-
Molar um málfar og miðla 978
11. ágúst 2012
Óttalegt barnamál var talað í Heimskringlu Stöðvar tvö (08.08.2012) þegar sagt var frá eldgosi á Nýja Sjálandi: … talið er að eldgosið hafi sprengt þrjú ný göt á fjallið. Hér hefði mátt segja að farið væri að gjósa á þremur nýjum stöðum á fjallinu eða að þrír nýir gígar hefðu myndast í fjallinu. Það var heldur ekki vel að orði komist í sama fréttatíma þegar sagt var um höfnina í Shanghai: … uppskipunarhöfn borgarinnar er ein sú fjölsóttasta heimi. Hér hefði til dæmis mátt segja: Meiri skipaumferð er um höfnina í Shanghai en flestar aðrar hafnir í veröldinni.
Í Morgunblaðinu (08.08.2012) segir: … en maðurinn sem er meðlimur í áhöfn skipsins hafði fengið hjartaáfall. Víða koma meðlimir við sögu. Hér hefði verið fínt að segja: Maðurinn, sem er í áhöfn skipsins, eða: Skipverji hafði fengið hjartaáfall.
Í morgunþætti Rásar tvö (08.08.2012) þegar kynnt var efni dagblaðanna varð umsjónarmanni tíðrætt um frétt á forsíðu Morgunblaðsins um að framkvæmdir væru hafnar við Vaðlaheiðargöng. Umsjónarmaður hefur sjálfsagt þóst vera að leiðrétta Morgunblaðið því hann tönnlaðist á jarðgangnagerð og jarðgangnamunna. Morgunblaðið var með þetta rétt. Í undirfyrirsögn við forsíðufrétt er talað um jarðgangamunna. Eignarfallið af orðinu göng er ganga. Eignarfallið af orðinu göngur (fjárleitir) er gangna, sbr. gangnamenn. Hvar er nú málfarsráðunautur? Til hvers er fréttastjóri? Það ætti með réttu að verara hans hlutverk að sjá til þess að málfar í fréttum sé boðlegt Lögð er áhersla á að hann beri alla ábyrgð á öllum fréttatímum þegar nafn hans er birt í lok frétta efst á lista þeirra sem helst hafa komið að vinnslu hvers fréttatíma.
Af mbl.is (08.08.2012): Vindar eru miklir og þrátt fyrir … Vindar eru miklir, þýðir líklega að það sé hvasst.
Lesandi benti Molaskrifara á að hlusta á bókmenntaþáttinn Skorninga á Rás eitt og segir: ,,Þátturinn er sagður í umsjá Brynhildar Heiðar- og Ómarsdóttur. Ég hlustaði á hann í dag (08.08.2012) með hléum og fannst þar óvenju mikið af málblómum. Þegar umsjónarkonan sagði „hafði ollið“ slökkti ég á henni. Einhvern veginn finnst mér að þetta eigi ekki heima í bókmenntaþætti á Rás 1.” Því er Molaskrifari sammála, en metnaður Ríkisútvarpsins til að vanda málfar er ekki lengur til staðar.
Annar lesandi þessar línur (09.08.2012): ,,Fá ár eru síðan ég heyrði orðið,,stríðsherra“ í fyrsta skipti – og notkun þess orð kemur mér alltaf jafnmikið á óvart. Ég má fullyrða að orðið ,,stríðsherra“ sé fyrst og fremst bundið við fréttastofu Ríkisútvarpsins.
Í fréttum fyrir stuttu sagði Rúv frá því að fórnarlömb stórglæpamannsins og óþokkans Thomas Lubanga, sem eitt sinn stýrði Austur-Kongo, gætu fengið bætur fyrir að vera neydd til að gegna hermennsku á barnsaldri. Alþjóðaglæpadómstóllinn í Haag komst að þessari niðurstöðu.
