-
Molar um málfar og miðla 1018
27. september 2012
Molalesandi þakkar þessa pistla og skrifar á þessa leið (24.09.2012): ,,Ég hlustaði á hádegisfréttir Ríkisútvarpsins í dag, 24. september 2012. Þar var frétt af aðalmeðferð í máli Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra, gegn Seðlabankanum. Þar var ítrekað talað um verjanda Más. Hið rétta er að sjálfsögðu að ekki er talað um verjanda í einkamálum. Það er aðeins gert í sakamálum um þá sem verja menn sem eru ákærðir. Þetta er ekki flókið. Þetta er pínleg villa. Benda mætti fréttamanninum sem sá um fréttina á Lögfræðiorðabók með skýringum, hér er hlekkur: http://www.bc.is/?c=a8news&id=29&lid=&pid Í kynningu um bókina segir „Ritið er ekki síður gagnlegt fjölmiðlamönnum í þeirra störfum, en fréttaflutningur af lögfræðilegum málefnum vegur þar að jafnaði þungt.“ Gera á kröfu til fréttamanna um að þeir kynni sér þau orð sem þeir nota í fréttum. Það er tiltölulega einfalt að fletta upp hugtökum í lögfræði í fyrrnefndu riti og kynna sér muninn sem er á milli hugtaka í einkamálum annars vegar og sakamálum hins vegar.
Annað: Hinn oft ósmekklega klæddi ungi íþróttafréttamaður sagði í kvöldfréttum Sjónvarps núna rétt í þessu, 24. september 2012, að leikur Barcelona og Granada hefði farið fram í gær, þ.e. 23. september 2012. Hann var ekki með margar fréttir. Mér finnst ég líka eiga kröfu á að hann fari rétt með einfaldar staðreyndir. Hið rétta er að leikurinn fór fram laugardagskvöldið 22. september 2012, sjá hlekk: http://www.visir.is/tvo-mork-borsunga-a-sidustu-minutunum—med-11-stiga-forskot-a-real/article/2012120929766 “ Molaskrifari þakkar bréfið. Aldrei verður um of brýnt fyrir fréttamönnum að nota uppflettirit, handbækur og leitarvélar netsins. Það getur afstýrt slysum.
Molalesandi sendi þessa ábendingu (26.09.2012): „Þær 160 millj. kr. sem veittar voru á fjárlögum árið 2001 var ætlað að standa straum af þarfagreiningu og gerð útboðsgagna
Hélt þetta væri afbökun DV á frtilk. Fjársýslunnar, en sé mér til hrellingar að virðuleg opinber stofnun sendir svona orðalag frá sér.”http://www.fjs.is/default.aspx?cat_id=10&module_id=220&element_id=2423
Molaskrifari þakkar ábendinguna.
Hér fer á eftir lokakaflinn úr bréfi Ragnars Þorvaldssonar
Nú vil ég snúa mér að öðru og óskyldu efni.
Ég á heima á Fáskrúðsfirði, en nafnið á honum hefur vafist fyrir mönnum í gegnum tíðina. Nú hef ég eftir fræðimanni …(Hef ekki bókina við hendina í augnablikinu til þess að vísa beint í hana ) …að nafnið sé komið úr “ Gelisku “ og merki fjörðurinn við straumana það er ,,Straumfjörður “
Miklir hafstraumar eru ríkjandi í mynni fjarðarins og umhverfis eyjarnar Skrúð og Andey og sé ég ekki betur en nafnið væri vel við hæfi.
Nú kemur nafnið “ Fáskrúð “ víðar fyrir hér á landi, sem kunnugt er og ég heyrði það í fréttum nýlega að góð veiði væri þá í ánni “ Fáskrúð “
Ég álykta að samkvæmt framansögðu merki … Fáskrúð… Straumur…. Straumá.
Og tel ég það góðan stuðning við Straumfjarðarnafnið hér heima.
P.s. Mér finnst undarlegt að þessi skýring á nafninu virðist ekki hafa vakið athygli.”Í Morgunblaðinu (25.09.2012) er auglýsing frá fyrirtækinu Verslunartækni.
