Eiður Guðnason

Eiður Guðnason

Eiður Svanberg Guðnason stundaði nám í stjórnmálafræði í Bandaríkjunum. Lauk BA prófi í ensku frá Háskóla Íslands. Var blaðamaður við Alþýðublaðið, fréttamaður og varafréttastjóri Sjónvarpsins 1963 til 1978. Alþingismaður fyrir Alþýðuflokkinn 1978-1993 (umhverfisráðherra 1991-1993) Sendiherra í Noregi, Kína og víðar 1993 til 2009. Hefur ritað í blöð og tímarit. Skrifar reglulega um málfar og efnistök fjölmiðla.

  • Molar um málfar og miðla 888

    18. apríl 2012

    Þau vinnubrögð fréttastofu Ríkisútvarpsins að skýra frá flugóhappi á Reykjavíkurflugvelli (18.04.2012) og tilgreina tegund flugvélarinnar, áður en vitað var hve margir voru um borð í flugvélinni eða hvort alvarleg slys hefðu orðið á fólki, orka mjög tvímælis, að ekki sé meira sagt. Það var ekki fyrr en í lok fréttatímans að fram kom að tveir voru um borð í flugvélinni og sluppu báðir ómeiddir. Í rauninni eru þetta vítaverð vinnubrögð. Þegar um fréttir af slysum er að ræða er kapp best með forsjá. Í gamla daga var fréttamönnum kennt að fara mjög varlega í þessum efnum. Sú regla er ekki í heiðri höfð hjá fréttastofu Ríkisútvarpsins.


     


    Nýlega var hér vikið að auglýsingu um lyf sem fullyrt var að bætti minni fólks. Í fréttum Stöðvar tvö (16.04.2012) var vakin athygli á auglýsingu frá fyrirtæki sem kennir sig við hópkaup. Þar var boðið upp á  það sem kallað var blóðrannsókn og var sagt boðið á hálfvirði. Rætt var við sérfræðing í blóðmeinafræðum sem sagði fullyrðingar í þessari auglýsingu ekki standast neina skoðun. Gott hjá Stöð tvö, en athygli vöktu daufar undirtektir landlæknisembættisins. Það á vara neytendur við blekkingum og sölumannum snákaolíu sem stundum eru svo nefndir, – þeir sem selja ónýta vöru með gylliboðum.


     


    Í fréttatíma Ríkissjónvarps (16.04.2012) var sagt frá nýrri ofurtölvu sem ræst hefði verið í Hafnarfirði (Endalok Hafnarfjarðarbrandaranna?) Í lok fréttarinnar var sagt að tölvan næði við mestu afköst 30 (eða 35) teraflops. Óinnvígðir áhorfendur voru engu nær. Þarna vantaði skýringu eða samanburð við eitthvað sem flest okkar þekkja. Það vantaði viðmið.


     


    Ekki horfir Molaskrifari mikið á sjónvarpsstöðina ÍNN. Kemur þó fyrir að hann lítur á hvað þar er á boðstólum. Dagskráin höfðar sjaldnast til hans. Þó eru þar tvær nýlegar undantekningar. Í fyrra skiptið var verið að sýna mynd um íslenska náttúru, hálendið og fjalla um hvernig mætti bæði njóta landsins og nýta það til ferðalaga og veiðimennsku. Það sem Molaskrifari sá af þessari mynd var vel gert og áhugavert. Í síðara skiptið var verið að sýna prýðilega gerða mynd og fróðlega um ferðalag nokkurra Íslendinga um Kenýa. Þess var getið í lokin að myndin væri á vegum Ferðaskrifstofunnar Vita og skilmerkilega sagt frá tökumanni og þátttakendum. Engar slíkar upplýsingar komu hinsvegar á skjáinn í lok íslensku hálendismyndarinnar og var það miður. Það var hinsvegar hálf hallærislegt þann 16. apríl að auglýsa páskaferð til Írlands 4. til 9. apríl !


