Eiður Guðnason

Eiður Guðnason

Eiður Svanberg Guðnason stundaði nám í stjórnmálafræði í Bandaríkjunum. Lauk BA prófi í ensku frá Háskóla Íslands. Var blaðamaður við Alþýðublaðið, fréttamaður og varafréttastjóri Sjónvarpsins 1963 til 1978. Alþingismaður fyrir Alþýðuflokkinn 1978-1993 (umhverfisráðherra 1991-1993) Sendiherra í Noregi, Kína og víðar 1993 til 2009. Hefur ritað í blöð og tímarit. Skrifar reglulega um málfar og efnistök fjölmiðla.

  • Molar um málfar og miðla 1022

    2. október 2012

    Í fréttum Stöðvar tvö (30.09.2012) var talað um fjögur Emmy-verðlaun. Átti að sjálfsögðu að vera fern Emmy-verðlaun. Það er eins og Molaskrifara minni að hann hafi heyrt þetta orðalag áður á Stöð tvö.


    Fyrirsögn á mbl.is (29.09.2012) Þjóðin tekur tillögunum ekki alvarlega. Fyrirsögnin er tilvitnin í ummæli formanns Sjálfstæðisflokksins. Molaskrifari hallast að því að betra hefði verið að segja: Þjóðin tekur tillögurnar ekki alvarlega.


    Í kvöldfréttum Ríkisútvarps (29.09.2012) var talað um þrautarlendingu. Rétt er að tala um þrautalendingu, ekki þrautarlendingu.


    Fréttir Ríkissjónvarps (29.09.2012): Þetta þýðir auðvitað aukinn kostnaður fyrir sveitarfélögin. Betra væri: Þetta þýðir auðvitað aukinn kostnað fyrir sveitarfélögin.


    Mannlaus bifreið rann út í Jökulsárlón og fór á bólakaf. Úr frétt um málið á mbl.is (30.09.2012): Spurður hver næstu skref verða segir hann einungis hægt að bíða og sjá hvort bifreiðin losi olíu í lónið. Heldur er þetta nú illa orðað. Betra hefði verið til dæmis að segja …. bíða og s já hvort olía lekur úr bifreiðinni. Bifreiðin losar ekki eitt né neitt í þessu tilviki.


    Fréttir Stöðvar 2 (29.09.2012) Önnur var útskúfuð úr vinahópnum.. Hér hefði átt að segja: Annarri var útskúfað úr vinahópnum…


    Fyrirsögn á mbl.is (30.09.2012): Fann ein milljón á götunni. Er þetta fallafælni? Ætti að vera: Fann eina milljón á götunni.


    Forsetninganotkun með staðaheitum í íslensk er nokkuð föst og venjubundin. Undarlegt var því að heyra í fréttum Stöðvar tvö talað um að koma við á Stykkishólmi og á Borgarnesi. Málvenja er að segja í Stykkishólmi og í Borgarnesi.


    Þær bregðast ekki þýðingarnar á mbl.is! (mbl.is 18.09.2012) Bandaríska öfgafréttastöðin sýndi mann fremja fremja sjálfsmorð í beinni útsendingu. Við klúðruðum þessu algerlega,“ sagði Anchor Shepard Smith, fréttamaður á Fox News í dag og baðst um leið afsökunar á mistökunum. http://www.mbl.is/frettir/erlent/2012/09/28/syndu_myndir_af_sjalfsmordi/ Það sem er athugavert hér er að vissulega heitir maðurinn Shepherd Smith. Hann heitir hinsvegar ekki Anchor Shepherd Smith! Anchor er stytting úr anchorman, – fréttaþulur !” Sjá: http://watching-tv.ew.com/2012/09/28/fox-news-airs-live-suicide-anchor-shepard-smith-apologizes-we-really-messed-up-video/


    Orðið þingkona er arfleifð frá Kvennalistanum sáluga. Þær konur vildu ekki vera þingmenn. Af einhverjum misskilningi fóru þær að kalla sig þingkonur. Ingibjörg H. Bjarnason, fyrsta konan sem kjörin ar til setu á Alþingi kallaði sig alþingismann. Ekki alþingiskonu. Þingkonur komu mjög við sögu í fréttum Ríkisútvarps og sjónvarps (28.09.2012) þegar greint var frá því hvaða þingmenn ætluðu ekki að bjóða sig fram að nýju. Þar var talað mikið um þingkonur. Þuríður Backman var hinsvegar sögð vera alþingismaður. Í anda jafnfréttis ættu fjölmiðlar að hætta að tala um alþingiskonur, eða þingkonur. Konur eru menn. Þessvegna eru allir sem kjörnir eru til setu á alþingi Íslendinga alþingismenn.


    Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG



    Upprunaleg færsla á Eidur.is

    Skrifa athugasemd

  • Molar um málfar og miðla 1021

    1. október 2012

    Úr viðtali í DV (28.09.2012): … segir að Anna Sigurlaug hafi fundist hún vera sniðgengin … Hér vantar máltilfinningu, tilfinningu fyrir beygingakerfi tungunnar. Hér hefði átt að standa: …segir að Önnu Sigurlaugu hafi fundist hún vera sniðgengin ….


    Molaskrifari sendi þessa ábendingu (28.09.2012): ,,Úr dv.is 28.9.2012:

    Fyrir dómi þóttist sannað að Júlíus hafi stundað sölu á áður nefndum efnum yfir alllangt skeið. Hann var í héraði dæmdur í árs fangelsi vegna þessa ásamt því að þurfa að sæta upptöku áður nefndra efna og reiðufés.”. Eignarfallsmyndin fés hefur svo sem sést áður og heyrst, meira að segja í ræðustóli Alþingis. Gott er að muna að ekki eru allar ferðir til fjár þótt farnar séu.


    Molaskrifari hlustaði á Útvarp Sögu milli klukkan 11 00 og 12 00 á föstudag (28.09.2012). Samtímis fletti hann Fréttatímanum, sem kom inn um póstlúguna um morguninn. Á bls. 6 er frá því greint að Lee Buchheit lögmaður hafi hugsanlega fengið tvígreiddan reikning fyrir lögmennsku í hinu frábæra kerfi sem Skýrr/Advania er búið að vera að selja íslenska ríkinu í meira en áratug. Í Fréttatímanum segir um þetta að Buchheit hafi að sjálfsögðu skilað fénu. Í Útvarpi Sögu fjallaði útvarpsstjórinn um þetta. Hún vitnaði í Fréttatímann, en lét þess ógetið að fénu hefði verið skilað. dv.is greindi svo frá því síðdegis á föstudag að Lee Buchheit hefði ekki fengið tvígreitt fyrir störf sín. Þetta var því bull frá upphafi. Auðvitað mun Útvarp Saga segja frá því. Þó það nú væri.


    Nokkrar efasemdir hefur Molaskrifari um að fyrirsögn þessarar fréttar á vef Ríkisútvarpsins (28.09.09 2012) sé alveg í samræmi við efni hennar: http://www.ruv.is/frett/atta-milljonir-i-frekari-leit Gefið er í skyn að nú verði átta milljónir til reiðu til að greiða fyrir leit að fé. Fjárveitingin mun hinsvegar ekki síst ætluð til að greiða þegar áfallinn kostnað vegna leitar að fé eftir óveðrið mikla á dögunum.


    Visir.is (28.09.2012): Björgunarsveitin Hérað á Egilsstöðum var kölluð út nú í hádeginu til að sækja bílstjóra gröfu sem festist í Jökulsá í Fljótsdal. Bílstjóri gröfu? Gröfustjóri sagði Ríkisútvarpið. Fínt.


    Það brást eitthvað hjá Ríkissjónvarpinu á föstudagskvöld (28.09.2012) þegar Barnaby byrjaði á skikkanlegum tíma , klukkan 21 30. Slíkar myndir um helgar hafa yfirleitt verið settar á dagskrá löngu seinna á kvöldinu. Það var hinsvegar ekkert óvenjulegt við myndina sem kom næst. Innkaupastjórar kvikmynda í Efstaleiti hafa óskiljanlegt dálæti á dellumyndum um ýmiss konar yfirnáttúrulega óra. Þessi mynd fær einkunnina 5.2 á IMDb. Enn skal innkaupastjórum bent á að talsvert af góðum kvikmyndum var framleitt fyrir árið 2000.

    Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG



    Upprunaleg færsla á Eidur.is

    Skrifa athugasemd

  • Molar um málfar og miðla 1020

    29. september 2012

    Í fréttum Ríkissjónvarps (26.09.2012) var sagt frá flóðum í Englandi og skemmdum af þeirra völdum. Sögð var hætta á því að fjölbýlishús hryndi … þar sem vatnselgur gróf undan grunninum. Hér hefði verið betra og skýrara að segja að vatnselgur hefði grafið undan undirstöðum hússins.