Þar eru auglýstar hurðar – Lagerhurðar, hraðhurðar (???) , og kælihurðar. Fleirtalan af hurð er hurðir. Auglýsingastofan sem hannaði þessa auglýsingu ætti að ráða prófarkalesara.Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 1017
26. september 2012
Aðstandendur Kastljóssins eiga heiður skilinn fyrir að fletta ofan af Skýrr/Advania hneykslinu, sem verður ótrúlegra með hverjum deginum sem líður. Við erlendar sjónvarpsstöðvar mundu 15 til 20 manns eða þaðan af fleiri vinna að rannsókn og framsetningu svona máls. Það er eiginlega kraftaverk hvað fámennt starfslið Kastljóssins hér hefur gert til að fletta ofan af dæmalausri spillingu sem að vísu hefur lengi verið að vitorði manna sem þekkja til í tölvuheimi Íslands. Sleifarlag Ríkisendurskoðunar er vissulega ámælisvert en sökudólgurinn í málinu er Skýrr/Advania.
Molavin sendi eftirfarandi (23.09.2012): ,,Meðbyr Hollandes fellur“, segir í fyrirsögn fréttar á ruv.is (23.09.12). Fréttin hefst svo á þessum orðum:,,Mjög hefur dregið úr vinsældum Francois Hollandes Frakklandsforseta næstliðnar vikur…“
Það er tvennt við þetta, sem kemur mér á óvart og ég hef undirstrikað, en kann svo sem að vera rétt. Það er mjög algengt að nota myndlíkingar í frásögnum í íslenzku máli, en þá verða þær að falla að málvenju. Fellur meðbyr eða lægir hann? Og hvað er átt við með ,,næstliðnar“ vikur? ,,Liðnar vikur“ eru gott og auðskiljanlegt mál, eins o g,á liðnum árum.“ Ég kannast ekki við hitt.”. Þetta er Molaskrifara einnig framandi orðalag.
Og hér kemur meira sem Molavin sendi: (23.09.2012):,, ,,Nema hann sjá sæng sína útreidda..“ segir þingmaður í bloggi, og er ekki sá fyrsti sem ruglar hugtakinu,,að sjá sæng sína upp reidda,“ (komið úr dönsku: op redet sæng = uppbúið rúm). Oft má líka sjá menn skrifa: „að sjá sæng sína út breidda.“ Íslendingar nota mjög myndlíkingar í máli og þyrftu þá helzt að þekkja og skilja þau hugtök, sem þeir nota.” Molaskrifari þakkar sendinguna.Þetta er af pressan.is (22.09.2012): Borghildur Guðmundsdóttir var gert að yfirgefa landið og mæta barnsföður sínum í forræðisdeilu fyrir bandarískum dómstól. Þeir sem svona skrifa hafa ekki mikla tilfinningu fyrir beygingakerfi tungunnar. Borghildi Guðmundsdóttur var gert að ….
Molalesandi spyr (22.09.2012): ,,http://www.kreditkort.is/kortin/fekort/ Þetta kreditkort er mikið auglýst þessa dagana. En orðið fékort virkar eitthvað svo vitlaust, ætti þetta ekki frekar að heita fjárkort?” . Molaskrifari er heldur ekki hrifinn af orðinu fékort. Hvað segja lesendur?
Konráð bendir (24.09.2012) á frétt sem visir.is birti: http://visir.is/schwarzenegger-vidurkennir-syndir-sinar-/article/2012120929528
Hann segir: ,,Nú fer mælirinn að verða fullur!:
,,..viðurkenndi hann fyrir Mariu Shriver, eiginkonu sinni, að húsfreyja þeirra hjóna hefði alið barn hans.“ Er húsfreyja þýðing á orðinu housemaid?” Það er heldur sennileg tilgáta, Konráð. Takk fyrir ábendinguna.Sushistaðir breiðast út, segir í fyrirsögn á mbl.is (22.09,.2012) http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2012/09/22/sushistadir_breidast_ut/ Betra væri líklega að segja að þessum veitingastöðum fari fjölgandi eða sé að fjölga eins og segir í fréttinni.
