Það var ánægjulegt að fylgjast með útreið Samfylkingarkvennanna Sigrúnar Elsu Smáradóttur og Margrétar Sverrisdóttur í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Sigrún stefndi á 2. sætið en lenti í 7. Margrét stefndi á sæti númer 3 en hafnaði í 8. sæti.
Þó að ég segi að þessi slælega frammistaða sé ánægjuleg, er ekki þar með sagt að það hlakki neitt í mér. Ég þekki þessar fraukur ekki boffs og gæti ekki staðið meira á sama um vegsemd þeirra.
Það sem er svona gleðilegt er að kjósendur Samfylkingar eru á skýran hátt að segja nei við þessu. Ekki fleiri furðu-ferðalög á kostnað Reykvíkinga. Ekki fleiri rugl-nefndarsetur fyrir útvalda vini flokksforrystunnar.
Ég er innilega stoltur af Samfylkingunni minni fyrir þessa afstöðu. Listinn er að mér sýnist nokkuð sterkur þótt prestgarmurinn mætti missa sig. Hann er þó ugglaust þarna af góðum hug. Ég held samt að Bjarni Karlsson sé enginn pólitíkus með vision. Prestar í stjórnmálum hafa alltaf reynst illa. Bjarni Karlsson mun ekki reynast undantekning frá þeirri reglu. En svo er reyndar farið með um flesta frambjóðendur í borginni. Þetta eru ekki hugsjónafólk nema að litlu leyti.
Það sama má segja um skáldin. Þau eru afar sjaldgæf þótt margir líti á sig sem slík. Stjórnmálamenn eru lika sjaldgæfir. Mest eru þetta framsóknarmenn af ýmsum gerðum. -Moðreyksmenn.
Það eru þó nokkrir þarna sem vert er að gefa gaum. Hjámar Sveinsson er einn. Annar er Dofri Hermansson. Þetta eru menn sem vit er í.
Það má margt klikka ef að Samfylkingin mun ekki rúlla upp næstu kosningum. FLokkurinn er stórlaskaður eftir Davíðshrunið. Framsókn gæti komið á óvart en ég vona bara að Ólafur Fokkíng Magnússon láti nú af frekari afskiptum af stjórnmálum. Hans mun verða minnst sem lélegasta borgarstjóra Reykjavíkur langt fram eftir öldum. Honum tókst það ótrúlega. Að vera lélegri en Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson.
Blogg
Sigrún Elsa og Margrét Sverris.
14:14 › 1. febrúar 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