Í frétt Rúv er þessi maður titlaður ,,stríðsherra“ og það er mér óskiljanlegt. Maðurinn er ekkert annað en réttur og sléttur stríðsglæpamaður, óþokki og rakinn dullusokkur og ber að tala um hann sem slíkan.”Molaskrifari þakkar bréfið. Hann hefur alltaf talið að orðið ,,stríðsherra” væri tilraun til að þýða enska heitið warlord á íslensku. Það hefur verið notað um herforingja sem ná undir sig landssvæðum eða héruðum, hafa ribbaldaherlið í þjónustu sinni og fara um rænandi og myrðandi. Tímabilið 1916 til 1928 í Kína er kennt við stríðsherra eða warlords, en herforingjaklíkur skiptu þá landinu milli sín og kúguðu landsfólkið. Molaskrifari hefur reyndar ekki betri tillögu um þýðingu á þessu orði og telur það hafa fest sig í sessi.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 977
10. ágúst 2012
Málglöggur lesandi sendi eftirfarandi athugasemd. ,,Í fréttum RÚV í bítið í morgun (7.8. ’12) var forsætisráðherra Sýrlands sagður hafa ,,hlaupist undan merkjum“ þegar hann hætti í ógnarstjórn Assads forseta. Þar sem afsögn ráðherrans felur í sér að hann vill ekki lengur bera ábyrgð á borgarastyrjöldinni í landinu og standa að því að brytja lífið úr sýrlenskum borgurum á umrætt orðalag ekki við. Orðalagið er neikvætt og lýsir háðulegri framgöngu en ekki lofsverðri. Nær hefði því verið að segja t.d. að forsætisráðherrann hefði sagt af sér eða sagt skilið við Assad og stjórn hans.” Þetta er hárrétt ábending. Molaskrifari er hjartanlega sammála.
Það er (vond) regla í Ríkissjónvarpinu að við fáum snubbóttar fréttir klukkan sex og að seinni fréttir klukkan tíu byrji 15-20 mínútum of seint meðan Ólympíuleikarnir fara fram í London. Enginn skjáborði þar sem áhorfendum er sagt er frá röskun á dagskrá. Bogi Ágústsson biðst ævinlega afsökunar á seinkun þegar hann les seinni fréttir og ekki er staðið við auglýstan tíma, en alveg er undir hælinn lagt hvort aðrir þulir gera það. Molaskrifari þekkir enga sjónvarpsstöð sem kemur svona fram við viðskiptavini sína. Fréttum NRK seinkaði í gærkveldi um hálftíma vegna handboltaleiks kvennaliða Noregs og Suður Kóreu. Margisinnis var sagt frá seinkuninni á skjáborða.
Þetta er upphaf fréttar á mbl.is (07.08.2012): Hermaður Atlantshafsbandalagsins sem féll í Afganistan í dag af mönnum í búningi afganska hersins var Bandaríkjamaður. Hér er fréttin í heild. Þar er mörgu ábótvant. http://www.mbl.is/frettir/erlent/2012/08/07/arasir_graenna_gegn_blaum_aukast/ Viðvaningur hefur skrifað og enginn lesið yfir. Fyrirsögnin : Árásir ,,grænna gegn bláum”aukast, – er óskiljanleg.
Ekki hljómar það rétt í eyrum Molaskrifara að tala um að vegir sem orðnir eru lélegir vegna þess að viðhald hefur setið á hakanum séu hrörlegir eins og sagt var í fréttum Stöðvar tvö (07.08.2012). Ekkert er að því að tala um hrörlegan kofa,,- einnig er sagt um þann sem elli kerling hefur leikið grátt að hann sé orðinn hálfhrörlegur. Hrörlegir vegir hljómar ekki rétt.
Í stað þess að vera á varðbergi, sýna aðgát, aðgæslu, eru nú allir á tánum. Skólameistari sem rætt var í fréttum (07.08.2012) var á tánum , sýndi aðgát varðandi útgjöld skólans. Molaskrifari velti því fyrir sér hvað hans góði íslenskukennari í landsprófi og þriðja bekk M.R. dr. Guðrún Pálína Helgadóttir hefði sagt um þetta orðalag. Líklega hefði hún ekki verið hrifin.
Molavin sendi þetta (07.08.2012): ,,Lögreglan þarf oft að senda frá sér fréttir um sorgleg og viðkvæm mál. Þá fer bezt á því að tala einfalt og skýrt mál en flýja ekki inn í skúmaskot stofnanamálfars, sem einkennist af uppskrúfuðu orðalagi og torskildum hugtökum. Hér er dæmi frá liðinni helgi: „Á daglegum samráðsfundi lögreglustjórans í Vestmannaeyjum með viðbragðsaðilum var farið yfir verkferla sem tengdust andlátinu…“
Hugtökin ,,viðbragðsaðilar“ og ,,verkferlar“ tilheyra hvorugt daglegu máli. Auk þess er það beinlínis rangt að segja að andlát fylgi einhverjum verkferlum. Það hefðu lífgunaraðgerðir hins vegar hugsanlega gert.Mbl.is lét nægja að birta orðrétt kafla úr fréttatilkynningu lögreglunnar. Betra hefði verið ef blaðamaður hefði sagt frá þessu á mannamáli, og sagt t.d.: ,,Það var mat lögreglu að við lífgunartilraunir hafi verið farið eftir settum reglum…” “
Molaskrifari þakkar sendinguna. Allt er þetta satt og rétt sem Molavin segir.Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 976
9. ágúst 2012
Næst stærsta þjóðhátíðin ,segir í fyrirsögn á mbl.is (06.08.2012). Í fréttinni kemur fram að átt er við næst fjölmennustu þjóðhátíðina.
