-
Molar um málfar og miðla 948
8. júlí 2012
Hvergi í veröldinni gæti það líklega gerst nema í íslenska Ríkisútvarpinu að það væri fyrsta frétt í fréttatíma klukkan 22 00 á laugardagskvöldi (07.07.2012) að erlendur ferðamaður hefði misst framan af fingri við að setjast á stól! Ótrúlegt en satt.
Dálítið undarlegt orðalag í frétt á mbl.is (07.07.2012): Að minnsta kosti 46 létust þegar það flæddi skyndilega í Krasnodar héraðinu í suðurhluta Rússlands í nótt. Og enn undarlegra er niðurlag fréttarinnar: Héraðsyfirvöld í Krasnodar segja að flóðin hafi verið kraftmikil og að jafnvel umferðarljós hafi ekki staðið af sér beljandi vatnsflauminn. Í stað þess að segja , þegar flæddi skyndilega hefði gjarnan mátt segja hvað orsakað hefði þessi skyndilegu flóð. Brast stífla? Mikil úrkoma? Hvað gerðist? Það er heldur ekki merkilegur mælikvarði á flóð hvort umferðarljós þoli flóðin! Í seinni fréttum frá Rússlandi kom fram að mikil úrkoma olli flóðunum, sem í Ríkisútvarpinu voru kölluð ,,skyndiflóð”. Það er svo sem ágætt heiti á því sem á ensku er kallað ,,flash flood”, – óvænt og óhemjumikil flóð. Kannski væri ,,leifturflóð” einnig nothæft orð. Bogi Ágústsson sleppti því réttilega í kvöldfréttum Ríkissjónvarps að nefna umferðarljósin!
Í tíufrettum Ríkisútvarps (06.07.2012) var sagt frá bilun í sjónvarpssendi á Suðurlandi. Sagt var að sjónvarpsútsending lægi niðri, sem er orðið fast orðalag í fréttum þegar truflanir eða bilanir verða á sjónvarpssendingum eða öðrum fjarskiptum. Fram kom að tæknimaður ynni að viðgerð. Síðan var sagt að ekki væri vitað hvenær tækist að koma í veg fyrir bilunina! Einfaldara hefði verið að segja að ekki væri vitað hve viðgerð mundi taka langan tíma eða hvenær viðgerð lyki. Aftur voru truflanir á útsendingum sjónvarps kvöldið eftir. Frá þeim var ekki sagt fyrr en eftir dúk og disk.
… tekur þátt á móti, sagði þrautreyndur fréttamaður í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (07.07.2012). Molaskrifara finnst að Ríkisútvarpið ætti að halda sig við málvenjuna að taka þátt í móti og hins vegar að keppa á móti.
Í kynningu á dagskrá Ríkissjónvarpsins í hádegisútvarpi (07.07.2012) var skýrt og með sterkri áherslu talað um ríkið /konnekktikött/ í Bandaríkjunum. Hér-hikk-á rúv kona sjónvarpsins endurtók þessa villu í dagskrárkynningu um kvöldið. Í sæmilega rétttum framburði er talað um /konnettikött/ Molaskrifari leggur til að nýir þulir fái blað með lista yfir þau erlendu orð sem óreyndum verða einna helst að fótakefli í framburði. Molaskrifari sér ástæðu til að endurbirta ágæta athugasemd sem Arnbjörn skrifaði nýlega við Mola, en hún er svohljóðandi: ,, Ensku heitin Bicester, Leicester, Worcester, Arkansas, Plymouth, Newcastle eru líkt og Connecticut erfið í framburði fyrir þá sem hafa ekki mikið vald á enskri tungu en þar er stafsetningin, eins og kunnugt er, mjög frábrugðin hljóðrituninni. Eg man hve hissa eg var þegar eg sá fyrst ‘martial law’ fyrst á prenti enda hafði eg hugsað mér lög sem marskálkar höfðu sett. Stafsetningarþrautin ‘Chzechoslovakia’ er svo annað dæmi um orð sem hefir reynst mörgum þung í skauti.”