    Ef til vill er það svolítill mælikvarði á efnahagsástandið að í sjónvarpi eru auglýstir (26.09.202) eldhúsrúllustandar á 10.400 krónur. Líklega má fá snotra standa sem gera sama gagn fyrir svona 500 krónur í IKEA eða Rúmfatalagernum. En þeir eru náttúrulega ekki frá honum Georg Jensen í kóngsins Kaupmannahöfn.


    Í margendurteknum dagskrárauglýsingum um sjónvarpsþætti um fólk af íslenskum ættum og uppruna í Kanada og Bandaríkjum segir að allt sé þetta fólk stoltir Íslendingar. Þetta góða fólk er undantekningarlaust stolt af uppruna sínum , en fyrst og fremst er það Kanadamenn eða Bandaríkjamenn. Sumir eru meira að segja ekki hrifnir af nafngiftinni Vestur Íslendingar. Segjast vera Kanadamenn af íslenskum ættum. Molaskrifari átti heima í Winnipeg í hálft annað ár.

    Af mbl.is (27.09.2012): Báturinn var skilinn eftir enda heftir myrkur athafnir á vatninu sem stendur. Dálítið undarlegt að tala um að myrkur hefti athafnir. Vegna myrkurs var ekki hægt að bjarga bátnum eða fjarlægja bátinn.

    Í Útvarpi Sögu var á miðvikudegi (26.09.2012) var sagt í símaþætti Péturs Gunnlaugssonar að nafngreindur, þjóðkunnur sjónvarpsmaður hefði átt sæti á Alþingi. Það var rangt. Daginn eftir var sagt að David og Ed Milliband væru tvíburar. Það var rangt. Þeir eru bræður. Ekki tvíburar. Það er stundum farið frjálslega með staðreyndir í þessari útvarpsstöð. Það er slæmt, því einhverjir leggja vafalaust trúnað á eitthvað af því sem þar er sagt.

    Molalesandi sendi þessa ábendingu (26.09.2012): ,,Þegar hafa á milli 600 og 700 manns forpantað iPhone-inn en fyrsta verk Epli.is verður að koma eintökum til þeirra þegar símtækin lenda hér á landi í næstu viku,“ segir í frétt hjá netmiðlinum Vísi. Þarna sé ég í fyrsta skipti sögnina að forpanta og fæ nettan hroll þegar ég sé að símtæki muni lenda hér á landi. Ekki verður sagt að þessi skrif séu til fyrirmyndar!


    Í fréttum Ríkissjónvarps (27.09.2012) talaði borgarfulltrúi um að versla mat, betra hefði verið að tala um að kaupa mat. Í auglýsingu frá fiskbúð sem útvarpsstjóri Sögu les er talað um að versla fisk. Við kaupum fisk þar sem verslað er með fisk. Eitthvað skolaðist beyging á orðinu arkitekt til í fréttum Ríkisútvarps sama dag, þar var sagt að húsið væri hannað af arkitektnum, rétt hefði verið að segja , hannað af arkitektinum … Í frétt um flóttamann sem sendur var úr landi var nýlega sagt í útvarpsfréttum, að honum hefði verið flogið til Noregs. Þetta heldur hvimleiða orðalag heyrist stundum, – því miður. Maðurinn var sendur með flugvél til Noregs. Mönnum er ekki flogið. Í frétt um framkvæmdir austur á landi, tengdar Kárahnjúkavirkjun var sagt að vatninu væri rakað saman. Molaskrifari sér það verklag ekki alveg fyrir sér. Kannski eru Bakkabræður komnir til starfa eystra. Þannig verklag gæti alveg átt við þá.


    Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG



    Upprunaleg færsla á Eidur.is

    Skrifa athugasemd

  • Molar um málfar og miðla 1019

    28. september 2012

    Ríkissjónvarpið gerði tilkynningu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra fín skil í fréttum í kvöld ( 27.09.2012). Þetta var smekklega gert hjá nöfnu hennar Hjaltadóttur. Jóhanna komst afar vel frá sínu. Sjaldan séð hana glansa eins og hún gerði í kvöld. Eftir að hafa tekið þessa ákvörðun mun hún blómstra sem aldrei fyrr það sem lifir kjörtímabilsins. Hún á það líka skilið. Eins og bent hefur verið á hefur enginn forsætisráðherra tekið við jafn slæmu búi og hún þurfti að gera. Og hún skilar því með glæsibrag. Þetta eru mikil pólitísk tímamót. Jóhanna tók sæti á þingi 1978 og verður sjötug á fimmtudaginn. Hún hefur skilað góðu verki. Ekki hefur Molaskrifari alltaf verið henni sammála, en hún á sitt. Hún amma hennar, sú yndislega og eftirminnilega kona Jóhanna Egilsdóttir, væri stolt af henni nöfnu sinni í dag.