Á föstudögum dynja slúður og slettupistlar frá Los Angeles á hlustendum morgunþáttar Rásar tvö. Nú eru hlustendur ekki lengur óhultir aðra daga. Á mánudagsmorgni (24.09.2012) dundi slettuhríðin á hlustendum frá Kyrrahafsströndinni. Þá var eitt af gullkornunum: Að spyrja flatt út ! Dómgreindarleysið í Efstaleitinu á sér ótrúlega margar birtingarmyndir.
Í fréttum Ríkissjónvarps var fjallað um fjárskaðana fyrir norðan (24.09.2012) og sagt að tjón bænda væri stórt. Talað er um stórtjón, en málvenja er að tala um mikið tjón ekki stórt tjón. Í sömu frétt sagði fréttamaður: … og hefur þurft að lóga eitthvað af því fé. Betra hefði verið að segja : … og hefur þurft að lóga, eða farga, einhverju af því fé.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 1016
25. september 2012
Sjónvarp og útvarp eru áhrifamiklir miðlar. Það var vægast sagt óheppilegt hvernig Ríkisútvarpið flutti okkur frétt um rannsóknir á erfðabreyttum matvælum á föstudaginn (21.09.2012) Nánast var sagt berum orðum að erfðabreyttur maís væri krabbameinsvaldur. Komið hafa fram öflug andmæli frá vísindamönnum víðsvegar í veröldinni gegn tímaritsgreininni og rannsókninni sem frétt Ríkisútvarpsins byggðist á , einnig frá vísindamönnum við Háskóla Íslands. Rannsóknin hafi verið meingölluð. Höfundurinn kunnur svindlari sem eigi hagsmuna að gæta af því að koma óorði á erfðabreyttan maís. Það á ekki að hræða áheyrendur eins og þarna var gert. Það er ekki hlutverk Ríkisútvarpsins. Þetta mál hefði þurft að skoða betur og til dæmis hafa samband við íslenska vísindamenn, áður en fréttin var flutt. Við eigum að geta treyst Ríkisútvarpinu. Ríkisútvarpið hefur ekki beðist afsökunar á því að hafa skotið fólki skelk í bringu á fölskum forsendum. Vonandi læra stjórnendur af þessum mistökum. Í inngangi að prýðilegu viðtali við dr. Björn Sigurbjörnsson í morgunútvarpi Rásar tvö (24.09.2012) var ekki að heyra að umsjónarmenn hefðu hlustað grannt á fréttir Ríkisútvarpsins um gagnrýni á hina röngu frétt.
Konráð sendi eftirfarandi (21.09.2012): ,,DV enn: ,, ..að það sé í fínu lagi að fjárfesta í Kína, en að annað hljóð komi í kútinn þegar Kínverjar vilji fjárfesta á Vesturlöndum.“
Þarna kom skýringin á orðinu hljóðkútur!” Konráð benti líka á þessa frétt af mbl.is (22.09.2012): Erlent | mbl | 22.9.2012 | 11:02,,Tveggja ára stúlku brottvísað frá Svíþjóð –Og bætti við ,, Íslenskan þróast hratt um þessar mundir.”
Annar Molalesandi hnaut líka um þetta orðalag á mbl.is og sagði: ,,Tveggja ára stúlku brottvísað frá Svíþjóð. Þannig hljóðaði fyrirsögn á mbl.is Ég hafði ekki áttað mig á að til væri sögnin að brottvísa. En það segir e.t.v. meira um mig en blaðamanninn sem skrifaði fréttina”.Molaskrifari þakkar þessar ábendingar.Í íþróttafréttum Ríkisjónvarps (21.09.2012) var sagt ef Woods sigrar mótið. Sumir íþróttafréttamenn virðast ekki geta tileinkað sér þau einföldu sannindi að það sigrar enginn mót. Í sömu íþróttafréttum var einnig talað um að taka þátt á móti, en það orðalag virðast menn í Efstaleitinu ætla sér að festa í málinu. Við keppum á móti. Tökum þátt í móti.
