Eiður Guðnason

Eiður Guðnason

Eiður Svanberg Guðnason stundaði nám í stjórnmálafræði í Bandaríkjunum. Lauk BA prófi í ensku frá Háskóla Íslands. Var blaðamaður við Alþýðublaðið, fréttamaður og varafréttastjóri Sjónvarpsins 1963 til 1978. Alþingismaður fyrir Alþýðuflokkinn 1978-1993 (umhverfisráðherra 1991-1993) Sendiherra í Noregi, Kína og víðar 1993 til 2009. Hefur ritað í blöð og tímarit. Skrifar reglulega um málfar og efnistök fjölmiðla.

  • Gjöldum varhug við smíði skýjaborga

    11. maí 2012

    Þessi hugleiðing mín um kínverska fjárfestingu á Grímsstöðum á Fjöllum birtist í Morgunblaðinu i morgun, (11.05.2012)


     


    Fyrirhugaðar fjárfestingar kínverska  auðmannsins og fjárfestisins Huangs Nubo á Hólsfjöllum hafa verið umræðu. Sá sem þetta skrifar er hlynntur  erlendum fjárfestingum á Íslandi og  telur það eina  af mörgum leiðum  til að bæta lífskjör landsmanna. Kínversk fyrirtæki og Kínverjar  fjárfesta nú um  víða veröld í krafti efnahagslegar velgengni, mikils hagvaxtar og gildra gjaldeyrissjóða. Hvar sem  sést olíubrák,  gaslykt er í lofti  eða glittir á málma í grjóti eru hráefnahungraðir Kínverjar  til staðar. Þetta  á einkum við um  lönd  sem annað hvort  eru bláfátæk, stórskuldug  eða í efnahagshremmingum af öðrum toga. Nema allt þrennt sé.


     


    Hér á landi hefur kínverska fyrirtækið China Blue Star eignast málmblendiverksmiðjuna á Grundartanga með yfirtöku. Ekki er annað vitað en þar hafi allt  gengið að óskum.  Í farvatninu þar  eru mikil  stækkunaráform  sem vonandi ná fram að ganga. Stóriðjan á Grundartanga, lengst af  í eigu Elkem í Noregi,  hefur verið Vestlendingum og þjóðinni til góðs.


     


    En undirritaður játar að því meira sem hann hugsar um áform Huangs á Hólsfjöllum því fleiri  spurningar vakna  og aðvörunarljós kvikna.  Það er eitthvað sem gerir að verkum að  þetta gengur ekki alveg upp.  Bitarnir í púsluspilinu raðast ekki rétt saman. Það er  reyndar líka ógeðfellt að þessi tilvonandi gestur á Íslandi skuli guma  af því í fjölmiðlum á heimaslóð að hafa knésett íslenskan ráðherra. Það segi ég þótt ég hafi engar mætur á  pólitískum verkum ráðherrans sem í hlut á.  Þau ummæli vekja Huang ekki  samúð eða stuðning hér á  landi.


     


    Stærð  og umfang fjárfestingarinnar, 16 milljarða er undrunarefni. Golfvöllur , flugvöllur,  gistihús,- nefndu það. Réttilega  hefur verið bent á að   langan tíma muni taka að  fá  16 milljarðana  til baka, en markmið allra fjárfestinga er að fá  fjárfestinguna til baka. Hvaða markaðsrannsóknir liggja að baki því  að unnt er  talið að fá þúsundir eða  tug þúsundir auðmanna frá Kína til að  vera á vetrum í vitlausum veðrum á Hólsfjöllum? Greinilegt er að   ekki er  stefnt að  ódýrum hópferðum almennings  í fyrirhuguð Hólsfjallahótel.


     


    Annað sem vekur umhugsun er  hve  fjárfestirinn Huang hefur auðgast ótrúlega á undraskömmum tíma. Þeir sem þekkja svolítið til í Kína vita að slíkt  gerist ekki nema með blessun, – mikilli blessun, -  stjórnvalda og  Flokksins. Þetta eru  ekki bara útsjónarsemi og fjármálaklókindi. Huang stendur ekki einn. Það er mikill misskilingur að halda það.