Til hvers er Ríkissjónvarpið með hér-hikk-á rúv konuröddina, sem sífellt er að segja okkur frá því hvað er á dagskrá, ef ekki til þess að tilkynna um bilanir eða truflanir í útsendingu eins og urðu milli klukkan 19 00 og rúmlega 20 00 á laugardagskvöld (07.07.2012) Er enginn á vakt í Efstaleiti sem getur komið tilkynningum á framfæri við sjónvarpsáhorfendur? Undarlegt ef svo er.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 947
7. júlí 2012
Í fréttum á miðnætti (05.07.2012) var sagt í Ríkisútvarpinu, að lögreglan hefði haft augu með konunni. Málvenja er að tala um að hafa auga með, ekki augu, fylgjast náið með einhverju.
Það var rangt fréttamat hjá fréttastofu Ríkisútvarpsins (06.07.2012) að vera með sem fyrstu frétt í aðalfréttatíma kvöldsins að mál þar sem einn af starfsmönnum/dagskrárgerðarmönnum Ríkisútvarpsins er aðal málsaðili hefði verið fellt niður. Ríkissaksóknari felldi málið niður. En allt er málið mikil sorgarsaga. Samt er það svo að á almennan mælikvarða er þetta naumast stórfrétt, þótt svo kunni að hafa verið innanhúss í Efstaleiti vegna þess að málið varðaði samstarfsmann. Í öðru lagi ber fréttastofunni að fara sérstaklega varlega þegar um er að ræða fréttir sem starfsmenn Ríkisútvarpsins eiga aðild að. Fréttaþulur las svo þessa sömu frétt sem fyrstu frétt í sjónvarpsfréttunum klukkan sjö.
Þulur sagði í fréttayfirliti: Þingmenn skoða nú lagabreytingu sem gerði það refsivert að sprauta aðra manneskju með eiturlyfjum. Í fréttinni sagði Jóhannes Kr. Kristjánsson faðir hinnar látnu stúlku sem málið snýst um: Ég hef rætt þetta við þingmenn sem eru tilbúnir að skoða málið að leggja hér fram að þessi ákvæði verði sett inn í lög. Þetta er ekki það sama og sagt var í inngangi fréttarinnar. Skoða nú lagabreytingu er ekki sama og að vera tilbúinn til að skoða lagabreytingu Þetta eru ekki nægilega vönduð vinnubrögð hjá yfirmönnum Ríkisútvarpsins. Í tíu fréttum útvarps þetta sama kvöld var þetta mál ekki fyrsta frétt og orðalag fréttarinnar fagmannlegra. Það ætti ekki að þurfa að tíunda það hve fara ber varlega í fréttum af viðkvæmum málum þegar starfsmenn Ríkiútvarpsins eru beinir aðilar að því máli sem um er fjallað.
Í upphafi morgunþáttar Rásar tvö (06.07.2012) var sagt að lögreglan hefði hafið upp á fólkinu (ítölsku ferðamönnunum sem töldu sig hafa séð) hvítabjörn. Lögreglan hafði haft upp á fólkinu, fundið það.
Gott er að Evrópukortið og Norður Ameríkukortið skuli aftur vera komin á skjáinn í veðurfréttum Ríkissjónvarpsins. Einhverra hluta vegna hurfu þessi kort af skjánum um skeið.
Ríkissjónvarpið leiðrétti (06.07.2012) ónákvæma frétt um íslenskt jurtalyf gegn tíðum þvaglátum. Það leiðrétti hinsvegar ekki nafn dr. Sigmundar Guðbjarnasonar sem rangt var farið með í fréttum kvöldið áður.