     


    Allir að einbeita sér að því að eksekjúta sitt hlutverk, heyrðum við körfuboltaþjálfara segja við liðsmenn sína í fréttum Stöðvar tvö (16.04.2012). Getur vart talist til fyrimyndar


     


    Friðrik þakkar Molaskrif og segir (16.04.2012): ,,iPod er þarfaþing. Mér hefur fundist vanta þjált og lýsandi orð yfir tækið. Sá á mjólkurfernu orðið tónhlaða, sem hugmynd, en fannst það þunglamalegt. Datt í hug hvort notast mætti við hlaðvarp, sem beygist eins og útvarp. Hef ekki séð það notað í þessu samhengi, þó svo kunni auðvitað að vera.”  Hugmynd Friðriks er mér komið á framfæri. Molaskrifari hefur heyrt orðið hlaðvarp  en er ekki alveg ljóst um hvað það hefur verið notað.


     


    Hér var fyrir skömmu vikið að tveimur ferðum Molaskrifara til Norður Kóreu fyrir nokkrum árum. Í fréttum Ríkissjónvarps (16.04.2012) var sagt frá norður kóresku veitingahúsi sem opnað hefur verið í Amsterdam. Í ljósi reynslunnar mundi Molaskrifari forðast að seðja hungur sitt á þeim stað. Kaldar núðlur og logandi sterkt kimsje (kryddsúrsað Kínakál) eru ekki kjörréttir hans.


     


    Gleðilegt sumar !


     


    Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG


     


     



    Upprunaleg færsla á Eidur.is

    Skrifa athugasemd

  • Molar um málfar og miðla 887

    17. apríl 2012

    Gaman var að horfa á vandaða samantekt Andrésar Indriðasonar um Sigfús Halldórsson í Ríkissjónvarpinu (15.05.2012). Lögin hans Sigfúsar eru perlur og hann gaf þjóðinni perlufesti, – langa. Molaskrifara þykir líklegt af því sem hann þekkir til að flestar eldri upptökurnar sem við sáum í þættinum séu úr þáttum sem öðlingurinn Tage Ammendrup sem starfaði hjá sjónvarpinu frá því það tók til starfa og til dauðadags bar ábyrgð á og tók upp. Hann stjórnaði upptökum á meira en þúsund þáttum sem margir eru nú ómetnalegar samtímamyndir og menningarperlur í merkilegu safni Sjónvarpsins. Kannski var þarna til dæmis eina myndupptakan sem til er af Kristjáni Kristjánssyni óperusöngvara þar sem hann söng í Austurstræti og Sigfús var við píanóið. Þetta var góð skemmtan. Þökk þeim sem þar að stóðu.

    - En svo má taka undir með þeim sem spurt hafa: Hvaða efni er Ríkissjónvarpið nú að sýna sem gefur svipaða samtíðar mynd og þættirnir hans Tage? Því er líklega fljótsvarað.


    Margtuggið var í fréttum Ríkissjónvarps (15.04.2012) að dómari í íþróttakappleik hefði angað af áfengisfýlu. Fyrst notaði fréttaþulur þetta orðalag, síðan fréttamaður og loks sá sem rætt var við. Algengt er að tala um að menn angi af áfengi, en undarlega finnst Molaskrifara til orða tekið þegar talað er um að menn angi af áfengisfýlu !


    Sighvatur Bjarnason sendi eftirfarandi (16.04.2012): ,,Á mbl.is í dag segir: Fyrstu lundar vorsins eru mættir til Vestmannaeyja.

    Ég velti því fyrir mér hvort að eðlilegt sé að fjalla um dýr með þessum hætti þ.e. að þau mæti á tiltekin stað?

    Eyjamenn tala reyndar um að ,,lundinn sé sestur upp“. – Molaskrifari þakkar sendinguna og bætir við, – ævinlega skal virða málvenju heimamanna þegar við verður komið.


    Molaskrifari hefur áhyggjur af því að hann fylgist ekki nægilega vel með. Aftur og aftur og aftur talar Egill í Silfrinu um skrif eða mál sem hafi vakið mjög mikla athygli og Molaskrifari hefur hvergi heyrt minnst á eða vikið að. Annað hvort fylgist hann mjög illa með eða Egill notar einhverjar mælistikur honum óþekktar.


