ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.1° 0m/s Calm
Teitur

Teitur

Teitur starfar við íslenskukennslu í Gautaborg og líkar vel. Hann hefur BA próf í trúarbragðafræðum og hefur nýlokið námi í alþjóðaviðskiptum. Teitur er óragur samfélagsgagnrýnandi og áhugamaður um samfélagsmál, stjórnmál, náttúrvernd, bifreiðar, tilvistarleysi guðs, nördalega hluti og hjómsveitina KISS.

Leið 4 Hagar - Sund.

08:15 › 12. febrúar 2010

Eins og ég hef oft tæpt á á þessu bloggi mínu, er ekki stunduð orðræða um samfélagsmál á Íslandi.  það er stunduð moðræða.  Sá vinnur sem hefur hæst og nær að snúa einhvernvegin á andstæðinginn. 

"Ha ha ha.  Djöfull er hann góður.  Hann sagði honum að það heyrðist þegar hann hristi hausinn!!  ha ha ha."

Aldrei er horft á staðreyndir eða rök heldur einblínt á skrumið.  Þetta er ákveðin snúningur upp á Orwellskan máta.  En í bókinni 1984 er það markmið og inntak stjórnvalda að snúa á haus hugtökum tungumálsins.  Hatur verður Ást, pyntingar verða líknandi og stríð verður friður.  Því miður hefur þessi hryllilega framtíðarsýn Orwells ræst að miklu leiti. Flestir kannast örugglega við það að þegar skriðdreki skýtur úr turnbyssunni inn í íbúðablokk er það kallað "friðaraðgerð".  Umhverfisspjöll eru kallaðar betrumbætur á náttúrunni samber "Fagralón" sem Finnur Ingólfson skýrðu upp á nýtt eftir að hafa sökkt stórmerku hverasvæði sem hefur kallastFögruhverir í mörg hundruð ár. 

Já ég ef skrifað um þetta áður og er verð alltaf jafn reiður þegar ég sé landa mína fylla lungun af moði  eins og það væri hressandi fjallagustur

Ég held ekki að Íslendingar séu heimskari en aðrar þjóðir.  þeir eru hinsvegar aldir upp við moðið alla sína hunds og kattar tíð. (Einu sinni, fyrir ekki svo alls löngu sat heil ríkisstjórn sem aldrei hafði komið til útlanda nema Halldór Ásríms, sem hafði dvalið einn vetur í Noregi).  Eina viðnámið sem ég hef séð gegn moðinu er DV síðustu 8 - 12 mánuði.  Bloggið hefur alltaf staðið vaktina enda ekki hægt að stjórna því. 

En ég er að spinna mig að punktinum með þessum víðfema inngangi.  Ég ætlaði nefnilega að tala um Haga.  Þennan risa í íslenskri smásölu.  Fyrirtæki sem er með 60% af matvæla markaðinum.  Aldrei nokkurn tíman hefur komið i umræðunni það lang-mikilvægasta sem snertir Haga.  Það er alltaf einblínt á rosa-afskriftir og einhvern 15% hlut sem bónus-skálkarnir munu koma til með að eiga.  Það lang- mikilvægasta, er að skipta upp fyrirtækinu.  Þar eru hagmsunirnir fyrir neytendur.

Og hérna kemur krókurinn frá innganginum loksins.  Þetta hefur
viðgengist vegna þess að okkur hefur verið talin trú um að fyrirbæri
sem kalla er "hagkvæmni stærðarinnar" sé lögmál sem leiði til lækkaðs vöruverðs.

Það er búið að ljúga að þjóðinni endalaust með þvaðrinu um hakvæmni stærðarinnar.  Bónus er svona ódýrt vegna þess að þeir kaupa svo rosalega mikið inn í einu.  Jú þetta hljómar sennilega, en svo kemur lítil búð sem setur allt í uppnám.  Fjarðarkaup, sem er bara ein búð, kemur alltaf vel út í könnunum.  Sama má segja um lítið apótek í Reykjavík sem er alltaf ÓDÝRARA en Lyfja og hvað þetta nú allt heitir.

Undir gunnfánanum um hagkvæmni stærðarinnar hafa þvílík skemmdarverk verið framin á verslunarumhverfinu á Íslandi að það verður ekki jafnað með neinu, jafnvel þótt litið sé lengst aftur í aldir. 

-Það sem þarf er kapítalismi sem bundinn er í skýrar og einfaldar reglugerðir!  Kveðið skal á um hvað hver og einn megi vera stór, eins og allstaðar annarstaðar í kringum okkur.  Of "stórar" keðjur skulu skikkaðar að selja hluta af búðunum sínum til samkeppnisaðilana og krosseigna tengsl skyldra aðila skulu bönnuð.  Það er beinlínis djöfullegt að bónus-hyskið skuli komast upp með það að segja að 10-11, Bónus og Hagkaup séu í hörku samkeppni og skuli ekki vera talin sem sami aðilinn.  Óþolandi er að samkeppnisyfirvöld skuli ekki fatta þetta.  Óþolandi er að ríkisstórnin undir forrystu krata skuli ekki fatta þetta.  Það á bara að skipta um hausinn á meinsemdinni.

Það verður að brjóta upp Haga í marga litla búta, og selja hæstbjóðanda. 

-Það er rétt.  Það er kapítalismi og það er gott fyrir alla.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?