ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S
Teitur

Teitur

Teitur starfar við íslenskukennslu í Gautaborg og líkar vel. Hann hefur líka BA próf í trúarbragðafræðum og hefur nýlokið námi í alþjóðaviðskiptum. Teitur er gegnheill krati og óragur samfélagsgagnrýnandi. Áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, bifreiðar, tilvistarleysi guðs, nördalega hluti og hjómsveitina KISS.

"Nýtt Ísland" - - NEI TAKK !

09:57 › 15. febrúar 2010

Nýlega komst í fréttinar að Hells Angels sem eru nokkuð sjáanlegir hér í Gautaborg, hafa á prjónunum að stofna stjórnmálaflokk.  Ég held að fæstum Svíum hugnist slíkt.  Þó eru alltaf einhverjir sem kjósa svona klikk-framboð.  Í lýðræðiskerfi er ábyrgð kjósandans mikil og atkvæði ætti ekki að meðhöndla af léttúð.

Ég kíkti yfir heimasíðuna hjá félaginu Nýtt Ísland sem hefur komist í fréttir að undanförnu vegna "bílamótmæla" fyrir utan banka á höfuðborgarsvæðinu.  Til að gera langa sögu stutta þá hefur þetta félag öll einkenni skrums-framboðs og stefnuskráin er einfaldlega klikkuð.

Fyrsti punkturinn í stefnuskránni er á þá leið að krafist er að "öllum millistjórnendum, framkvæmdastjórum forstjórum ríkisfyrirtækja
verði sagt upp á 1. - 3ja ára uppsagnafrest"
.

Ég hvet lesendur til að kynna sér þetta furðu-framboð,  Þó að þetta sé alltsaman hálf klikkað, þá vara ég sterklega við svona félögum á borð við Nýtt Ísland.  Í niðurlagi á þessari síðu, undir fyrirsögninni Nýtt Ísland vill, spyr sá er ritar sig nokkurra spurninga sem eiga að vekja lesendur úr dróma.

..Er það
nauðsynlegt að við  Íslendingar þurfum 63 þingmenn?

-Þurfum við Alþingi?


-Þurfum við stjórnmálaflokka? 

-Er hægt að hugsa Ísland án
stjórnmálaflokka?

Ég vara sterklega við svona hugmyndum og það er á ábyrgð okkar borgaranna að sporna strax  við svona þróun.  Þetta er ekki fyndið og sérkennilegt,  Þetta er ekki óður til fjölhyggjunnar eða umburðarlyndi sem umvefur allar skoðanir. Þetta er bara rangt og svona hugmyndir eru einfaldlega fasískar í eðli sínu.

Ég kynnti mér málið nánar, sendi út nokkra pósta og komst mér til hryllings að fólkið viðloðandi þennan félagsskap er í stjórn VR!  Verkalýðsfélaginu mínu!  þar er komin hluti af þeim allra klikkuðustu þegar áhlaupið var gert á VR-bófann.  Lúðvík Lúvíkson heitir aðalsprautan í Nýju Íslandi en honum til fulltingis eru Ragnar Þór Ingólfsson og Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Bjarki Steingrímsson sem öll eru í stjórn VR!!  Bjarki er meir að segja fyrrverandi varaformaður!

Það sem er svo uggvænlegast í öllu þessu samhengi er að allt apparatið er fjármagnað af manni sem heitir Sveinbjörn Ragnar Árnason og starfar sem bílasali.   Nokkuð sem gæti hugsanlega varpað ljósi á áhersluna á bílabransann í hinum þaulskipulögðu mótmælum Nýs Íslands. Reyndar vaktið það undrun mína að á heimasíðu bílasölunnar hans Sveinbjörns eru bílalánin ógurlegu mærð í hvívetna og auðvelt að afla sér slíkra, meir að segja í gegnum tölvuna heima hjá sér.

Ég hvet fólk að skauta framhjá skruminu í þessu fólki og ég hvet félagsmenn í VR að kjósa þetta lið í burt, því augljóst er að annarlegar hvatir liggja að baki þessum ógeðfelldu samtökum sem "Nýtt Ísland" er.  Ég hvet einnig alla dugega blaðamenn að afhjúpa þessi skrum-samtök.  Einnig hvet ég fórnarlömb þessara ömurðarsamtaka að hringja í lögregluna þegar þetta lið nálgast með bilflauturnar þandar og tryllingsglampa í augunum.

Svona lagað þarf að stöðva með öllum ráðum tiltækum. 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.