Nemendur hafa tvöfaldast, var sagt í upphafi frétta Stöðvar tvö (21.09.2012) þegar sagt var frá fjölgun nemenda í námi í tölvunarfræðum í íslenskum háskólum. Betra hefði verið að tala um að nemendafjöldi hefði tvöfaldast.
Það fer hálfgerður hrollur um mann þegar horft er á dagskrárkynninguna í Ríkissjónvarpinu þar sem kynntar eru kvikmyndir sem sýna á í vetur. Greinilegt er að minni þeirra sem myndirnar velja nær ekki langt aftur fyrir síðustu aldamót og ekki sá Molaskrifari betur en sýna ætti enn eina útgáfuna af 101 Dalmatíuhundi sem nýlega var sýnd í Ríkissjónvarpinu og fékk einkunnina 5,5 á IMBd. Þessari stofnun er ekki við bjargandi.
Af mbl.is (22.09.2012): Hópur sauðkinda sem verið var að smala niður af fjalli í Austurríki enduðu inni í sportvöruverslun og gerðu þar mikinn usla. Hér hefði átt að standa: Hópur sauðkinda, eða fjárhópur sem … endaði, ekki enduðu.
Nýr Sunnudagsmoggi er fjölbreyttur og margt er þar læsilegt. Greinilega hefur mikil vinna verið lögð í breytingarnar. Áhugavert var viðtal við Jón Ólafsson um nýja bók um örlög Veru Hertzsch. Líklega er með efni og formi blaðsins verið að höfða til fólksins sem aldrei hefur keypt Mogga og er nú komið á fertugs- , fimmtugsaldur. Saknaði Tungutaks, kannski er það falið einhversstaðar í blaðinu. Reykjavíkurbréf stingur dálítið í stúf við annað efni sunnudagsblaðsins. Moggamenn ættu að færa það í laugardagsblaðið.
Stundum er eins og Ríkisútvarpið (24.09.2012) sé almannatenglastofa fyrir lögfræðinga fólks sem sumt hvert kemur til Íslands á vafasömum forsendum, oftar en ekki með fölsuð skilríki. Lögfræðingarnir virðast eiga ótrúlegagreiðan aðgang að fréttum og fréttatengdum þáttum þótt fréttagildi þess sem frá þeim kemur sé stundum fremur rýrt.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Stundum ofbýður manni
24. september 2012
Stundum ofbýður manni. Mörður Árnason, alþingismaður, skrifar grein í Fréttablaðið í dag (24.09.2012) og segir:
,,Reykvíkingar lýstu í almennri atkvæðagreiðslu 2001 þeim vilja sínum að Vatnsmýrarvöllur (innskot: Reykjavíkurflugvöllur) yrði lagður af, og borgarstjórn samþykkti síðan aðalskipulag þar sem önnur flugbrautin fer 2012, hin 2014.”.
Hugum að staðreyndum málsins. Skoðanakönnun fór fram um framtíð flugvallarins 21. mars 2001. Á kjörskrá voru 81.258. Atkvæði greiddu 30.219, eða 37.2%
14.529, eða 48,1 % vildu flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni. 14.913 eða 49,3% vildu að flugvöllurinn færi eftir 2016. Niðurstöðurnar voru ekki bindandi fyrir borgarstjórn Reykjavíkur vegna þess hve þátttakan var dræm.
Það þarf dálítið ósvífinn pólitíkus til að kalla þessar niðurstöður vilja Reykvíkinga.
Kannski verða niðurstöður í fyrirhugaðri atkvæðagreiðslu um tillögur svokallaðs stjórnlagaráðs í svipuðum hlutföllum. Hættan er þá sú að þar verði talað um ,,vilja þjóðarinnar.” Sjá annars þessa ágætu grein Leifs Magnússonar verkfræðings um blekkingaleik andstæðinga Reykjavíkurflugvallar. http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1386386/
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 1015
24. september 2012
Auk þess sem samsetning sjúklinganna hafi breyst, var sagt í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (20.09.2012). Betra hefði verið að segja: Auk þess sem sjúklingahópurinn hafi breyst.