Viðvaningur á helgarvaktinni á mbl.is (06.08.2012): Samkvæmt upplýsingum frá sveitarfélaginu er talið að um sé að ræða bjarnarmóður og þrír bjarnahúnar sem hafa sést á svæðinu að undanförnu. Hér hefði átt að segja: … er talið að um séu að ræða birnu og þrjá húna sem sést hafa á svæðinu að undanförnu. Er þá ótalið ýmislegt annað sem var athugavert við þessi fréttaskrif.
Sautján ára stúlka sótti sér hjálpar, var sagt í kvöldfréttum Ríkissjónvarps (06.08.2012). Rétt hefði verið að tala um að stúlkan hafi leitað sér hjálpar eða sótt sér hjálp.
Molaskrifari fylgdist með úrslitum 100 metra spretthlaups karla á OL á BBC. Sá svo þennan sama atburð endursýndan í Ríkissjónvarpinu (06.08.2012). Það var eiginlega hálf óhugnanlegt að heyra gargið í íslenska þulnum.
Hröktust undan ísingu á Halamiðum segir í millifyrirsögn í frétt á mbl.is um góðan afla Höfrungs III. (06.08.2012): Í fréttinni segir: Það hefur gengið mjög vel. Það var ísing að trufla okkur í upphafi túrs. Það kom hafís yfir veiðisvæðið og við hröktumst undan honum á Halamiðum, vestur af landinu … Molaskrifara þykir afar ósennilegt að ísing hafi verið á Halamiðum í byrjun ágúst og hallast að því að blaðamaður mbl.is hafi ekki hugmynd um hvað ísing sé. Sá sem skrifaði fréttina er líklega að rugla saman ísreki og ísingu.
Úr mbl.is (07.08.2012): Það var byggt eftir að upp voru teknir nýir staðlar í Atlantshafsbandalagsins sem sögðu til um að stjórnstöðvar ættu að vera í hertum byggingum sem gætu staðir af sér árásir. Hvað eru hertar byggingar? Er hér ekki á ferðinni enn ein aulaþýðingin úr ensku? Átt er við sérstaklega styrktar byggingar, traustbyggð hús, gerð til að standa af sér sprengjuárásir.
Stundum eru höfundar blaðagreina svolítið fyndnir , – alveg óvart. Til dæmis höfundur greinar í Morgunblaðinu (07.08.2012) sem hefst á þessum orðum: Væntanlega hefur það ekki farið framhjá neinum að þessa dagana fara Ólympíuleikarnir fram í London. ! Nei , – það hefur örugglega ekki farið framhjá neinum.
Enn um notkun forsetninga. Af mbl.is (07.08.2012): Skemmtiferðaskipið Celebrity Eclipse kom til hafnar í Skarfabakka um hádegisbilið í dag, … Molaskrifari er á því að hér hefði verið betra að segja: Skemmtiferðaskipið ( eða lystiskipið) Celebrity Eclipse kom til hafnar í Reykjavík í dag og lagðist við Skarfabakka í Sundahöfn. Skipið kom ekki til hafnar í Skarfabakka , enda er Skarfabakki ekki höfn heldur viðlegukantur eða bryggja. – Þá er æ oftar talað um að skip sem koma í höfn eða eru í höfn séu við höfn. Í fyrirsögn þessarar fréttar segir: 300 metra fley við höfnina. Að mati Molaskrifara er við höfn ekki sama og í höfn.
713.000 lítrar láku út, segir í fyrirsögn á mbl.is (07.08.2012) Fréttin var um áfengissölu fyrir verslunarmannahelgina. Hvaða kjánaskapur er hér á ferðinni? Eða á þetta að vera fyndið?Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 975
8. ágúst 2012
Stjórn Íbúasamtaka miðborgarinnar gagnrýna, var sagt í fréttayfirliti fyrir og eftir fréttir og í upphafi fréttar í hádegisfréttum Ríkisútvarps (04.08.2012). Hér hefði átt að segja: Stjórn Íbúasamtaka miðborgarinnar gagnrýnir … Stjórn ganrýna ekki. Stjórn gagnrýnir.