Í Molum nr. 946 var skrifað um skipalest sem kom við sögu í fréttum Stöðvar tvö. Glöggur Molalesandi benti skrifara á að skipalestin hefði verið að koma frá Rússlandi, en ekki verið á leið til Rússlands eins og sagt var í Molum og leiðréttist það hér með.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 946
6. júlí 2012
Í fréttatíma Stöðvar tvö (05.07.2012) var rætt við roskin bresk systkin sem höfðu siglt út fyrir Vestfirði þar sem faðir þeirra fórst með bresku herskipi í heimsstyrjöldinni síðari. Talað var um rússneska skipalest ,sem er rangt. Þetta var skipalest bandamanna á leið til Rússlands með hergögn og birgðir af ýmsu tagi. Sagt var að skip föður þeirra hefði verið fremst í fararbroddi, í fararbroddi hefði nægt. Í sömu frétt var sagt að skipið hefði siglt inn í tundurskeytasvæði, – rétt hefði verið að tala um tundurduflasvæði. Þetta var alveg einstaklega illa unnin frétt. Frá þessu hörmulega sjóslysi þar sem fjölmörg skip fórust er ítarlega sagt í nýrri og ágætri bók Magnúsar Þórs Hafsteinssonar , en hún heitir Dauðinn í Dumbshafi. Þá var í sama fréttatíma ítrekað talað um meðlimi þjóðþinga, – þingmenn. Fleira mætti tína til úr þessum eina fréttatíma. Þið eigið að geta gert betur en þetta fréttastofa Stöðvar tvö!
Í fréttum Ríkissjónvarps (005.07.2012) var talað um að tala fyrir tómum eyrum ! Átt var við að tala fyrir daufum eyrum. Í inngangi fréttarinnar fór Ingólfur Bjarni Sigfússon sem var þulur í fréttatímanum hinsvegar rétt með þetta og sagði að talað væri fyrir daufum eyrum. Hlustar enginn á svona fréttainnslög áður en þeim er hellt yfir þjóðina ?
Það er líklega tímanna tákn og staðfesting á málstefnu og menningarstefnu Ríkissjónvarpsins að sýna okkur íslenska matreiðsluþætti þar sem eingöngu er töluð (amerísk) enska eins og gert var í gærkveldi (05.07.2012). Ríkisútvarpið gerir allt sem í þess valdi stendur til að styrkju stöðu tungunnar eins og því bera að gera lögum samkvæmt. – Matreiðslan var hinsvegar flott og fagmannleg svo sem vænta mátti. Samanborið við matreiðslumanninn sem stöðugt er á ÍNN þá er einkunnagjöfin annarsvegar einn og hinsvegar níu!
Í formála nýrrar og prýðilegrar matreiðslubókar sem Hagkaup hefur gefið út (Grillréttir Hagkaups) segir í formála um höfundinn: Hrefna lærði kokkinn í Apótekinu sem var …. Ekki kann Molaskrifari við þetta orðalag. Ef einhver fer í prentnám lærði hann þá prentarann? Er rétt að segja um þann sem lært hefur múrverk, að hann hafi lært múrarann?
Það er alltaf slæmt þegar farið er rangt með mannanöfn í fjölmiðlum. Verra er þegar það er ekki leiðrétt. Í skjátexta í seinni fréttum Ríkissjónvarps (05.07.2012) var rangt farið með föðurnafn hins þjóðkunna vísindamanns dr. Sigmundar Guðbjarnasonar, fyrrum rektors Háskóla Íslands, nú rannsóknastjóra Saga Medica. Dr. Sigmundur hefur unnið að merkilegum rannsóknum á íslenskum jurtum og jurtalyfjum sem vakið hafa heimsathygli að verðleikum. Ríkissjónvarpið ætti að geta haft þetta rétt, eða að minnsta kosti að leiðrétta þegar rangt er með farið. Þetta ber vott um þekkingarskort þess sem skrifaði og svolítinn subbuskap í verkstjórn.
