Undanfarna daga hef ég verið að blogga um VR. Fyrir dyrum standa átök um nokkur stjórnarsæti og það má með sanni segja að mikið sé í húfi. Í stuttu máli snýst þetta um 4 manna hóp sem hefur núna raunverulegan möguleika að ná undirtökum í félaginu með því að bjóða fram lista skipaðan leppum. -Þeim vantar 4 í viðbót.
Ef það tekst þá fer af stað atburðarás sem mér hugnast ekki sem félagsmanni í VR.
Í fyrsta lagi vegna þess að þessi fjögur sem vilja ná undirtökum í VR eru tengd andstyggilegum samtökum sem heita Nýtt Ísland. Ég hvet alla til til að kynna sér málefnaskrá Nýs Íslands. En þar er m.a að finna eftirfarandi stefnumál
-Að reka alla millistjórnendur hjá hinu opinbera
-Að atvinnulaust fólk verði skikkaði í þegnskylduvinnu eftir 3 mánuði á atvinnuleysisskrá.
-Að komið verði á laggirnar leyniþjónustu til að berjast gegn glæpum
-Að byggð verði rammgerðari fangelsi.
-Svo var eitthvað um að fá aðstoð frá Brasilíu við að leita að olíu við Ísland....
Í stuttu máli eru þetta galin samtök og fjórmenningarnir í VR (sem vilja ná undirtökum í stjórninni) eru tengdir þessum samtökum!
Þau þræta fyrir það en óteljandi vísbendingar benda til annars. Ragnar Þór Ingólfsson, einn fjórmenninganna hefur meir að segja bloggað um þessa veru sína í Nýju Íslandi.
Sama má segja um Guðrúnu Jóhönnu. Hún harðneitar að vera í Nýju Íslandi.
En þetta má finna á Vísi.is.
Nú hef ég ekkert gaman að því að nudda fólki upp úr eigin þversögnum. En rétt skal vera rétt. Eru fjórmenningarnir tengdir við Nýtt Ísland eða ekki?
-Ef svo er, hver er skoðun þeirra á stefnuskrá Nýs Íslands?
Þetta er ekkert flókið, ekkert persónulegt heldur bara ofureðlilegar spurningar til þeirra sem vilja láta kjósa sig til ábyrgðarstarfa í verkalýðsfélagi.
Það hefur verið dapurlegt að taka þátt í þessari umræðu. -Dapurlegt. Mér hafa verið gerðar upp allskonar skoðanir á allskonar málum og ættarvenslum bríkslað á mig til að reyna að útskýra þessi skrif mín. Ég hef fengið tölvupósta frá allskonar fólki, bæði frá þeim sem styðja núverandi stjórn og þeim sem styðja fjórmenningana. Innihald þessara tölvupósta eru að megninu til viðkvæmar upplýsingar sem eiga að gegna því hlutverki að skaða andstæðingana. Ég frábið mér svona upplýsingasendingum og hendi þessu umsvifalaust í ruslið.
Ég ætla að taka þau saman þeim illnefnum sem mér er gefið og halda þeim til haga. Þegar þau eru orðin nógu mörg þá ætla ég að nota þetta forrit og búa mér til veggfóður og selja dýrum dómum.
Spáum aðeins í þessu. Ef einhver er að grafa upp eitthvað úr minni fortíð og nota gegn mér í dag!. Ef svo er þá er um auðugan garð að gresja því ég hef jú marga fjöruna sopið. Já svona eins og flestir sem teygt hafa lífsins veig í dreggjar. Ég er ekki skandalfrír. Ég hræðist skandalfrítt fólk og tel það augljóst merki um myrka fortíð og skuggalegan hugsunarhátt.
En höldum áfram með þessa pælingu.
Ég er þátttakandi í einhverjum umræðum um VR og einhver kemur fram með eitthvað 10 - 15 ára gamalt stöff sem á að sverta mig! Hvað kemur það umræðunni við? þetta brölt virðist draga fram það versta í fólki. Ég hef vissa samúð með fjórmenningunum. Þau komu inn í VR, fullt af krafti og vilja til góðra verka og rekast síðan á hindranir. Það er túlkað á versta veg og í stað þess að reyna að leysa málin með viðræðum þá er pakkað í vörn og byrjað að öskra. Svona er ekki hægt að vinna. Svona framkoma er ekki ásættanleg fyrir kosna fulltrúa í verkalýðsfélagi. það er fræg sagan af því þegar einn fylgismaður fjórmenninganna var að tala á einhverjum fundi, en þegar í pontu var komið þá tilkynnti hann að hann myndi ekki tala af virðingu fyrir atvinnulausum!
-Gengur þetta upp? -Er þetta boðlegt? Þetta er dæmi um skrum af verstu (og heimskulegustu) sort.
Sama má segja um Ragnar Þór Ingólfsson sem birtir á blogginu sínu PERSÓNULEGT BRÉF sitt til annars VR félaga! Þetta er á svo lágu plani að mér dettur helst í hug kommúnistana í Tékkoslóvakíu sem njósnuðu kerfisbundið um "andstæðinga" sína og útvörpuðu upptökunum á besta tíma í ríkisútvarpinu þar í landi.
-Góða fólk!
Höldum okkur við efnisatriði málsins. Ef einhver er búin að gleyma þeim þá eru þau hér:
Eru fjórmenningarnir tengdir við Nýtt Ísland eða ekki?
Ragnar Þór Ingólfsson segir í einni athugasemd við þetta blogg mitt að
"Ef nýr listi kemur fram þá þýðir það einfaldlega lýðræðislegan
valkost fyrir félagsmenn, öfugt við núverandi forystu treysti ég
félagsmönnum VR 100% til að kjósa um framtíð félagsins".
Þessu er ég sammála. Ég treysti líka félagsmönnum í VR til að velja það fólk til ábyrgðarstarfa sem því þykir best. Höfum því allt upp á borðinu. Tengsl fjórmenningana við Nýtt Ísland og Lepplistann sem á að tryggja hallarbyltingu í VR. Hvert er marmið fjórmenningana með þessu brölti? Hverjar eru leiðirnar að þessu marki? Er það með því að leika tveimur skjöldum inn í stjórn VR og undirbúa síðan lepp-framboð til að öðlast meiri völd? Upp á borði með allt þetta! En það er inntakið í málflutningi fjórmenningana, þeim ætti því ekki að vera skotaskuld úr því að upplýsa félagsmenn í VR um ofantalið..
Blogg
Nýtt Ísland og hallarbylting í VR
09:58 › 20. febrúar 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