Þeim bregst svo sannarlega ekki bogalistin þeim sem færa okkur fréttirnar á visir.is. Búnir að gefa skautbúningnum nýtt nafn: http://www.visir.is/dorrit-klaeddist-skrautbuningi-fra-1938/article/2012120809663
Nú hefur enginn fullorðinn verið á vaktinni eins og svo ágætlega hefur verið sagt. Skrautbúningur skal það vera.Molalesandi kom því á framfæri við skrifara að fréttirnar í kvöld (07.08.2012) hefðu verið einstakar þar sem ekki var minnst á 1)nauðganir,2)eiturlyf, 3) barsmíðar, 4)innbrot ; og megi semsagt teljast nýjung núorðið, að ekkert þessara efna sé í fréttum, en reyndar yfirleitt líka fremst. Hann bætir við: ,,Svo finnst mér að fossinn sem Ómar myndaði ( úr Steinholtsjökli ?) megi vel heita Ómur, úr því að syngur vel í honum” Molaskrifari þakkar sendinguna.
Nýr vegur kom við sögu í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (05.08.20129. Þar var sagt frá umferðarslysi við Skeiðarveg, en þess ekki getið við hverskonar skeið vegurinn er kenndur. En fréttamaður sagði okkur að betur fór á en horfðist ! Hér var reyndar sagt frá umferðarslysi við Skeiðaveg þar sem betur fór en á horfðist. Í þessum sama fréttatíma var okkur hlustendum sagt frá skotfimismanni, skyttu, eða manni sem keppti í skotfimi.
Hversvegna birtir Ríkisútvarpið (05.08.2012) ekki heiti skemmtistaðar á Akureyri þar sem reglur voru brotnar og þar sem ráðist var á lögreglumann? Hverjum er verið að hlífa? Dólgahlífð er landlæg í íslenskum fjölmiðlum. Það má ekki eini sinni birta númer bíla sem lagt hefur verið ólöglega. Fáránlegt.
Ný orðatiltæki og nýmæli í notkun gróinna orða eru stöðugt að sjá dagsins ljós. Í stað þess að skemmta sér hafa menn nú gaman. Þetta virðist hafa byrjað sem barnamál en heyrist nú einnig hjá fullorðnum. Sértu sammála viðmælanda þínum þá segir þú: Nákvæmlega, eða bætir um betur og segir algjörlega. Þetta hljómar nú í tíma og ótíma.
Mótshaldarar eiga vart orð yfir því hvað vel hafi gengið um helgina, var sagt í fréttum Stöðvar tvö (05.08.2012). Hér hefði verið betra að segja: Mótshaldarar eiga vart orð yfir hve vel hefur gengið….
Uppgröfturinn á Alþingishússreitnum var settur á ís, – sagði fréttamaður Stöðvar tvö (05.08.2012). Hrá ensk þýðing. Uppgreftri var hætt um tíma, hefði til dæmis mátt segja. Í sama fréttatíma var talað um reiðhjólamenn, – hvað er að orðinu hjólreiðamaður?
Í kynningarmynd, annars ágætri, frá Umferðarstofu (05.08.2012) er talað um tjón sem gæti numið tugum milljónum. Ætti að vera tugum milljóna. Þetta ætti að færa til betri vegar.
Í hádegisfréttum Ríkisútvarps (06.08.2012) var sagt: Makríllinn er að koma inn í íslenska lögsögu í (júní) …. Hversvegna ekki: Makríllinn kemur inn í íslenska lögsögu í …. Af hverju makríllinn er að koma ?
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 974
7. ágúst 2012
Nokkrum sinnum hefur verið nefnt hér óskiljanlegt dálæti fjölmiðlamanna á orðunum fjölskyldumeðlimur og áhafnarmeðlimur. Af vef Ríkisútvarpsins (04.08.2012): Clifton Truman Daniel, elsta barnabarn bandaríska forsetans Harry Truman, varð í gær fyrsti fjölskyldumeðlimur Truman-fjölskyldunnar til vera viðstaddur minningarathöfn í japönsku borginni Hiroshima … Fjölskyldumeðlimur fjölskyldunnar! Hversvegna ekki að nota hið ágæta orð afkomandi í stað þess að tala um fjölskyldumeðlim? Enn komu áhafnarmeðlimir við sögu í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (06.08.2012) þegar sagt var að einungis þrír áhafnarmeðlimir hafi bjargast er Þjóðverjar sökktu breska herskipinu Hood á Grænlandssundi í seinni heimsstyrjöld.