    Á fréttavef dv.is (16.04.2012) er mynd af farþegaþotu sem merkt er farðmiðasalanum Iceland Express og undir myndinni stendur: Nauðlending í London. Þetta er villandi. Tafir urðu á flugi á vegum farmiðasalans Iceland Express þar sem þota frá Virgin flugfélaginu þurfti að nauðlenda á flugvelli í grennd við London.. Þessvegna þurfti vélin frá Iceland Express að lenda á öðrum flugvelli en til stóð. Nauðlendingin var Iceland Express óviðkomandi.


    Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG



    Upprunaleg færsla á Eidur.is

    Skrifa athugasemd

  • Molar um málfar og miðla 886

    16. apríl 2012

    Molaskrifari hefur átt þess kost að heimsækja Norður-Kóreu tvisvar sinnum. Það var afar fróðlegt en engar voru það skemmtiferðir. Þessvegna m.a. hefur hann reynt að fylgjast með þróun mála þar í landi að undanförnu og lesið sér til um landið. Skrifari hefur að undanförnu velt því fyrir sér hvað væri hægt að metta marga munna í þessu landi ævarandi hungursneyðar alþýðunnar fyrir það fé sem notað var í misheppnað eldflaugarskot fyrir fáeinum dögum. Svarið sá hann óvænt í vikuritinu TIME (23.04.2012).Talið er að eldflaugarskotið hafi kostað 850 milljónir dollara. Fyrir það fé mætti fæða 19 milljón manns í heilt ár. Íbúar landsins eru 23,5 milljónir.


    Góðvinur Molaskrifara benti honum nýlega á hve algengt það væri orðið að fréttamenn spyrðu leiðandi spurninga. Dæmi um þetta var í hádegisfréttum Ríkissútvarps (14.04.2012) þegar fréttamaður spurði Steingrím J. Sigfússon: Hefur þú geð í þér til að halda áfram þessum aðildarviðræðum …?

    Gildishlaðin og leiðandi spurning.


    Molavin sendir fyrirsögn úr mbl.is (13.04.2012) og segir: Mig grunar að eitthvað sé bogið við þessa fyrirsögn: Grunuðu að ekki væri allt með felldu. (Screen shot 2012-04-13 at 11.19.01 AM) Molaskrifari staðfestir gruninn. Það var ekki allt með felldu varðandi þessa fyrirsögn.


    Nýlega fékk Molaskrifari yfir sig svívirðingar og uppnefni í athugasemdum á vefsíðunni Orðið á götunni. Ástæðan var sú að honum finnst þættirnir Andraland vera heldur lélegt sjónvarpsefni og umsjónarmaðurinn illa máli farinn. Molaskrifari er enn sömu skoðunar. Þessir þættir eru óttaleg nesjamennska. Hann skortir hinsvegar nennu til að skrifa meira um svo ómerkilegt efni.


    Molaskrifari sá nýlega auglýsingu í dagblaði um svokallaðar minnistöflur. Þar var sagt. Bætir skammtímaminnið. Er það sannað? Hefur það verið rannsakað vísindalega? Hvað segir embætti landlæknis? Gjalda ber varhug við fullyrðingum af þessu tagi nema vísindaleg rök fylgi. Þau voru hvergi sjáanleg í þessari auglýsingu.


    Í Morgunblaðinu (14.04.2012) var haft eftir útvarpsstjóra: „Aldrei hefur álit fólks á Alþingi og alþingismönnum risið lægra heldur en í dag”, sagði Páll … Molaskrifari hefur efasemdir um að hægt að tala um að eitthvað rísi lágt. Þetta hefði mátt orða á ýmsan annan veg. Það er hins vegar stundum sagt um menn að það sé lágt á þeim risið. Þannig mætti segja að það væri yfirleitt ekki hátt risið á þingmönnum um þessar mundir. Hér hefði einnig verið eðlilegt að segja , til dæmis: Aldrei hefur fólk haft eins lítið álit á Alþingi og alþingismönnum eins og í dag.


    Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG



    Upprunaleg færsla á Eidur.is

    Skrifa athugasemd

  • Molar um málfar og miðla 885

    15. apríl 2012

    Einar sendi Molum eftirfarandi: „Hér er undirfyrirsögn úr netútgáfu Viðskiptablaðsins 13.4.12: „Kostnaðarsöm tilraunir ráðamanna í Norður-Kóreu fóru út um þúfur í nótt. Henni var ætlað að tryggja ímynd leiðtoga landsins.“ Getur ruglingur á eintölu og fleirtölu orðið öllu verri? Rétt væri að segja annað hvort „kostnaðarsöm tilraun ráðamanna fór út um þúfur“ o.s.frv., eða „kostnaðarsamar tilraunir ráðamanna fóru út um þúfur … þeim var ætlað að tryggja ímynd leiðtoga landsins“.” Einar benti síðar á að þetta hefði verið lagfært.Molaskrifari þakkar Einar sendinguna.


     


     Og hér er meira frá Einari (14.04.2012): ,,Á vísir.is var í gærkvöldi fjallað um hetjudáðir lögreglumanns í Víetnam, sem hékk utan á framrúðu hópferðabíls eftir að ökumaðurinn reyndi að flýja af vettvangi. Fréttin er annars ágætlega vel skrifuð, en undir lok hennar segir síðan: „Undarlega náðist atvikið á myndband og birtist það á vefsíðunni YouTube fyrr í dag.“


    Mér er ekki ljóst hver ætlunin er með orðinu undarlega í þessu samhengi, er átt við að þetta undarlega atvik náðist á myndband eða náðist atvikið á undarlegan hátt á myndband?” Molaskrifari getur sér þess til að hér sé um aulaþýðingu úr ensku að ræða. Sagt hafi verið á ensku: Strangely enough the incident was recorded …. Eðlilegt hefði verið að segja á íslensku: Fyrir tilviljun náðist að mynda þetta atvik.


     


     Á vefsíðu Ríkisútvarpsins er (13.04.2012) talað um tómar lóðir í Mosfellsbæ. Eðlilegra væri að tala um auðar lóðir, eða lóðir sem ekki hefur verið byggt á.


     


    Vikulegur ambögu- og slúðurpistill Rásar tvö frá Los Angeles ( Ell ei eins og þar er sífellt sagt)var á sínum stað (13.04.2012) . Þar var talað um góða kríteríu, að framkvæma plötu og vera á hallandi fæti, það lænöpp, sú upplína og er þá þágufallssýkin látin liggja milli hluta. Fólkið sem slúðrað er um fær yfirleitt auknefnið greyið, stelpugreyið. Rúsínan í pylsuendanum þennan föstudagsmorgun var þegar okkur var sagt að Chinese democracy væri kínverska lýðveldið ! (Democracy = lýðræði, republic=lýðveldi). Það ætti að vera fyrir neðan virðingu Ríkisútvarpsins að bjóða hlustendum sínum upp á þessa hörmung.


     


    Í fréttum Stöðvar tvö (13.04.2012) var sagt: Ummál upphandleggs hans voru … Hér hefði að mati Molaskrifara farið betur á að segja: Ummál upphandleggs hans var …, – ekki voru.


     


    Hér hefur stundum verið gerð að umtalsefni sú fáránlega ákvörðun útvarpsstjóra að banna starfsmönnum í Estaleiti að taka sér orðið Ríkisútvarp í munn, en kalla stofnunina þess í stað RÚV ætíð og alltaf. Það er ekkert að því að nota skammstöfunina RÚV í erlendum samskiptum og á prenti með merki Ríkisútvarpsins. Í töluðu mál á hinsvegar að nefna stofnunina því nafni sem hún heitir og sætta sig við það að þessi stofnun er ekki einkafyrirtæki stjórnendanna sem þeir geta breytt um nafn á að vild – heldur er hún ríkiseign, þjóðareign. Á heimasíðu stofnunarinnar er birt dagskrá Rásar eitt, Rásar tvö og dagskrá RÚV, það er dagskrá Ríkissjónvarpsins. RÚV er sem sagt stundum Ríkisútvarpið allt og stundum bara Ríkissjónvarpið ! Þegar Ríkisútvarpið auglýsir eftir starfsfólki er það RÚV en ekki Ríkisútvarpið sem auglýsir og ræður í störfin. Er þá verið að óska eftir starfsmanni einvörðungu til Ríkissjónvarpsins eða til Ríkisútvarpsins alls? Það er óskiljanleg ákvörðun að dæma lögbundið heiti stofnunarinnar, Ríkisútvarpið, til dauða með þessum hætti. Raunar er vandséð að útvarpsstjóri hafi heimild til að vinna þetta óþurftarverk.


     Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG


     



    Upprunaleg færsla á Eidur.is

    Skrifa athugasemd

  • Molar um málfar og miðla 884

    14. apríl 2012

    Þorskárgangurinn frá því fyrra er sá feitasti og fjölmennasti .. var sagt í upphafi frétta Stöðvar tvö á fimmtudagskvöld (12.04.2012) . Það er nokkur nýlunda að gera þorskinn , þótt góður sé, mennskan með þessum hætti. Í fréttinni var hinsvegar réttilega talað um árgangurinn væri stór, en ekki að hann væri fjölmennur !


     


    Fengu 300 kílóa sprengjudufl í veiðarfærin, segir í fyrirsögn á dv.is (11.04.2012). Málvenja er að tala um tundurdufl , sem er fínt orð yfir það sem á ensku er kallað a floating mine. Á árunum eftir stríð voru tíðar tilkynningar í Ríkisútvarpinu sem byrjuðu svona: Tundurdufl sást á reki í dag … Tilkynningin var síðan lesin á ensku: A floating mine was seen today … Þetta var fyrst enska setningin sem Molaskrifari lærði eins og páfagaukur. Ekki sundurgreindust þó orðin fyrr en enskunám hófst í gagnfræðaskóla undir ómetanlegri leiðsögn Árna Guðnasonar cand.mag..


     


    Oftar en ekki hljóma nú dægurlög og popp í báðum morgunþáttum Ríkisútvarpsins. Það sem kallað er sígild tónlist (dægurlög geta reyndar líka verið sígild) ætti að eiga öruggt athvarf á Rás eitt.


     


    Athyglisverð frétt hjá Stöð tvö (11.04.2012) um það sem kallað var „stærsta ósýnilega fyrirtæki landsins”, Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar á Reyðarfirði,sem í næsta mánuði verður komið með 350 manns í vinnu eystra og í Hafnarfirði. Það léttir alltaf svolítið yfir manni þegar fréttatímarnir eru ekki tómt væl og bölmóður. Jákvæð frétt og örugglega voru þeir margir sem ekki höfðu heyrt þetta fyrirtæki nefnt á nafn áður.


     


    Í fréttum Ríkissjónvarps (13.04.2012) var réttilega talað um nýtt lyf gegn hægðatregðu hjá börnum. Í sexfréttum útvarps var hinsvegar talað um hægðatregðu á börnum sem er langtum lakara orðalag, að ekki sé meira sagt.


     


    Enska orðið ever þrengir sér inn í íslenskuna. Rætt var við tónlistarblaðamann, sem svo var kallaður. Hann sagði um velgengni íslenskrar hljómsveitar að það væri flottasta byrjun ever.  Flottasta byrjun sem sögur fara af, hefði hann til dæmis getað sagt, flottasta byrjun í manna minnum. Bara ekki flottasta byrjun ever. Þetta heyrist því miður býsna oft.


     


    Molaskrifari reynir að missa ekki af Útsvari í Ríkissjónvarpinu, sem eins og allir þættir er krefjast svolítillar þátttöku áhorfenda er gott efni. Stjórnendur standa sig líka með mikilli prýði. En Molaskrifari leyfir sér að benda Sigmari á að þegar dómari er að íhuga eða ráðfæra sig við ráðgjafa um það hvort tiltekið svar sé rétt þá er það ekki rekistefna. Það er kannski frekar ráðstefna. Rekistefna er nefnilega, eftir því sem orðabókin segir, afskipti, íhlutun eða rex. Það að rekast í e-u. Gera rekistefnu út af einhverju er að fjargviðrast um eitthvað eða út af einhverju. Molaskrifari ætlar reyndar ekki að gera neina rekistefnu út af þessu , heldur er þetta vinsamleg ábending.


     Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG


     


     


     



    Upprunaleg færsla á Eidur.is

    Skrifa athugasemd