Molaskrifari gerir ekki mikið af því að hrósa Morgunblaðinu. En áskrifendaþjónusta Morgunblaðsins á hrós skilið fyrir að senda blaðið nánast hvert á land sem er að óskum áskrifanda, – þótt ekki sé nema í einn eða tvo daga í senn. Það sama á við um áskrifendaþjónustu DV,sem raunar einfaldar þetta því þar er hægt að fá áskrifendakort sem nægir að sýna til að fá blaðið afhent á sölustöðum.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 945
5. júlí 2012
Ómar Einarsson sendi eftirfarandi (04.07.2012):
Af www.visir.is í dag: http://visir.is/likamar-thotuflugmannanna-fundnir/article/2012120709562
,,Líkamar þotuflugmannanna fundnir. Líkamar? Væri ekki nær að tala um lík? Hér er um að ræða þýðingu úr ensku og viðkomandi er greinilega ekki með neina tilfinningu fyrir íslensku máli. Spurning hvort blaðamenn verði ekki að lágmarki að hafa tekið eitt námskeið í þýðingum?” Molaskrifari þakkar Ómari sendinguna. Mörgum fréttaskrifaranum veitti ekki af slíku námskeiði. Rétt er það.Í frétt Stöðvar tvö af hinu fáránlega ,,njósnamáli” lággjaldaflugfélganna (04.07.2012) var talað um að upplýsingum um farþegatölum hefði verið aflað … tala hefði átt um upplýsingar um farþegatölur sem hefði verið aflað … Í sama fréttatíma var sagt: Fólk sem ekki gat krossað sjálft á kjörseðilinn vegna líkamlegrar fötlunar hafi verið gert að …. Hér hefði að sjálfsögðu átt að segja: Fólki sem ekki gat …. hafi verið gert að …
Lesandi gerir athugasemd við fyrir fréttar á mbl.is (03.07.2012): Klipptu á bílnúmer 42 ökutækja. Lesandi segir síðan: ,,Hér vaknar við lestur fyrirsagnar spurning um hvað hafi verið ,,klippt á bílnúmerin“, aukastafir, myndir eða hvað? Samkvæmt meginmáli voru það hins vegar númeraspjöldin, sem voru klippt af viðkomandi bifreiðum.“. Molaskrifari þakkar sendinguna.
Annar lesandi gantast svolítið með fyrirsögn úr mbl.is sama dag þar sem segir: Samþykktu frumbyggjaveiðar. Hann spyr: ,,Lögðust ekki frumbyggjaveiðar af þegar Englendingar hættu að veiða Tasmaníunegra?“
Í Morgunblaðinu (05.07.2012) er greint frá miklum náttúruspjöllum á gönguleið í Reykjadal ofan eða norðan Hveragerðis. Fyrir um það bil tíu árum gekk Molaskrifari frá Kolviðarhóli um Hellisskarð og síðan milli hrauns og hlíða niður í Reykjadal og til Hveragerðis. Þetta er falleg og skemmtileg gönguleið. Þá mátti sjá víða við göngustíginn í Reykjadalnum djúp hófför og mikið traðk eftir hross. Greinilega hefur ástandið versnað mikið síðan. Göngufólk veldur ekki svona náttúruspjöllum. Það gera hinsvegar hópar hestamanna sem þarna ríða yfir jörð sem víða er mýrlend. Það á að stöðva ferðir hestamanna um Reykjadal. Það er nóg af öðrum reiðleiðum hér í grenndinni þar sem þeir ekki valda viðlíka spjöllum.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 944
4. júlí 2012
Í Molum gærdagsins var minnst á samninga og gagnkvæmt traust milli stjórnmálamanna. Molaskrifari var um nokkurra ára skeið þingflokksformaður Alþýðuflokks (sakna hans) sem oft þurfti að semja um framgang og afgreiðslu mála við pólitíska andstæðinga og samherja. Í mínum flokki var þá stundum uppi það sjónarmið að enginn samningur væri ásættanlegur nema fallist væri á allar okkur kröfur. Sumum fannst ég linur og lélegur í samningum að ná ekki öllum óskum okkar fram. Í Alþýðubandalagi var stundum erfitt að semja við Svavar Gestsson. Hann gat verið harður í samningum. Alþýðuflokkurinn og Alþýðubandalagið voru ekki beinlínis samherjar í pólitík. En eftir að samkomulag hafði verið gert við Svavar þá stóð það eins og stafur á bók. Það var mín reynsla. Ég reyndi hann aldrei að því að standa ekki við gert samkomulag. Stundum átti hann það til að benda á góðar leiðir til að leysa þrasmál og þoka málum áleiðis. Í hans flokki var líka innanbúðar annar maður. Ef samið var við hann stóð samkomulagið alveg þar til hann sá betri kosti í stöðunni. Þá var staðan gjörbreytt, forsendur brostnar, komin upp alveg ný staða og ekkert samkomulag í gildi. Ekki var undan neinu að kvarta í samningum við Sjálfstæðismenn og Framsókn á þeim tíma sem ég stóð í þessu. Þá voru þar einkum vinur minn Ólafur G. Einarsson og Páll Pétursson í forystu. Þeim var hægt að treysta. Svona var nú það.
