  Hún er svona:

-Hver hagnast?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.