     


    Enn annað til hugleiðingar: Bæjarstjóri að norðan fer í samningaferð  til Kína. Talsmaður Huangs á  Íslandi talar digurbarkalega fyrir hönd vinnuveitenda síns og virðist ekki alltaf fara rétt með. Hver er reynsla þessarar sjálfsagt ágætu manna af samningum og  viðskiptum við Kína og Kínverja?  Vafalaust  eiga báðir að baki  flekklausan og ágætan feril í viðskiptum. En hver er  reynsla þeirra  af samstarfi við Kínverja og kínversk fyrirtæki?


     


    Fram hefur komið að ekki  hafa öll fyrirtæki Huangs lukkast jafn vel. Ekki hafa heldur allar fjárfestingar Kínverja í Evrópu heppnast jafn vel. Hvað með Gautaborg? Hvað með Píreus sem á  að verða endastöð hins  nýja silkivegar til Evrópu? Þar fer ekki gott orð af gestunum. Hvað með  mikil umsvif á  Ítalíu?


     


    Hér er ekki verið að amast við kínverskum fjárfestingum á Íslandi heldur aðeins  vakin athygli á  að rétt er að fara með gát, – mikilli gát. Vilji Huang Nubo fjárfesta í  ferðamálum á Íslandi væri skynsamlegra að byrja svolítið smærra og  með meiri hliðsjón af íslenskum aðstæðum. Byrja  tildæmis með milljarð eða tvo. Það væri ágæt búbót , – líka fyrir Norðlendinga.  Ef vel gengi gæti þetta svo vaxið og dafnað. Hér ber því að fara varlega, – því ekki er  flas til fagnaðar.


     


    Þetta mikla ævintýri sem hér virðist í uppsiglingu minnir   þann sem þetta skrifar á annað mál í ferðamálasamvinnu Íslands og Kína. Skal það nú rifjað upp í lokin.


     


     Seint á árinu  2005  tókst kínverskri konu sem sagðist hafa mikil sambönd í stjórnkerfinu og kommúnistaflokknum í Kína  að sannfæra  forystumenn hjá FL Travel Group (Icelandair) að það væri mikill gróðavegur að  flytja kínversk brúðhjón til Íslands  til að verja þar hveitibrauðsdögunum.  Brúðhjónin áttu að koma frá þremur borgum í Kína  Tianjin (140 km á frá Peking),  Xian, hinni fornu höfuðborg  og Kunming sem báðar eru langt inni í landi. Raunar var talað um 10-30 þúsund ferðmenn. Í janúar 2006 kom konan með sendinefnd frá FL Travel til Kína og heimsótti allar þessar borgir.


    Reynda menn í sendiráði Íslands í Peking grunaði að hér ætti að byggja á sandi. Það var meðal annars vegna þess að íslenska sendinefndin var fóðruð á röngum upplýsingum og ekki virtist  til staðar nein þekking á  ferðavenjum Kínverja. Sendiráðið lét í ljós miklar efasemdir um málið í heild en fékk  fyrirmæli frá utanríkisráðuneytinu í Reykjavík um að sýna jákvæðni. Sem við reyndum.


    Brúðkaupsferðirnar áttu að kosta  2-3 sinnum meira en  viku til tíu daga ferð  til  4-5 landa á meginlandi Evrópu, en þannig  ferðir  kjósa   Kínverjar helst haldi þeir til Evrópu. Var líklegt að  þúsundir kínverskra brúðhjóna úr þessum borgum færu til vikudvalar á Íslandi sem væri jafn dýr og raun bear vitni? Ferðin ein tæki hátt í sólarhring hvora leið.  Var ekki líklegra að fólkið færi til   meginlands Evrópu  eða  til einhvers  af grannlöndum Kína?  Reynslan sýnir að flestir Kínverjar  sem leggja land undir fót  byrja á að heimsækja lönd í   Asíu áður en  haldið er til Evrópu  eða Norður Ameríku.?  Fulltrúar FL Travel Group voru  þarna kerfisbundið mataðir á röngum upplýsingum.


    Því er þessi saga rakin  hér að aldrei komu nein  kínversk brúðhjón  til Íslands í tengslum við þessar ráðagerðir. Þetta var nefnilega tómt rugl. Hvað íslenskir  aðilar báru mikið  tjón af þessu ævintýri, veit ég ekki. Áreiðanlega var það umtalsvert.