Það var gaman að hlusta á þá Árna Pál og Illuga í Silfri Egils (23.09.2012) . Sögðu báðir margt af skynsemi. Illugi gaf ekkert út á ummæli formanns síns að slíta ætti aðildarviðræðunum við ESB. Eitt er að hægja á viðræðum, gera hlé, formlegt eða óformlegt. Annað að slíta viðræðum og skella hurðum eins og formaður Sjálfstæðisflokksins vill að við gerum. Illugi tók ekki undir það. – Egill reyndi hvað eftir að leiða talið að blaðagrein eftir fjárfestinn Heiðar Má Guðjónsson, en enginn fékkst til að taka þann þráð upp. Athyglisverðasta efnið í Silfrinu var viðtalið við spænska blaðamanninn, Juan Pablo Cardenal, um umsvif Kínverja vítt og breitt í veröldinni á leiðinni til heimsyfirráða. Vonandi verður bók hans gefin út á Íslandi áður en langt um líður. Egill er ótrúlega naskur að finna áhugaverða erlenda gesti í Silfrið. Eftir langt viðtal á Rás eitt á sunnudagsmorgni átti Hörður Torfason hinsvegar nákvæmlega ekkert erindi í Silfrið til að segja afrekum sínum ímynduðum eða raunverulegum. Dálítið fáránlegt.
Margt var fróðlegt í seinni þætti Lísu Páls á Rás eitt (22.09.2012) Þegar hún flakkaði um Norðurmýri. Í þættinum var þó óþarflega mikið af gömlu efni,sem var á mörkum þess að eiga þangað erindi. Fengur var að hlýða á Pétur Ármannsson arkitekt með fróðleiksmola úr sögu Norðurmýrar og nágrennis. Líklega var það Litla bílastöðin (Litlabíl) sem hafði fyrst aðsetur á Hlemmi ekki Hreyfill. Litla bílastöðin var seinna sameinuð Hreyfli. Á æskuheimili Molaskrifara var aldrei talað um Hlemm, alltaf talað um að fara niður að vatnsþró. Ekki var þess getið í þættinum að eftir að Austurbæjarbíó tók til starfa var rekin bókbandsstofa þar sem seinna var skemmtistaðurinn Silfurtunglið og undanfari Austurbars á jarðhæðinni var Bíóbarinn, líklega fyrsti staðurinn á landinu þar sem hægt var að kaupa franskar kartöflur og fara með heim. Sölulaunin fyrir aukablöðin af Mogganum enduðu stundum þar. Ekki minnist Molaskrifari þess að herskálabyggð hafi verið á svæðinu þar sem leikvöllurinn er norðan við Njálsgötuna eisn og sagt var í þættinum. Braggar voru hinsvegar austan við leikvöllinn eins og fram kemur í bók Eggerts Þórs Bernharðssonar, Undir bárujárnsboga – Braggalíf í Reykjavík 1940 til 1970.Á planinu þar sem nú er bílastæði við Arionbanka voru 1947 eða 1948 teknir úr kössunum amerískir Studebaker (sem höfðu gælunafnið ,,stúddar”) bílar sem Egill Vilhjálmsson var með umboð fyrir. Rosalega flottir bílar, fannst Norðurmýarguttunum þá. Þá komu fólksbílar til landsins í trékössum. Kössum, sem voru eftirsóttir því timbrið var notað í húsbyggingar. Í byggingum Egils Vilhjálmssonar voru ekki bara settir saman Dodgebílar sem voru, að ég held, strandgóss úr skipi sem strandaði austur á Skaftafellsfjörum þar var líka byggt yfir strætisvagna og langferðabíla auk Willys jeppanna. Þar var smurstöð, málningarverkstæði, fullkomið renniverkstæði og mótorverkstæði auk varahlutaverslunar þar sem Molaskrifari keypti sitt fyrsta reiðhjól í félagi við yngri bróður sinn árið 1950 , ungverskt Csepel hjól . Afgreiðslumaðurinn hváði þegar 10 ára patti með sparifé beggja bræðranna í vasanum benti á hjólið og sagði: Ég ætla að fá þetta hjól! Þá kom hik á snáðann, sem spurði: Eru þetta ekki góð hjól? En takk fyrir þáttinn.Í nýlegum Molum (1013) var spurt hvort verið gæti að einn af umsjónarmönnum Kastljóss, Ragnhildur Steinunn kæmi fram í Denver auglýsingu Icelandair. Ragnhildur Steinunn hefur svarað Molaskrifara í tölvupósti. Svarið er skýrt og skorinort. Nei. Hún er ekki í auglýsingu Icelandair. Takk fyrir það.