Fyrir gamlan blaðamenn ( og fyrirsagnasmið) var skemmtilegt að fylgjast með fréttaþul Sky sjónvarpsstöðvarinnar á laugardagsmorgni (04.08.2012) sem brá upp forsíðufyrirsögnum bresku stórblaðanna þar sem ólympíufréttir voru í fyrirrúmi. Það er list að semja góðar fyrirsagnir og það kunna breskir blaðamenn. Sá sem samdi fyrirsögnina: Fékk gat á hausinn og tennur brotnuðu eftir hnefahögg (visir.is 05.08.2012) fær hinsvegar engin verðlaun. Sumarliði eða fréttabarn á ferð nema hvort tveggja sé.
Það var dálítið undarleg og óvenjuleg framsetning í fréttum Ríkissjónvarps þegar fjallað var um hallarekstur tónlistarhússins Hörpu. Reiknað var út að tapið næmi 50 þúsund krónum á klukkustund. Hefur þetta verið venja í fréttum Ríkissjónvarps, eða er verið reyna að sýna og sanna fyrir áhorfendum að Harpa sé illa rekið óþarfahús, eða monthús eins og það var einhversstaðar orðað? Þegar rekstur Ríkisútvarpsins gekk sem verst var þá tíundað í fréttum Ríkisútvarpsins hve mikið tapið væri á klukkustund? Ekki minnist Molaskrifari þess. Hvernig væri að fréttastofan tíundaði til dæmis hve mikið skattgreiðendur á Íslandi greiða til landbúnaðarkerfisins á klukkustund, eða mínútu?
Einstaklega illa unnin og illa skrifuð frétt á mbl.is (03.08.2012). http://www.mbl.is/frettir/erlent/2012/08/03/vill_rettlaeti_fyrir_latinn_son/ Þarna hefur líklega , eins og Bjarni Sigtryggsson sagði á fésbók um aðra frétt í öðrum miðli, ,,enginn fullorðinn verið á vakt”.
Í morgunfréttum Ríkisútvarpsins (05.08.2012) af að því er virðist óhjákvæmilegum óeirðum liðinnar nætur var tekið svo til orða að manni hefði verið hótað með hnífi eða hníf. Molaskrifaði hefði talið eðlilegra að tala um að ógna með hnífi. Hann hótaði mér lífláti og ógnaði mér með hnífi. Mbl.is ræður betur við þetta en þar sagði um þennan atburð: Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók þrjá einstaklinga í gærkvöldi sem hótuðu leigubílstjóra og ógnuðu honum með hnífi. Fyrirsögnin á dv.is var: Ógnuðu ökumannnumi með hníf, – jafngilt eru þágufallið hníf og hnífi. Gott.
Líklega er Ríkissjónvarpið ein örfárra sjónvarpsstöðva þar sem auglýstir dagskrártímar skipta engu máli. Á sunnudagskvöld (05.08.2012) hófst sýning þáttarins Glæstra vona (Great Expectations) meira en 20 mínútum eftir auglýstan tíma. Engin skýring , engin afsökun. Hér- hikk- á Rúv konuröddinn sem kynnir dagskrána lét sem ekkert væri. Líklega eru dagskrárkynningar teknar upp löngu fyrirfram. Óboðleg ókurteisi.
Ekkert lát er á enskum framburði á heiti borgarinnar Damaskus í fréttum Ríkisútvarpsins. Í tíufréttum (05.08.2012) var kerfisbundið sagt: /da´maskus/. Í íslensku er áhersla á fyrsta atkvæði. Það er ekkert mjög flókið.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334
- 335
- 336
- 337
- 338
- 339
- 340
- 341
- 342
- 343
- 344
- 345
- 346
- 347
- 348
- 349
- 350
- 351
- 352
- 353
- 354
- 355
- 356
- 357
- 358
- 359
- 360
- 361
- 362
- 363
- 364
- 365
- 366
- 367
- 368
- 369
- 370
- 371
- 372
- 373
- 374
- 375
- 376
- 377
- 378
- 379
- 380
- 381
- 382
- 383
- 384
- 385
- 386
- 387
- 388
- 389
- 390
- 391
- 392
- 393
- 394
- 395
- 396
- 397
- 398
- 399
- 400
- 401
- 402
- 403
- 404
- 405
- 406
- 407
- 408
- 409
- 410
- 411
- 412
- 413
- 414
- 415
- 416
- 417
- 418
- 419
- 420
- 421
- 422
- 423
- 424
- 425
- 426
- 427
- 428
- 429
- 430
- 431
- 432
- 433
- 434
- 435
- 436
- 437
- 438
- 439
- 440
- 441
- 442
- 443
- 444
- 445
- 446
- 447
- 448
- 449
- 450
- 451
- 452
- 453
- 454
- 455
- 456
- 457
- 458
- 459
- 460
- 461
- 462
- 463
- 464
- 465
- Næsta »