     


    Vítin eru til að varast þau. Þessvegna skulum við stíga til jarðar með mikilli gát þegar talað er um 16 milljarða fjárfestingar á reginfjöllum á Íslandi. Látum ekki plata okkur.   Þetta eru varnaðarorð. Bjóðum góða gesti velkomna til samstarfs sem byggt er á raunsæi og skynsemi  en umfram  allt skulum við fara varlega og gjalda varhug  við  smíði  skýjaborga.


     


    Eiður Svanberg Guðnason


     


     


     



    Upprunaleg færsla á Eidur.is

    Skrifa athugasemd

  • Molar um málfar og miðla 906

    10. maí 2012

    Stundum er nokkuð langt til seilst í myndbirtingum fjölmiðla. Ekki síst á þetta við um netmiðlana. Mbl.is birti (08.05.2012) frétt um stúlku sem lést vegna gaseitrunar frá kolagrilli í tjaldi á tjaldsvæði við þorp í Bretlandi. Með fréttinni er birt mynd af tjaldi á blásnum mel þar sem þvottur hangir til þerris. Myndin er að líkindum tekin á íslenskum öræfum. Þess er ekki getið að myndin tengist fréttinni ekki með neinum hætti. Þetta er fáránleg myndbirting. Myndin bætir engu við fréttina.


     


    Úr veröld Tobbu á dv.is (08.05.2012). Fyrirsögnin er: Kindafætur sem snagar! (!). Svo kemur þessi gullvæga setning: Er það bara ég sem fríka út við að sjá kindaneglur sem snaga? Með kindanöglum er átt við klaufir sem orðabókin kallar ágætlega „hornskó utan um tá á klaufdýri”. Kannski hefur konan sem þetta skrifaði aldrei komið í sveit.


     


    Það er snjallt markaðsbragð hjá Mogga að bjóða háskólanemum iPad spjaldtölvu á hagstæðu verði gegn áskrift í tiltekinn (nokkuð langan) tíma. Margir munu falla fyrir þessu. Stjórnendur í Hádegismóum gera sér grein fyrir því að ungt fólk kaupir ekki Moggann, en allir vilja eiga iPad. Þetta er snjallt. En hvers eigum við gamlir áskrifendur Moggans og iPadeigendur að gjalda?  Hversvegna fáum við ekki Moggann í spjaldtölvuna okkar? Það væri til þæginda.


     


    Leiðarar Morgunblaðsins geta verið dálítið undarleg lesning. Á þriðjudegi (08.05.2012) var Þýskland samtímans kallað kista lýðræðisins. Jafnvel þótt núverandi valdhafar í Þýskalandi séu leiðarahöfundi og eigendum Morgunblaðsins ekki þóknanlegir er ekki fulllangt gengið að segja að lýðræði ríki ekki í Þýskalandi ?


     


    Vantar allsstaðar vinnu, segir í fyrirsögn á eyjan.is (08.05.2012). Þegar fréttin er skoðuð kemur í ljós að þetta er öfugmæli. Það vantar ekki vinnu. Það vantar fólk í vinnu.


     


    Í efnisyfirlit morgunútvarps Rásar tvö (08.05.2012) er bæði talað um alkahólisma og alkóhólisma. Seinni orðmyndina er að finna í stafsetningarorðabók en ekki þá fyrri. Alltaf er gott að gæta samræmis.


     


    Það er annars margt gott um morgunútvarp Rásar tvö. Þar eins og annarsstaðar þarf að vanda sig og hafa hlutina rétta. Sagt var frá orlofsmálum hafnfirskra húsmæðra (08.05.2012). Þar var sagt, og vitnað í lög frá 1972, að sveitarfélög ættu að greiða hundrað þúsund krónur á þávirði fyrir hvern íbúa og að hlutur Hafnarfjarðar væri því rúmlega tvær og hálf milljón króna. Samkvæmt því væru íbúar Hafnarfjarðar 25 talsins, ekki satt? Þetta var  augljóslega út í hött og gat engan veginn staðist , en enginn gerði athugasemd og ekkert var leiðrétt. Athugun á fréttinni í Fréttablaðinu leiddi í ljós að upphæðin sem greiða átti var 100 krónur á hvern íbúa. Ekki hundrað þúsund krónur á hvern íbúa.