Hér á eftir fer á eftir kafli úr bréfi frá Ragnari Þorvaldssyni sem Molum barst fyrir nokkru Ragnar tíndi til málblóm sem hann kallar svo ágætlega hagalagða, sumt gamalt , annað nýrra: : 1. Rúv. 19.08.2002 Fréttir Kl. 12,20 ,,Vatnsborðið í ánni búið að hjaðna “
2. Stöð 2 Tíma vantar: ,,Ef ekki er þegar búið að stytta upp “
3. Rúv. 19.02. 2004 (Laufskálinn _ Internetið _ Þáttur um börn og tölvur) ,,Minnst í kringumhaldna fyrirbærið “
4.Rúv. 27.04. 2005 ( Kastljós _ þáttur um áfengi ) ,,Áttu þá við að ástandið sé búið að versna ? “
5. Rúv. 27.04. 2005 tími 2145 ,,Mikið af sjúkdómum”
6. Sami þáttur og tími ,,Draga úr sorpinu “
7. Ruv. 28.04.2005 ( Rætt um lífeyrissjóði),,Fólk er byrjað að lifa lengur “
8. Rúv. 01.12.2006,,Báturinn rak undan vindi “
Rás 1 03.05. 2007 ,,,Það er búinn að vera kominn tími á öldrunarmálin lengi ”
Molaskrifari þakkar Ragnar bréfið. Lokakafli þess verður birtur á næstunni.Ágætir matreiðsluþættir Hrefnu Sætran í Ríkissjónvarpinu þurfa ekki á að halda bjór- og rauðvínsþambandi útvarpsmanni í dagskrárkynningu. Það bætir nákvæmlega engu við þættina að sjá mann troðfylla munninn af kjöti af grillinu. Og tala svo við áhorfendur! Ekki mjög geðfellt.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334
- 335
- 336
- 337
- 338
- 339
- 340
- 341
- 342
- 343
- 344
- 345
- 346
- 347
- 348
- 349
- 350
- 351
- 352
- 353
- 354
- 355
- 356
- 357
- 358
- 359
- 360
- 361
- 362
- 363
- 364
- 365
- 366
- 367
- 368
- 369
- 370
- 371
- 372
- 373
- 374
- 375
- 376
- 377
- 378
- 379
- 380
- 381
- 382
- 383
- 384
- 385
- 386
- 387
- 388
- 389
- 390
- 391
- 392
- 393
- 394
- 395
- 396
- 397
- 398
- 399
- 400
- 401
- 402
- 403
- 404
- 405
- 406
- 407
- 408
- 409
- 410
- 411
- 412
- 413
- 414
- 415
- 416
- 417
- 418
- 419
- 420
- 421
- 422
- 423
- 424
- 425
- 426
- 427
- 428
- 429
- 430
- 431
- 432
- 433
- 434
- 435
- 436
- 437
- 438
- 439
- 440
- 441
- 442
- 443
- 444
- 445
- 446
- 447
- 448
- 449
- 450
- 451
- 452
- 453
- 454
- 455
- 456
- 457
- 458
- 459
- 460
- Næsta »
