1. febrúar 2010
Það er fullkomnað...
Eimreiðin
Nú situr s.s á Alþingi manneskja sem þekkir frá fyrstu hendi hvernig var staðið að markaðssetningu þessara glæpareikninga. Manneskja sem er að hluta til ábyrg fyrir mestu svívirðu sem Íslendingar hafa séð og fundið á eigin skinni.
Það er ekki henni í hag, né öðrum Sjálfstæðismönnum að samið verð um lausn Icesavedeilunnar. Enginn vill vera valdur af Icesave-skuldaklafanum. Með lausn á Icesavemálinu viðurkennist ábyrgð FLokksins.
Það er gersamlega útilokað að samið verði um lausn Icesavemálsins meðan Sjálfstæðisflokkurinn hefur eitthvað að segja um málið eins og nú er. Hinsvegar mun Sjálfstæðisflokkurinn þykjast voða mikið að reyna að leysa málið.
En trúið mér lesendur góðir.
Þau eru að blöffa og bíða eftir tækifærinu til að taka við landstjórninni að nýju.

