     


    Málfarsráðunautur ætti að leiðbeina dagskrárgerðarmanni í Virkum morgnum Rásar tvö, sem aftur og aftur segir svakkla í staðinn fyrir svakalega. Reyna mætti að laga fleira í leiðinni.


     


    Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG


     



    Upprunaleg færsla á Eidur.is

    Skrifa athugasemd

  • Molar um málfar og miðla 905

    9. maí 2012

    Molavin sendi þetta (07.05.2012): Úr dagskrárkynningu á ruv.is: Arnþrúður mætti í Mánudagsdrottningarviðtalið í Virkum morgnum og sagði á hundavaði frá spennandi lífshlaupi sínu. – Molaskrifari þakkar sendinguna. Skyldi málfarsráðunautur vera kominn í sumarleyfi ?


    Norski heimildamyndaflokkurinn Kalt kapphlaup, sem Ríkisútvarpið er byrjað að sýna (08.05.2012) lofar mjög góðu. Fyrsta myndin var einstaklega fróðleg og vel gerð. Gott væri að fá meira af svona efni. Það á að vera mikilvægur þáttur í starfsemi Ríkissjónvarpsins að fræða okkur um samtíðina og söguna. Að skaðlausu mætti minnka framboðið af amerískri sápu. Þetta var fín mynd.


    Meira um dagskrárkynningu eða dagskrárauglýsingar í Ríkissjónvarpinu. Molaskrifari hélt að sér hefði misheyrst og beið þess vegna eftir að heyra tiltekna dagskrárauglýsingu aftur. Ekki var um misheyrn að ræða. Ríkissjónvarpið var að auglýsa eitthvað sem kallað er EM-stofa. Þar var tilkynnt að nafngreindir einstaklingar ætluðu að kryfja liðin, stjörnurnar, þjálfarana og aðstandendur. Lík eru krufin, en yfirleitt er aðstandendum hlíft.


    Það er ágætt dæmi um hina pólitísku umræðu á Íslandi þegar formaður Framsóknarflokksins segir að ríkisstjórnin hafi valdið meira tjóni en hrunið. DV flokkar ummæli þessa stjórnmálamanns í þrennt: Villandi ummæli, hreina og klára lygi og haugalygi. Það er líka til marks um umræðuna í samfélaginu þegar fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins (09.05.2012) í grein í Morgunblaðinu kallar stækkunarstjóra ESB, Stefan Fule, Stefán fúla. Það étur hann upp eftir ritstjóra Moggans. Þegar rökin eru þau ein að uppnefna fólk getur málstaðurinn ekki verið góður.


    Ein mest lesna fréttin eða greinin á mbl.is að undanförnu ber fyrirsögnina

    Kúkaði á sig á rúntinum. Molaskrifari hefur ekki fundið hjá sér þörf til að kynna sér efnið nánar.


    Í fréttum Ríkissjónvarps (07.05.2012) var sagt: Viðbrögðin stóðu ekki á sér. Eðlilegra hefði verið að segja: Viðbrögðin létu ekki á sér standa.


    Svolítið gaman hefur verið að fylgjast með hvernig framburður á nafni hins nýkjörna Frakklandsforseta hefur verið að breytast í íslenskum ljósvakamiðlum. Fyrst var nafnið hans borið fram eins nafn landsins Holland, en smám saman hefur það mjakast í rétta átt og er nú orðið býsna nálægt framburðinum eins og hann er á frönsku og til dæmis hjá BBC.


    Lesandi benti á eftirfarandi fyrirsögn á dv.is (07.05.2012): Husky brillerar á hlýðniprófum. Satt er að sannarlega er þetta ekki til fyrirmyndar.


    Í fréttum Stöðvar2 (07.05.2012) var talað um ofnæmisvaldandi innihaldsefni í vörum. Nægt hefði að tala um efni, ekki innihaldsefni.