    Góðvinur Molaskrifarara benti á eftirfarandi á síðunni fararheill.is (26.09.2012): Verslunarlega séð er strax hægt að útiloka Helsinki og Osló enda báðar borgir mun dýrari almennt en hér á landi. Hvorug þeirra halda heldur vatni í jólalegu tilliti . Ja, hérna. Þetta er með ólíkindum!


    Eitt af því sem Molaskrifari lærði snemma úr erlendri bók um sjónvarp og fréttir að samræmi skuli jafnan vera milli talna sem birtast á skjánum og talnanna sem þulur les. Þetta er grundvallarregla. Þessari reglu er ekki fylgt í Ríkissjónvarpinu. Þar hendingu háð hvernig þulurinn breytir tölunum sem birtast á skjánum, hækkar þær eða lækkar af handahófi.. Molaskrifara finnst þetta ekki góður siður. Þarna á að vera samræmi, samhljómur – milli þess sem augað sér og eyrað heyrir.


    Hallgrímur T. Jónasson sendi Molum eftirfarandi (25.09.2012): ,,Vegna skrifa þinna nýlega um að Canada væri ennþá í N-Ameríku vil ég koma eftirfarandi á framfæri,skammstöfunin BNA er eins röng og hugsast getur enda eru

    hvorki Canada eða Mexico í einhverju bandalagi með USA utan NAFTA,eins og þessi heimskulega skammstöfun gefur til kynna. Jafnvel Frakkar nota USA um hin sjálfstæðu ríki ameríku”.


    Á árum áður annaðist sérstakur starfsmaður val á fræðslu- og heimildarmyndum í Ríkissjónvarpinu. Það fyrirkomulag er ekki lengur við lýði enda fræðslumyndir og heimildarmyndir sjaldan á dagskrá, að ekki sé talað um erlenda fréttaskýringaþætti sem aldrei sjást. Það er eins og heimildamyndir séu eitur í þeirra beinum sem raða saman dagskrá Ríkissjónvarpsins. Að undanförnu hefur mátt horfa á fróðlegar heimildarmyndir í danska sjónvarpinu um bannárin í Bandaríkjunum og þá er danska sjónvarpið einnig nýbyrjað að sýna þáttaröð (13 þætti minnir mig) sem heitir Seinni heimsstyrjöldin í litum, (WW II in Colour) Nafnið skýrir efnið, en norska sjónvarpið hefur þegar sýnt þessa þætti. Sjónvarpið gæti verið mikilvægur og mikilvirkur fræðari um sögu liðinnar aldar. Á því virðist ekki ríkja neinn skilningur hjá stjórnendum Ríkisútvarpsins. Þar er oft eins og enginn muni neitt sem gerðist fyrir síðustu aldamót.


    Eftir átökin við skemmtistaðinn … var sagt í hádegisfréttum Ríkisútvarps (26.09.2012). Skyldi skemmtistaðurinn hafa tekið hraustlega á móti?


    Gevalia kaffi er búið að kaupa sér útvarps- og sjónvarpsmann sem það sýnir áhorfendum Ríkissjónvarpsins á hverju kvöldi um þessar mundir. Útvarpsstjóri á að gera þessum starfsmanni sínum að velja milli þess að selja ásjónu sína kaffifyrirtæki og koma fram í dagskrá. Þetta tvennt fer ekki saman. Brot á reglum sem útvarpsstjóri hefur sjálfur sett sínu fólki.


    Molalesandi benti á þennan tengil (26.09.2012): http://www.visir.is/glitni-gert-ad-greida-laeknir-tolf-milljonir-ut-af-latabae/article/2012120929105. Rétt er að geta þess að orðið læknir var rétt beygt í fréttinni.


    Ingólfur Bjarni Sigfússon fær hrós fyrir að leiðrétta það sem var smávægilega missagt í seinni fréttum Ríkissjónvarps (27.09.2012). Hann leiðrétti eins og á að leiðrétta.


    Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG



    Upprunaleg færsla á Eidur.is

    Skrifa athugasemd

  • Molar um málfar og miðla 1018

    27. september 2012

    Molalesandi þakkar þessa pistla og skrifar á þessa leið (24.09.2012): ,,Ég hlustaði á hádegisfréttir Ríkisútvarpsins í dag, 24. september 2012. Þar var frétt af aðalmeðferð í máli Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra, gegn Seðlabankanum. Þar var ítrekað talað um verjanda Más. Hið rétta er að sjálfsögðu að ekki er talað um verjanda í einkamálum. Það er aðeins gert í sakamálum um þá sem verja menn sem eru ákærðir. Þetta er ekki flókið. Þetta er pínleg villa. Benda mætti fréttamanninum sem sá um fréttina á Lögfræðiorðabók með skýringum, hér er hlekkur: http://www.bc.is/?c=a8news&id=29&lid=&pid Í kynningu um bókina segir „Ritið er ekki síður gagnlegt fjölmiðlamönnum í þeirra störfum, en fréttaflutningur af lögfræðilegum málefnum vegur þar að jafnaði þungt.“ Gera á kröfu til fréttamanna um að þeir kynni sér þau orð sem þeir nota í fréttum. Það er tiltölulega einfalt að fletta upp hugtökum í lögfræði í fyrrnefndu riti og kynna sér muninn sem er á milli hugtaka í einkamálum annars vegar og sakamálum hins vegar.


    Annað: Hinn oft ósmekklega klæddi ungi íþróttafréttamaður sagði í kvöldfréttum Sjónvarps núna rétt í þessu, 24. september 2012, að leikur Barcelona og Granada hefði farið fram í gær, þ.e. 23. september 2012. Hann var ekki með margar fréttir. Mér finnst ég líka eiga kröfu á að hann fari rétt með einfaldar staðreyndir. Hið rétta er að leikurinn fór fram laugardagskvöldið 22. september 2012, sjá hlekk: http://www.visir.is/tvo-mork-borsunga-a-sidustu-minutunum—med-11-stiga-forskot-a-real/article/2012120929766 “ Molaskrifari þakkar bréfið. Aldrei verður um of brýnt fyrir fréttamönnum að nota uppflettirit, handbækur og leitarvélar netsins. Það getur afstýrt slysum.


    Molalesandi sendi þessa ábendingu (26.09.2012): „Þær 160 millj. kr. sem veittar voru á fjárlögum árið 2001 var ætlað að standa straum af þarfagreiningu og gerð útboðsgagna

    Hélt þetta væri afbökun DV á frtilk. Fjársýslunnar, en sé mér til hrellingar að virðuleg opinber stofnun sendir svona orðalag frá sér.”


    http://www.fjs.is/default.aspx?cat_id=10&module_id=220&element_id=2423


    Molaskrifari þakkar ábendinguna.


    Hér fer á eftir lokakaflinn úr bréfi Ragnars Þorvaldssonar


    Nú vil ég snúa mér að öðru og óskyldu efni.

    Ég á heima á Fáskrúðsfirði, en nafnið á honum hefur vafist fyrir mönnum í gegnum tíðina. Nú hef ég eftir fræðimanni …(Hef ekki bókina við hendina í augnablikinu til þess að vísa beint í hana ) …að nafnið sé komið úr “ Gelisku “ og merki fjörðurinn við straumana það er ,,Straumfjörður “

    Miklir hafstraumar eru ríkjandi í mynni fjarðarins og umhverfis eyjarnar Skrúð og Andey og sé ég ekki betur en nafnið væri vel við hæfi.

    Nú kemur nafnið “ Fáskrúð “ víðar fyrir hér á landi, sem kunnugt er og ég heyrði það í fréttum nýlega að góð veiði væri þá í ánni “ Fáskrúð “

    Ég álykta að samkvæmt framansögðu merki … Fáskrúð… Straumur…. Straumá.

    Og tel ég það góðan stuðning við Straumfjarðarnafnið hér heima.

    P.s. Mér finnst undarlegt að þessi skýring á nafninu virðist ekki hafa vakið athygli.”


    Í Morgunblaðinu (25.09.2012) er auglýsing frá fyrirtækinu Verslunartækni.

    Þar eru auglýstar hurðar – Lagerhurðar, hraðhurðar (???) , og kælihurðar. Fleirtalan af hurð er hurðir. Auglýsingastofan sem hannaði þessa auglýsingu ætti að ráða prófarkalesara.


    Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG



    Upprunaleg færsla á Eidur.is

    Skrifa athugasemd