Óskar Aðalgeir Óskarsson á Akureyri sendi eftirfarandi.
Í Morgunblaðinu föstudaginn 29.júní á bls. 14 er fyrirsögn „Þúsundir ótryggðra ökutækja“,og hluti af undirfyrirsögn hljóðar svo ILLA GENGUR AÐ INNHEIMTA EIGENDUR OG UMRÁÐAMENN. Veit einhver við hvað er átt þarna? Á Mbl.is í síðustu viku var sagt frá hörmulegu atviki sem átti sér stað í Moskvuborg. Móðir tveggja ungra drengja var talin hafa hrint þeim fram af svölum á 15.hæð. En í fréttinni segir að samkvæmt einhverri erlendri fréttastofu hefði konan verið handtekin stuttlega eftir atvikið. Ætli að fréttamenn séu farnir að nota Google þýðingar á erlendum fréttum?” Það er engu líkara en þarna hafi Google þýðingarvélin komiðö við sögu, Óskar. Allt segir þetta sína sögu um það að enginn les fréttir yfir áður en þær eru birtar. Molaskrifari þakkar Óskari sendinguna.Ný hitamyndakort í veðurfréttum Ríkissjónvarps koma prýðilega út og eru til bóta. En hversvegna er allt í einu hætt að sýna okkur veðurkort af Evrópu og Norður Ameríku? Varla er það í sparnaðarskyni, eða hvað? Molaskrifari vill fá þessi kort á skjáinn að nýju og helst með borganöfnum eins og víða má sjá í veðurfregnum annarra sjónvarpsstöðva.
Forysta Sjálfstæðisflokksins hefur alltaf verið mjög í nöp við þennan rétt forsetans, hún viðurkenndi hann reyndar alls ekki til skamms tíma – og í raun hefur ekkert breyst í þeim efnum, þrátt fyrir skammvinnt hentugleikabandalag við Ólaf Ragnar, skrifar Egill Helgason á bloggsíðu sinni (02.07.2012). Hér ætti að standa: Forystu Sjálfstæðisflokksins hefur alltaf verið mjög í nöp við …..
Í fréttum Ríkissjónvarps (02.07.2012) var talað um … þær forsendur sem skýrslan notar. Betra hefði verið að tala um þær forsendur sem skýrslan byggir á, eða þær forsendur sem notaðar eru í skýrslunni.
Þú messar ekki í Dew-inu , segir í auglýsingu í Ríkissjónvarpinu. Eiga auglýsingar ekki að vera á skiljanlegri íslensku? Líklegast ekki að mati auglýsingastofu Ríkisútvarpsins. Þetta er skelfilegt orðalag. Það er engu líkara en auglýsingadeild eða auglýsingastofa Ríkisútvarpsins taki gagnrýnilaust við öllu sem að henni er rétt. Það er stofnuninni ekki til sóma.Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334
- 335
- 336
- 337
- 338
- 339
- 340
- 341
- 342
- 343
- 344
- 345
- 346
- 347
- 348
- 349
- 350
- 351
- 352
- 353
- 354
- 355
- 356
- 357
- 358
- 359
- 360
- 361
- 362
- 363
- 364
- 365
- 366
- 367
- 368
- 369
- 370
- 371
- 372
- 373
- 374
- 375
- 376
- 377
- 378
- 379
- 380
- 381
- 382
- 383
- 384
- 385
- 386
- 387
- 388
- 389
- 390
- 391
- 392
- 393
- 394
- 395
- 396
- 397
- 398
- 399
- 400
- 401
- 402
- 403
- 404
- 405
- 406
- 407
- 408
- 409
- 410
- 411
- 412
- 413
- 414
- 415
- 416
- 417
- 418
- 419
- 420
- 421
- 422
- 423
- 424
- 425
- 426
- 427
- 428
- 429
- 430
- 431
- 432
- 433
- 434
- 435
- 436
- 437
- 438
- 439
- 440
- 441
- 442
- 443
- 444
- 445
- 446
- 447
- 448
- 449
- 450
- 451
- 452
- 453
- 454
- 455
- 456
- 457
- 458
- 459
- 460
- Næsta »