    Í morgunútvarpi Rásar tvö (08.05.2012) var talað um Möðrudal á Fjöllum. Sagt var á Möðrudal á Fjöllum. Molaskrifari er vanari því að sagt sé í Möðrudal á Fjöllum ekki á. Hvað segja staðkunnugir? Eru báðar forsetningarnar notaðar jöfnum höndum?


    Herimsstyrjöldinni síðari lauk í Evrópu 8. maí 1945. Dagsins var víða minnst. Meðal annars sýndi danska sjónvarpið (DR2) fyrstu heimildamyndina í fjögurra mynda flokki, Þýskaland 1945 til 1949. Afar vönduð og vel gerð mynd. Vonandi fáum við að sjá þennan myndaflokk hér.


    Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG



    Upprunaleg færsla á Eidur.is

    Skrifa athugasemd

  • Molar um málfar og miðla 904

    7. maí 2012

    Skrifað er á visir.is (05.05.2012): Háskólalest Háskóla Íslands býður til vísindaveislu í Kirkjubæjarklaustri í dag. Það er engu líkara en sá sem skrifaði þetta haldi að Kirkjubæjarklaustur sé sérstök bygging en ekki þéttbýliskjarni. Málvenja er að segja á Kirkjubæjarklaustri og skriffinnarnir á visir.is hafa ekkert umboð til að breyta því.

    Úr mbl.is (05.05.2012): Ein umfangsmesta flugslysaæfing landsins stendur nú yfir á Keflavíkurflugvelli. Ekki getur þetta talist vel orðað. Betra hefði t.d. verið: Ein umfangsmesta flugslysaæfing sem sett hefur verið á svið hér á landi stendur nú yfir á Keflavíkurflugvelli.

    Réttilega talar mbl.is um kínverska fjárfestinn Huang Nubo sem Huang. Ríkisútvarpið talar hinsvegar oftar en ekki um Nubo. Það er eins og ef Barack Obama Bandaríkjaforseti væri aldrei kallaður annað en Barack.


    Úr Fréttablaðinu (05.05.2012) Nýverið var henni flogið til Svíþjóðar …. Hér er ekki verið að tala um flugvél heldur fyrirsætu sem fór með flugvél til Svíþjóðar!


    Á vefnum mbl.is (076.05.2012) er sagt frá fyrirhuguðum ríkisstjórnarfundi á Egilsstöðum á þriðjudaginn. Með fréttinni er hinsvegar birt mynd af ríkisráðsfundi þar sem forsetinn situr við enda borðs. Annað hvort er þetta klaufaskapur eða fáfræði.


    Sagt var í fréttum Stöðvar tvö (05.05.2012): … tungumálaerfiðleikar milli áhafnarmeðlima og lóðs .. Þeir eru lífsseigir áhafnarmeðlimirnir. Þarna hefði verið betra að tala um skipverja. Í sömu frétt var sagt að rannsóknarnefnd sjóslysa hefði tekið rannsóknina yfir. Betra hefði verið að segja einfaldlega að rannsóknarnefnd sjóslysa annaðist nú rannsókn málsins. Í frásögn af þessu sama strandi var sagt í hádegisfréttum Ríkisútvarps þennan sama dag: … og Þór er bundinn hér aðeins úti við … væntanlega átti fréttamaður við að varðskipið Þór lónaði eða lægi við akkeri skammt frá strandstaðnum. Ríkisútvarpið mun raunar ítrekað hafa tala um lóðsmann í staðinn fyrir lóðs í frásögnum að þessu strandi. En það er bara eftir öðru.


    Það var einstaklega ósmekklegt að troða hátt stilltri, uppáþrengjandi rödd hér-(hikk )á- Rúv konunnar sem kynnir dagskrá sjónvarpsins inn í hið undurfallega lag Jóns Nordals við kvæði Jónasar, Smávinir fagrir foldarskart í lok þáttarins Átjánda öldin á sunnudagskvöld (06.05.2012) . Þetta var eiginlega eins og kjaftshögg.


    Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG



    Upprunaleg færsla á Eidur.is

    Skrifa athugasemd

  • Molar um málfar og miðla 903

    6. maí 2012

    Verslanakeðjan Bauhaus, sem opnaði verslun í Reykjavík sl. laugardag, hefur valið sér auglýsingastofu sem ekki er vandvirk og ætti því að vanda um við þá sem hlut eiga að máli eða skipta um auglýsingastofu. Auglýst er drive-in timbursala. Þetta er enskusletta sem á ekkert erindi í íslenska auglýsingu. Fram hefur komið í fréttum að taka varð niður auglýsingaskilti sem búið var að setja upp við verslunina. Í þeim voru villur. Í opnuauglýsingu í Fréttablaðinu (04.05.2012) var stafsetningarvilla í orðinu ávallt = alltaf. Það var í auglýsingunni skrifað ávalt sem þýðir bungulagað eða kúpt. Þetta er grunnskólavilla. Fleiri villur eru reyndar í auglýsingunni.


    Í frásögn af opnun þessarar nýju verslunar las fréttamaður Stöðvar tvö óhikað (05.05.2012): … og voru sumir fljótir að grípa það sem ÞEIM langaði í … Svo var íþróttafréttum sama miðils sama sagt um frægan kylfing: … HONUM vantaði aðeins eitt högg til að komast áfram. Þágufallið virðist ráða ríkjum á þessum bæ.


     


    Stundum ruglast menn eitthvað á merkingu orða. Þannig virðist vera um orðið að endurtaka, að gera aftur, að gera upp á nýtt. Æ oftar heyrist, til dæmis hjá manni sem rætt var við í fréttum Ríkisútvarps, að endurtaka aftur. Að endurtaka aftur er bara bull, það nægir að tala um að endurtaka.


     


    Í Kastljósi Ríkissjónvarps (04.05.2012) var rætt við kennara sem ítrekað talaði um að spotta. Konan var ekki að tala um að hæðast að eða draga dár að. Hún var að sletta ensku sögninni to spot, að sjá eða koma auga á. Vonandi talar hún ekki svona við nemendur sína.


     


    Í fréttum er ítrekað talað um fitness og módelfitness, – þá er verið að tala um afskræmingu mannslíkamans sem sumum þykir sérstakt augnayndi. Geta fjölmiðlungar ekki fundið íslenskt orð yfir þetta fyrirbæri ? Í sexfréttum Ríkisútvarps (04.05.2012) var margastagast á þessari fitness-slettu sem er engum til sóma. Hvað segir málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins ?


     


    Ítrekað var í fréttum Stöðvar tvö (04.05.2012) talað um óleyfisíbúðir. Átt var við íbúðir sem höfðu verið innréttaðar í húsnæði sem ekki var ætlað að vera íbúðarhúsnæði. Venjulega hafa þetta verið kallaðar ósamþykktar íbúðir. Orðið óleyfishúsnæði er náttúrulega bara bull, – rétt eins og orðið farandsverkamaður sem notað var í sömu frétt. Farandverkamaður, ekki farandsverkamaður.


     


    Byggingavöruverslanir keppast við að auglýsa eitthvað sem þær kalla verðvernd. Skilmálarnir eru hinsvegar svo flóknir að erfitt er fyrir venjulegt fólk að átta sig á því hvað þetta þýðir. Hvað segir talsmaður neytenda?


     


    Hversvegna segir ágætur prestur við okkur í morgunbæn Ríkisútvarpsins (05.05.2012): Gefðu þér tíma til að elska og vera elskuð. Var hún ekki líka að tala viðokkar karlana sem vorum að hlusta á morgunbænina þennan fallega maímorgun?


     


    Egill Helgason bauð einum af ástmögum Útvarps Sögu í þáttinn til sín í dag (06.05.2012). Sá er búinn að stofna stjórnmálaflokk í kring um sig og eitthvað af Söguhirðinni síhringjandi. Molaskrifari vonar að Agli sé ekkert farið að förlast því þetta var ekkert viðtal, maðurinn bullaði út og suður. Það hefði hinsvegar verið fróðlegt ef Egill hefði beðið hann að miðla okkur af reynslu sinni sem verðabréfamiðlari vestan hafs. Þar er víst ýmislegt frásagnarvert að finna.


     


     


    Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG


     


     



    Upprunaleg færsla á Eidur.is

    Skrifa athugasemd